Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Blaðsíða 21
Stefnir]
Milli fátæktar og bjargálna.
19
ur á móti koma skuldir vlð út-
lönd til frádráttar, ef gjöra á
u.pp hreina eign þjóðfélagsins.
Framleiðsla og viðskifti.
Á frumstigi mannlegra lifnað-
arhátta dregur hver fjölskylda
fiam lífið á eigin aflaföngum.
Sú tilvera hefir ávalt verið af-
skaplega fátækleg, á þennan hátt
væri óhugsandi að fullnægja
þeim fjölbreyttu neyzluþörfum,
sem nútíma lifnaðarháttum eru
samfara.
Efnalegar framfarir og aukin
vellíðan byrjaði þá fyrst, er
menn hættu að framleiða hver
handa sjálfum sér eingöngu, en
fóru að framleiða hver handa
öðrum. Nú á tímum er það svo,
að hver einstaklingur stundar
einungis framleiðslu einnar vöru-
tegundar, eða mjög fárra. Nauð-
synjar sínar útvegar hann sér
svo fyrir andvirði framleiðslu
sinnar, en það getur hann þó því
aðeins, að kaupandi eða neyt-
andi finnist að þeirri framleiðslu
v hans. Frumskilyrðin fyrir efna-
legri velgengni hvers einstak-
lings eru því nú á dögum tvö:
Hið fyrra, að honum takist að
framleiða eitthvað eða hafa eitt-
hvað á boðstólum, sem hann ekki
þarf beinlínis að eyða eða nota
sjálfur. Hið síðara að framleiðsl-
an sé þess eðlis, að kaupendur
eða neytendur finnist, sem sækj-
ast eftir henni og vilja gefa fyr-
ir hana sem hæst verð.
Þetta lögmál nær nú miklu
lengra en til þess, sem í daglegu
tali er nefnt framleiðsla, þ. e.
sá verknaður, að gjöra nothæfa
hluti úr ónothæfum náttúrugæð-
um, eða að gjöra fullkomnari og
betur nothæfa vöru úr hálfunn-
um efnum, það tekur einnig til
sérhverrar vinnu, þjónustu eða
afreka, sem einstaklingar eða
félög geta látið í té. Velgengni
verkamannsins byggist á því, að
hann láti í té mikla vinnu, og að
að honum takist að finna kaup-
anda að þeirri vinnu fyrir sem
hæst verð, eða með öðrum orð-
um að hann vinni sem bezt fyrir
aðra. Velgengni kennarans bygg-
ist á því, að honum takist vel að
kenna öðrum. Velgengni skipa-
félags, eins og t. d. Eimskipafé-
lagsins, byggist á því, að svo
takist að hagá siglingum og
flutningsgjöldum, að skiftavin-
irnir feli því fremur en öðrum
að annast flutninga fyrir sig.
Velgengni kaupmannsins bygg-
ist á því, að honum takist svo vel
með innkaup á vörum og alla til-
högun á verzlunarrekstri sínum,