Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Page 26

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Page 26
24 Milli fátæktar og bjargálna. [Stefnir að hann geti selt og fengið borg- að nægilega mikið af vörum. Ef frjáls samkepni er ríkjandi, þá verður sérhver hinna keppandi kaupmanna að gjöra sér far um að ná viðskiftamönnum með því að selja sem bezta vöru fyrir sem lægst verð, en til þess að geta þetta verður hann fyrst að hafa lagt stund á að afla sér sem beztrar þekkingar á atvinnugrein sinni, þar næst að gjöra sem bezt innkaup, fá sem ódýrastan flutn- ing, og hafa tilkostnað við rekst- ur verzlunar sinnar á alla lund eem minstan. Alt þetta miðar beint að því, að fullnægja á sem beztan hátt þörfum skiftavina hans, kaupendanna, og það gerir kaupendunum engan mismun, þó ástæður kaupmannsins til þess þannig á hverju stigi að standa á verði um hagsmuni þeirra sé ekki aðrar en þær eru — löngun hans til þess að fá handa sér og sínum góðan árangur af sínu starfi. Kaupmaðurinn verður í sínu starfi að lúta framangreindu almennu lögmáli frjálsra við- skifta — leita eftir hagnaði fyrir sjálfan sig með því að fullnægja sem bezt þörfum annara. Hugsum oss nú að frjáls sam- kepni í verzlun komist á ein- hverjum stað ekki að. Ástæðurn- ar geta verið ýmsar, setjum t. d. að bygðarlag sé svo afskekt, að það verði að búa við sína verzlun út af fyrir sig, og svo fáment, að ekki geti þrifist nema ein verzl- un. Eða að allir íbúarnir séu bundnir á skuldaklafa hjá einni verzlun, og hafi ekki lengur frjálsræði til að færa viðskifti sín frá henni. Þá þarf kaupmaður- inn ekki lengur að haga verzl- unarrekstrinum með hagsmuni viðskiftamannanna fyrir aug- um. Sinna hagsmuna vegna þarf hann aðeins að gæta tvenns: Hafa álagninguna nógu mikla, og gæta þess að ástandið breyt- ist ekki svo, að keppinautur komist að. Sjálfsagt má finna dæmi þess, að slík verzlun hafi ekki misnotað aðstöðu sína. En hin dæmin eru því miður marg- falt fleiri, sem sýna, að úr þessu verður vond verzlun, óbærileg viðskiftakúgun fyrir skiftavinina og stundum en ekki ávalt fjár- söfnun hjá verzluninni. Líklega er það helzt tvent, sem glepur þeim mönnum sýn, er ekki kannast við nauðsyn frjálsr- ar samkepni. Annað það, að til eru svæði í strjálbygð lands vors, þar sem hún getur ekki notið sín vegna þrengsla. Viðskiftamagnið í heild má ekki fara niður úr

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.