Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Side 24
22
Milli fátæktar og bjargálna.
[Steinir
dregið alveg jafnt úr framleiðslu
landbúnaðarafurða. Skiptjóns-
veður og tollmúrar geta dregið
að jöfnu úr viðskiftum milli
landa.
Samkepni og samvinna.
Sumar af deilunum um dæg-
urmálin grípa beint inn á það
svið efnahagsstarfseminnar, sem
hér hefir verið tekið til athugun-
ar. Nýjar kenningar eru fluttar,
meðal annars um samkepni og
samvinnu, margar þeirra skað-
legar, ef eftir þeim væri breytt,
sumar svo fráleitar, að þær bera
vitni um það eitt, að heimskunni
tekst þó altaf öðru hvoru að sýna
sig í nýrri mynd. Sérstaklega ber
margt af því, sem andstæðingar
frjálsrar samkepni tala og skrifa
um hana, nú síðustu árin, þennan
keim. Hið algengasta er að þeir
vita ekkert hvað frjáls sam-
kepni er, setja einhverja Ijóta hug-
smíð úr sínu eigin höfði í hennar
stað, og hella svo af skálum reiði
sinnar yfir.
Hvað er þá frjáls samkepni, og
hverjum kemur hún að notum?
Islenzka orðið samkepni merkir
þá athöfn, er fleiri en einn keppa
saman að einhverju marki. 1
mörgum tungum Norðurálfunnar
er sama hugtakið táknað með orði
úr latínumáli, sem Jpýðir að hlaupa
saman. Fyrstu ákveðnu myndina
hefir hugtak þetta þá fengið í
kappleikum fornmanna, kapp-
hlaupum og öðrum íþróttaleikum.
Þar var, og er ennþá, samkepni
milli íþróttamannanna.
í hverju lýsti nú samkepnin
sér í þessari upprunalegu merk-
ingu? í því að sérhver keppandi
lagði stund á það á undan úr-
slitaleiknum, að þjálfa sjálfan
sig sem bezt, til þess að geta int
af hendi sem mest afrek, og í
sjálfum leiknum lagði hann
kappið á það, að inna af hendi
hið allra mesta sem orka hans
leyfði. Allir lögðu þeir kapp á
hið samá. Sigurlaunin eða heið-
ursmerkin voru veitt þeim, sem
skaraði fram úr.
Allir, sem gengið hafa í skóla,
þekkja samkepni nemenda um
námið. Hún er framkvæmd á
þann hátt, að hver nemandi reyn-
ir að nema sjálfur sem bezt alt.
það, sem kent er í skólanum, til
þess að verða framarlega í röð
keppinautanna — skólabræðr-
anna eða skólasystranna.
Andstæðingar frjálsrar sam-
kepni lýsa henni eins og hún
væri áflog, þar sem hver kepp-
endanna reynir að rífa annan nið-
ur, bregða fyrir hann fætinum