Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Síða 59
Stefnir]
Prá Alþingi 1929.
57
ÞaS sýnist því svo, sem alt hafi
strandað á 5. atriðinu.
Vantar menn.
Þetta lélega starf þingsins staf-
ar af því, að þrátt fyrir allan
fjöldann í stjórnarliðinu, vantar
það menn, sem geta int af hendi
gagnlegt starf. Þetta verður að
segjast, þó að það sé hart.
Stjórnin sjálf hefir brugðist.
Enginn ráðherranna er starfhæf-
ur maður í þeirri stöðu. Þrátt
fyrir óteljandi nefndir og aðstoð-
armenn, var það bæði lítið og lé-
legt, sem stjórnin lagði fyrir þing-
ið, eins og bráðum mun sýnt. —
Dómsmálaráðherrann, sem marg-
ir annála fyrir dugnað, er einhver
lélegasti starfsmaður, er í stjórn-
arráðið hefir komið; oftast að
heiman, ýmist í útlöndum, eða á
strandvarnarskipunum eða ríkis-
sjóðsbílunum um allar trissur. Og
þegar hann er í Reykjavík, er
hann ýmist að taka á móti flokks-
bræðrum eða kveðja þá eða ganga
með þeim eða drekka með þeim á
kaffihúsi eða skrifa þeim bréf eða
greinar í Tímann o. s. frv. Hann
verður aldrei hæfur í neitt ráðu-
neyti fyr en verkaskifting er orð-
in svo glögg, að einn ráðherrann
þarf ekki annað að gera en rápa
og róa í flokksmenn. Forsætisráð-
herra hefir sjálfsagt meiri vilja
til stjórnarstarfa, en hvar er get-
an? Um það má spyrja frum-
vörpin, sem frá honum komu.
Yfir ómerkilegu moði frá þess-
um óstarfhæfu mönnum var svo
þingið tafið. Málunum var þar
kastað í nefndir, sem flestar voru
að meiri hluta til skipaðar lítt
starfhæfum mönnum. Árangurinn
sést svo af afrekum þingsins.
Ráðherrarnir höfðu ekki heldur
nokkra stjórn á störfum þingsins.
Þar var verið að sitja síðustu
daga þingsins yfir málum, sem
voru svo skamt á veg komin, að
engin minsta leið var að þau yrði
afgreidd. Jafnvel eftir að efri
deild hafði verið slitið, var neðri
deild að fást við mál, sem hefði
orðið að fara til e. d. til þess að
fá afgreiðslu!
Þingið var stjórnlaust, ráð-
herralaust og ráðlaust.
Þeir sem hafa haldið, að lítið
gerði til, hvernig starfsmönnum
væri á að skipa í stjórn og þingi,
hafa áreiðanlega fengið góða og
þarfa áminning frá þessu síðasta
þingi.
Forseti neðri deildar hefði átt
að vitna í meira en hann gerði af
bréfi Þorvarðs Þórarinssonar
1277. Þar er lýst þingi, sem að
dómi bréfritarans mótast af fálmi