Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Page 84
82
New York.
[Stefnir
giiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
| JRRNVORUDEILD JES ZIMSEN |
hefir nú fyrirliggjandi flest allar járnvörur
Busáhöld — Smíðatól — Málningarvörur —
M Gluggagler — Saum. — Ennfremur Ljáblöð
Brúnspón — Hnoðnagla — Arfagref — Högg-
hvislar — Skóflur — Mjólkurbrúsa (Patent)
Þvottavindur og Þvottarúllur og margt fleira
sem er nýkomið og verðið er lægra en
allsstaðar annarstaðar.
| JRRNVORUDEILD JES ZIMSEN |
Hiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
UM NEW YORK. Frh. frá bls. 40.
að yztu járnbrautarstöðinni, og
fara svo þaðan á hraðlestunum
inn í bæinn.
Klukkan 9 er aðstreyminu að
mestu lokið. Hin mikla vinnuvél
er þá komin á fullan skrið.
Margir ókunnugir halda, að
vinnuhraðinn í skrifstofunum í
New-York sé óskaplegur. Það er
hann nú að vísu, en alls ekki á
yfirborðinu. Það, hve miklu er af-
kastað, stafar af því, hve snildar-
lega allri vinnu er hagað. Am-
eríkumaðurinn veit vel, hvað gera
þarf. Samkepnin er hörð, og alt
verður að gera og nota út í æsar.
En það kemur ekki fram í nein-
um asa eða fumi. Hann hefir altaf
tíma til þess að spjalla stundar-
korn eða gera að gamni sínu ef
tækifæri býðst.
Ameríkumenn kunna allra
manna bezt að búa í hendurnar
á sér. Skrifstofurnar eru full-
komnar vinnustofur með öllum
tækjum og þægindum, sem menn
þekkja, til þess að greiða fyrir
vinnunni. Á hverju borði er ritvél
og sími. Alt sem flytja þarf, bæk-
ur, bögglar eða skjöl, fer svo að
segja sjálft þangað, sem það á