Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Side 6
4 Til lesandanna. ' [Stefnir
oft og einatt hrapað að breytingum, sem leiða til óláns og
ófarsæld'ar.
Altaf eru einhverjir til óánægðir. Þeir hafa ekki fund-
ið það, sem þeir leituðu að, og vilja því breyta til. Þjóð-
skipulagið og atvinnumálin er engin undantekning frá þessu.
Þeir, sem ekki hafa fundið þá grænu grein, kenna trénu
um og vilja láta höggva það upp og bera á bál. Og altaf eru
opin eyru fyrir nýjungum, sem reynslan hefir ekki fengið
að hreinsa í deiglu sinni.
Stefnir vill ræða þessi mál við lesendur sína. Hann vill
sýna fram á, að atvinnufrelsi og einstaklingsframtak er
ekki úreltir hlutir, sem menn eru að verja af einhverri fast-
heldni og þráa, heldur miklu fremur takmark, sem barizt
hefir verið fyrir um langan tíma, en hefir ekki náðst enn
til fulls. Hann vill leitast við að gera mönnum þann sann-
leik ljósan, að allar takmarkanir á framleiðslu og hömlur
á viðskiftum eru takmarkanir á sjálfsbjargarviðleitninni og
leiða alveg óhjákvæmilega til þess, að þjóðin verður fátæk-
ari og ver stödd-
Stefnir vill ræða öll þessi mál án æsinga og illinda,
án flokkadeilna eða ágreinings um dægurmál. Hann vill ná
tali af greindu og gætnu mönnunum, sem vilja vita og
skoða, í því óbifanlega trausti, að það muni sigra, sem
stenzt fyrir dómi þeirra.
2. Hitt aðalerindið, sem Stefnir vill rækja, er það, að
flytja mönnurn sem glöggast og bezt yfirlit um það, sem er
að gerast úti í löndum, hvað þar er aðhafzt, ritað og hugs-
að og hvaða áhugamál og vandamál eru þar á dagskrá.
ísland liggur svo fjarri alfaravegum, að hér er mjög
hætt við einangrun. Jafnvel þótt margt sé nú komið', sem
dregur úr þeirri einangrun, sem áður var, er þó langt frá