Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Page 46

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Page 46
44 rita talsvert í sjálfsæfisögu sína. Svo var það dag einn í ágúst- mánuði, ákaflega heitan og mollu- legan dag, að ókunnur maður spurði eftir hertoganum. Hann kvaðst bera borinn og barnfædd- ur í Cevennafjöllunum (og það mátti líka heyra á mæli hans), vera kaþólskur og heita La Fleur- ette. Honum var vísað inn til mar- skálksins. Herbergið var einfalt og frem- ur dimt. Monseigneur de Yillav tók komumanni svo alúðlega og með svo hæglátri prúðmensku, að honum hlaut að aukast kjarkur. En samt var honum auðsjáanlega órótt frammi fyrir marskálknum. De Villars var einn af fríðustu mönnum. Hann var á bezta aldri og á hátindi frægðarinnar. í klæða- burði' var hann einn hinn mesti skartsmaður hirðarinnar í Versöl- um, og þó að hann væri hér á af- viknum stað, bjó hann sig á hverj- um degi jafnvandlega eins og þeg- ar hann átti að ganga fyrir hers- höfðingja og konunga í Flandern. La Fleurette stakk mjög í stúf við þetta. Hann var í kaffibrún- um kufli, heimagerðum, hafði klút um hálsinn og hatt á höfði, alveg skrautlausan. Hárið á honum var fremur úfið. Hann var alvarlegur og einbeittur í andliti, og hend- [Stefnir urnar voru magrar en kraftaleg- ar. — „Monseigneur!“ sagði hann, og hristi af sér feimnina. „Eg er einn af þessum fáu kaþólsku mönn- um hér um slóðir, og eg hef orð- ið margt að líða af völdum þess- ara Camisarda, þessara uppreisn- armanna, sem virða hvorki guð né föðurlandið. Hverja refsing yf- irvaldanna hafa þeir margfald- lega verðskuldað, og hverri refs- ing hafa þeir svarað með marg- földum hefndum. Þetta eru þjóf- ar, ræningjar, guðníðingar og for- sprakki þeirra í öllu illu er þessi lyga-höfuðsmaður, sem kallar sig Cavalier!“ „Þetta veit eg alt,“ svaraði de Villars glaðlega. „Eg skil ekkert í því,“ sagði La Fleurette, og skálmaði órólega um gólfið, „að marskálki franska hersins skuli vera boðið annað eins og það, að fást við svona ill- þýði.“ Hann þagnaði skyndilega, eins og hann væri að sækja í sig veðrið. Svo stansaði hann alt í einu frammi fyrir de Villars. „Hafið þér, Monseigneur, nokkra von um að ná þessum Cavalier og koma lögum yfir hann?“ „Monsieur,” svaraði de Villars. „Eg hef alveg vanið mig af að halda nokkuð um þetta eða ann- Cavalier höfuðsmaður.

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.