Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Blaðsíða 89
Stefnir]
New York.
87
og dans, hringekjur og þeysireiðar
og annað þess háttar. Og svo bað-
ar fólkið sig í sjónum í þúsunda
kösum, og er ekki sjerlega geðs-
legur sá „þrifnaður".
Glæsilegasta gatan í New York
er 5. Avenue, „Fifth Avenue“.
Hann hefst neðst (syðst) á Man-
hattan, en verður ekki „fínn“ fyrri
en er hann hefir skorið Broad-
way í Madison Square. En þaðan
og upp að Central Park er hann
alskipaður glæsilegri umferð, er
á engan sinn líka í heimi nema ef
vera skyldi Champs Elysées í
París, að Skrautklæddu og „hæst-
móðins“ fólki. Á þessu svæði eru
allar glæsilegustu klæðnaðarverzl-
anir, óg er sagt, að engum geti
dottið í hug alt það skraut nema
þeim, sem séð hefir. Alt er hér
miðað við þá, sem ekki horfa í
peningana.
Mest er umferðin á fimta
Avenue kl. 2—5 um eftirmiðdag-
inn. Þá gengur stanslaus sexföld
röð af bifreiðum eftir götunni, og
þar má sjá allar dýrustu tevgundir
bifreiða, sem til eru. Engir spor-
vagnar ganga hér, engar lestir
jrfir götum, engir símavírar eða
annað þess háttar. En ljósmerkin
við götuhornin blika í öllum litum
Ætlíð þjer að
gífta yðtir?
Auðvitað hafið þjer hugsað yður
heimilið með öllum nýtísku
þægindum.
Eldhúsið
skemtilegt með öllum nauðsynleg-
um áhöldum, smekklegu postulíni
og fallegu gleri, hnífum, sem ekki
þarf að fægja, enskum plettskeið-
um og göfflum og nýtisku bús-
áhöldum.
Svefnherbergið
með fallegum rúmteppum og
sængurverum, sótthreinsað fiður,
fiðurhelt efni, sem ekki svíkur,
þvottastell og smekklegur og hald-
góður dúkur á gólfi.
Borðstofu
með nýtísku gardinum, fallegum
borðdúk og samstæðum serviett-
um, divan og borðteppi, sauma-
borði og öðrum þægindum.
Gangar og stigar
lagðir haldgóðum tepparenningnm
Hvort heldur þjer eruð vel eða
miður efnum búin, getið þjer
fengið þessa ósk yðar uppfylta,
með því að gera innkaupin i
EDINBORG.