Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Side 29
Stefnir]
Milli fátæktar og bjargálna.
27
fara á undan viðskiftum. Þetta
hafa þeir atvinnuvegir skilið,
sem komnir eru fram úr land-
búnaðinum. Og nú er vakin alda
úr annari átt til viðreisnar land-
búnaðinum, sem hefir aukning
framleiðslu hans að fyrsta mark-
miði. Sú alda er reist á réttum
skilningi á því, hver er undirstaða
efnalegrar velmegunar, og hún
mun afreka það, sem kaupfélög-
in eftir eðli sínu ekki megna, að
koma landbúnaðinum aftur fram
í fylkingarbrjóst atvinnuveganna
hér á landi.
Stofnskilyrði framleiðslunnar.
Framleiðslan er undanfari við-
skiftanna og hún ern sá eini
grundvöllur, sem unt er að
að byggja efnalega velmegun á.
Þess vegna er gagnlegt að gjöra
sér ljóst, hver eru þau grund-
vallaratriði, sem sérhvert fram-
leiðslufyrirtæki verður að byggj-
ast á. Menn geta fest hugann
við eitthvert framleiðslufyrir-
tæki, sem þeir þekkja, búskap
í sveit, útgerð á fiskibát eða
iðnaðarfyrirtæki.
Þrjú , undirstöðuatriði verða
óhjákvæmilega að vera fyrir
hendi, til þess að framleiðslan
verði rekin með árangri. Þau
eru:
1. Stofnfé (fjármagn).
2. Vinna.
3. Stjóm.
Það er sameiginlegt öllum
þessum þrem liðum, að þeim
fylgir tilkostnaður, og að af-
rakstur framleiðslunnar verður
að geta borið tilkostnaðinn við
þá alla. Það er gagnlegt að at-
huga ofurlítið eðli hvers þessara
liða fyrir sig.
1. Stofnfé atvinnufyrirtækis
er þeir fjármunir, sem fram-
leiðslan er bundin við eða bygg-
ist á. Þannig þarf sveitabýlið
land, helzt með sem mestum
ræktunarmannvirkjum, og með
girðingum, vegum o. s. frv. Þar
næst búpening, hús yfir fólk og
fénað, og svo verkfæri allskon-
ar. Útgerðin þarf skip eða bát,.
veiðarfæri, húsnæði fyrir fólkið
og aflann, land undir þetta, má-
ske lendingarmannvirki o. s. frv.
Iðnaðurinn þarf vinnustofu eða
verksmiðju með vélum og verk-
færum. Auk þess þurfa öll fram-
leiðslutæki að hafa meira eða
minna af efnivöriím, óunnum
eða hálfunnum, á öllum stigum
framleiðslunr.ar, þar á meðal oft
einhverjar birgðir óseldar af eig-
in framleiðslu. Dæmi upp á þetta
eru heybi.’gðir og aðrar fóður-
birgðir bónda, salt og óverkaður