Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Page 55

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Page 55
FRR ALÞINGI 1929. Svipur þingsins. Ómerkilegt J)ing. í starfslok ávarpa forsetar venjulega þingmenn með nokkr- um orðum, lýsa svip þingsins, þakka samvinnuna og árna þing- Tnönnum góðs gengis. Venjulega er ekki mikið á þessum ræðum forseta að græða, eins og naumast er heldur að vænta. En út af þessu brá að þessu sinni. Alþingi 1929 var svo einstakt þing að ódugnaði, að ómögulegt var fyrir forseta að komast hjá því, að láta þess að einhverju getið. Forseti efri deildar tók þann kostinn, að verja sína deild og reyna að koma öllu yfir á hina deildina. Hann sagði meðal ann- ars: „Þótt starfstími þessa þings sé að ýmissa dómi orðinn full- langur, borinn saman við störf þingsins, mun þjóðin, er hún kynnir sér Alþingistíðindin á sín- um tíma, sannfærast um, að þessi káttv. deild á enga sök á því.“ Forseti sameinaðs þings las skrá um störf þingsins og mælti svo: „Af málaskrá þessari, sem nú var lesin, má sjá, að þau málin, sem fram hafa gengið, eru ekki ýkjamörg talsins, enda varðar jafnan mestu, að þau séu til góðra nytja og sannra þjóðþrifa.“ Þetta eru sönn orð. En svo fór að verða ógreiðara undir fæti, þegar hann fór að leita að nytjamálunum. — Hann nefndi Búnaðarbankann, síldarbræðslustöðina, verkamanna- bústaðina, héraðsskólana og gjald- þrotaskiftin. Mun síðar verða sýnt fram á, hvers konar afreksverk þetta voru. Nei, til þess að finna merku málin, hefði forseti átt að fara í öskuhauginn og Ieita þar meðal þeirra mála, sem þingið afgreiddi ekki. Enda gerði hann það. Hann mælti: „Þá er vert að minnast þess, að á þinginu hafa verið borin fram ýms merk frumvörp, er benda til, að sami vorhugur markar löggjaf- arstarf þingsins og atvinnulíf

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.