Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Blaðsíða 41
Stefnir]
New York.
39
eru leikhúsin og skemtistaðir
borgarinnar í einni bendu. Hér
«eru Bíó, sem segja sex: Capitol,
alt reist úr marmara, Keiths State
leikhúsið og loks sjálft Para-
mount-leikhúsið í nýrri höll. Bíó-
■salurinn rúmar 14000 manns. Þar
er Amsterdam leikhúsið, þar sem
Florence Ziegfield sýnir hinar
nafnkunnu „Ziegfield Follies“ með
svo miklu skrauti, að annað eins
.þekkist ekki. Og fáein skref þar
■írá er Metropolitan sönghöllin
nafntogaða, Ijótt og leiðinlegt hús.
Þegar dimmir minkar ekki um
xlýrðir, því að þá er kveikt á öll-
um ljósauglýsingupum yfir Times
.Square. Þær loga og bála í öllum
regnbogans litum, skjótast fram
og slokna og breyta nóttinni í
undarlegt Ijósgult hálfrökkur. En
uppi yfir borginni mætir ljóshafið-
þokunni, þessu skýi sem myndast
af andardrætti miljónanna, af vél-
um og götuumferð og gufum frá
hafinu. Hér slær hjarta stórborg-
arinnar.
Frá Times Square til Columbus
Circle er Broadway heimkynni
mótorverksmiðjanna. Hjer eru all-
ir gluggar fullir af glæsilegustu
bifreiðum, og upp eftir húsunum
eins og augað eygir er ekkert ann-
að en bifreiðar og auglýsingar um
bifreiðar.
. Og svo kemur maður að Colum-
bus Circle. Alt plássið er þakið
bifreiðum í stanslausum straum-
um. Uppi á gnæfandi súlu stendur
hann, gamli landkönnuðurinn, og
horfir rólega yfir þetta umferðar-
haf í heimsálfunni, sem hann fann
aftur, eftir að hún hafði verið
týnd öldum saman. Þorfinni karls-
efni myndi og sjálfsagt þykja all-
miklu meira um dýrðir hjer nú
en þegar hann kom til landsins og
sat þar við fáa menn.
Bifreiðastraumurinn flæðir inn
í göturnar í Central Park og svo
áfram, áfram, út í rólegri hverfi
í útjöðrum borgarinnar.
Á Manhattan eynni er
snemma tekið til starfa. Klukkan
6 að morgni streymir fólk að
lestunum, sem f ara inn í miðbæinn.
Fjöldinn treðst og allir stympast
um plássið. Allir vagnar fljóta í
dagblöðum. Times, HeralcL, World,
Graphic, öllum blöðunum ægir
saman . Málaðar stúlkur og tyggj-
andi karlmenn troðast í sætin og
gleypa í sig nýjustu fréttir um
hnefaleika og aðrar 'íþróttir, um
bíó-leikara og danssýningar. Þetta
er helzti tíminn til þess að líta
í blað.
Lestirnar þjóta með braki og
brestum inn á stöðina, lengst niðri