Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Page 86
New York.
[Stefnir
í>4
Siövðtrygglngarfðlag fslands.
Pósthússtræti 2. Reykjavík.
Símar: 542 (skrifstofan), 309 (framkvæmdarstjóri),
254 skrifstofan, brunadeild.
Pósthólf 718. — Símnefni: „INSURANCE".
Aíískonar sjó- og branatryggíngar.
(Hús, ínnbú, vörur o. £1.)
Alíslenzkt sjó- og brunavátryggingarfélag
Hvergí betrí og áreíðanlegrí víðskíftí.
Equitablehúsið og Woolworth stór-
hýsið. Singer og Equitable eru
ófögur hús þó að þau sé stór og
mikilfengleg. En aftur á móti er
Woolworth eitt hið fegursta hús
Húsameisturunum hefir hér tekist
að steypa hina ferlegu bygging í
undurfagurt og einfalt samræmi,
svo að hér rís gotneskt meistara-
verk, fjallhátt og tignarlegt upp
úr steinkössunum í kring. Húsið
rís fyrst 30—40 hæðir, en dregst
þá í turn ákaflega mikinn um sig,
og ofan á 54. hæð hvílir svo turn-
hettan úr grænum kopar. Oft
liggja skýjabeltin um þetta mikla
hús eins og fjallstindur væri.
Eigandi þessa fagra stórhýsis
Woolworth, græddi allan auð sinn
á verslunum, þar sem hver hlutur
kostaði 10 eða 15 cents. Þessar
búðir átti hann um alt, og þær
þóttu svóna þægilegar og hentug-
ar, að eigandinn græddi margar
miljónir. Sjálfur býr hann á 32.
hæð. Þar er loftið hreint og skark-
alinn af götunni heyrist ekki nema
eins og sjávarniður í fjarska.
Frá Wóolworth stórhýsinu er
ekki nema stundarfjórðungs-gang-
ur niður að höfninni, þar sem
stærstu gufuskipafélög heimsins
hafa aðsetur sitt. Og á þessu
svæði eru miðstöðvar heimsverzl-
unarinnar og peningamálanna.
Þar er Wall Street með stórbank-