Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Page 21

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Page 21
Stefnir] Milli fátæktar og bjargálna. 19 ur á móti koma skuldir vlð út- lönd til frádráttar, ef gjöra á u.pp hreina eign þjóðfélagsins. Framleiðsla og viðskifti. Á frumstigi mannlegra lifnað- arhátta dregur hver fjölskylda fiam lífið á eigin aflaföngum. Sú tilvera hefir ávalt verið af- skaplega fátækleg, á þennan hátt væri óhugsandi að fullnægja þeim fjölbreyttu neyzluþörfum, sem nútíma lifnaðarháttum eru samfara. Efnalegar framfarir og aukin vellíðan byrjaði þá fyrst, er menn hættu að framleiða hver handa sjálfum sér eingöngu, en fóru að framleiða hver handa öðrum. Nú á tímum er það svo, að hver einstaklingur stundar einungis framleiðslu einnar vöru- tegundar, eða mjög fárra. Nauð- synjar sínar útvegar hann sér svo fyrir andvirði framleiðslu sinnar, en það getur hann þó því aðeins, að kaupandi eða neyt- andi finnist að þeirri framleiðslu v hans. Frumskilyrðin fyrir efna- legri velgengni hvers einstak- lings eru því nú á dögum tvö: Hið fyrra, að honum takist að framleiða eitthvað eða hafa eitt- hvað á boðstólum, sem hann ekki þarf beinlínis að eyða eða nota sjálfur. Hið síðara að framleiðsl- an sé þess eðlis, að kaupendur eða neytendur finnist, sem sækj- ast eftir henni og vilja gefa fyr- ir hana sem hæst verð. Þetta lögmál nær nú miklu lengra en til þess, sem í daglegu tali er nefnt framleiðsla, þ. e. sá verknaður, að gjöra nothæfa hluti úr ónothæfum náttúrugæð- um, eða að gjöra fullkomnari og betur nothæfa vöru úr hálfunn- um efnum, það tekur einnig til sérhverrar vinnu, þjónustu eða afreka, sem einstaklingar eða félög geta látið í té. Velgengni verkamannsins byggist á því, að hann láti í té mikla vinnu, og að að honum takist að finna kaup- anda að þeirri vinnu fyrir sem hæst verð, eða með öðrum orð- um að hann vinni sem bezt fyrir aðra. Velgengni kennarans bygg- ist á því, að honum takist vel að kenna öðrum. Velgengni skipa- félags, eins og t. d. Eimskipafé- lagsins, byggist á því, að svo takist að hagá siglingum og flutningsgjöldum, að skiftavin- irnir feli því fremur en öðrum að annast flutninga fyrir sig. Velgengni kaupmannsins bygg- ist á því, að honum takist svo vel með innkaup á vörum og alla til- högun á verzlunarrekstri sínum,

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.