Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Qupperneq 69

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Qupperneq 69
195 HETJAN í KLONDYKE. að komast í eitthvað 6rall við þennan nýja vin sinn, en hann var altof hygginn til að hreyfa því þá þegar, heldur talaði hann ein- göngu um alnienn mál og Iaeði áherslu á, að koma sér sem best í mjúkinn hjá Harnish. Jón Dowsett var sá fyrsti af hinum þjóð- kunnu fjármálamönnum Bandaríkjanna, sem Harnish hafði komist í kynni við, og hann hafði þegar mikil áhrif á hann. Það var eitt- livað svo ahíðlegt og vinnandi við hann, hugs- unarhátturinn virtist vera svo atþýðlegur, skýr og elskulegur, að Harnish átti erfitt með að átta sig á, að þetta skyldi vera hinn mikli Dowsett forseti margra banka og ábyrgðarfé- laga, og sem sögurnar sögðu að væri einn af Standard Oil félögunum og í sambandi við helstu miljónamæringa Bandaríkjanna. Hann var höfðinglegur maður, og vel á sig kominn, og þrátt fyrir það, þótt hann hefði 60 ár að baki og væri orðinn hvítur fyrir hær- um var þó handtak hans fast og hjartanlegt, og enga afturför á honum að sjá í hreyfing- um og limaburði. Hann var rauður og hraust- legur í andliti, fyndinn í viðræðum og lék þá bros um varir hans. Augun voru blá og ráðvendnisleg, brýrnar miklar og tillitið undan þeim hvast og frjalsmannlegt. Brátt kom það í Ijós, að skilningur hans var skarpur og hann var víðast heima, og hljóp ekki eftir ágiskun- um og lausásögnum. Pað leyndi sér eigi, að hann var vanur við að stjórna öðrum og í öllum hans hieyfingum og tali var einhver undiralda af krafti og sjálfstrausti. ÖII hans framkoma bauð gór'an þokka og var aðlað- andi. Elam Harnish gekk brátt úr skugga um, að hér var maður, sem í framkomu og hugs- unarhætti var mjög ólíkur Holdsworty og öðr- um smámennum af hans sauðahúsi. Honum var að nokkru kunn saga Dowsettanna, þess- arar gömlu og nafnfrægu amerísku ættar, hann vissi, að einn af forfeðrum hans hafði verið einn af atkvæðamestu mönnunum í frelsisstríði Bandaríkjanna og fleiri forfeður hans höfðu verið stórfrægir menn. »Jú, það er maður, sem er sannarlega vert að kynnast,« sagði Harnish síðar við einn af félögum sínum í Alta Pacific-klúbbnum, »oí; það skal eg segja þér, Gallon, að hann vakti bæði undrun mína og aðdáun. Eg vissi áð vísu, að hinir stóru og ríku menn, mundu margir vera þannig, en eg varð þó að sjá hann, til þgss að vera viss um þetta. Hann er einn af þeim mönnum, sem getur komið miklu til leiðar — það ber hann utan á sér. Pað er ekki einn af þúsund, sem treystir sér jafnvel og hann, og á hann geta menn reitt sig. Hann mun spila tryggt og svikalaust, og eg þori að veðja miklu um að hann getur tapað eða unnið nokkrar milj- ónir í einu, án þess að nokkur sjái honum bregða.« Gallon reykti vindil sinn þegjandi, meðan Harnish hélt þessa lofræðu, svo þegar hann þagnaði, starði hann á Klondyke-manninn með mikilli athygli, sem þó ekki tók eftir því, þar sem hann var þá að panta Cocktail handa þeim. »Svo munt þú ætla að fara í kaupskap með honum,« sagði Gallon. »Á það hefir alls eigi verið minst, en skál félagi. Eg vildi bara skýra þér frá, hvernig þessir miklu menn eru, sem koma risavöxn- um framkvæmdum af stað. Mér fanst sem hann mundi vita alt, svo eg fór að blygðast mín fyrir sjálfan mig.* »Færum við að reyna með okkur í hunda- akstri, kynni eg að geta unnið, þótt eg hleypti honum af stað á undan mér,« sagði Elam Harnish, eftir að hann hafði setið stundarkorn þegjandi í þungum þönkum. »Svo gæti eg ef til vill mætt honum í gnllgreftri og að róa eintrjáningsbát og fleiru þess háttar, og verið getur að eg hafi eins mikla hæfileika til að læra að spila það spil, sem hann hefir leikið alla æfi, og hanrt hefir til að læra þær listir, sem eg lék þarna norður frá.«
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.