Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Qupperneq 90
88
New York.
[Stefnir
A SKÁKTÖFL úr trje, beini (j
X og horni, FERÐA TÖFL. X
n TAFLBORÐ úr pappa, n
X korki og trje. Q
Q Stærðir, gerðir og verð Q
A við allra hæfi. A
X ZEISSIKON myndavjelar A
Q RODENSTOOK sjónaukar Q
() Haglabyssur, Rifflar, Fjár- Q
Q — byssur, Skotfæri. — Q
Q LÆGST YERÐ. Q
Q Sportvöruhús Reykiavíkur. 8
og suða af allskyns tungumálum
fyllir loftið.
Því að New-York er allra þjóða
borg, heimsborg. Bæði eiga hér
allar þjóðir heima, og svo streym-
ir hingað dæmalaus sægur ferða-
manna úr öllum áttum. Er sagt,
að til New-York komi á ári hverju
fleiri ferðamenn en til Ítalíu og
Sviss beggja samanlagt.
Eftir þessu eru gistihúsin. Þar
eru bæði stærstu og glæsilegustu
gistihús heimsins. Stærst þeirra
allra er Hotel Pennsylvania, sem
hefir 3300 herbergi, og er eins og
stórbær út af fyrir sig. En önnur
gistihús eru enn þá skrautlegri og
dýrari.
Þá eru hin svonefndu „Apart-
ment-Hotel“, íbúða-gistihús. Þar
geta menn búið til langframa, haft
heilar íbúðir stórar eða litlar eftir
vild, átt heimili, en þurfa ekki að
hafa fyrir neinu. Ibúðunum er
haldið hreinum, matur færður o.
s. frv. Þetta kemur sér vel. Því
að ekkert er eins erfitt í New-
York eins og að fá vinnukonur.
Þær eru ekki til.
Nærri má geta, að við hliðina
á öllu skrautinu, eru ljótar
skuggahliðar á borgarlífinu í New-
York. Þó er þetta með nokkuð
öðrum hætti en í stórbæjum Norð-
urálfunnar. Efnahagur er yfirleitt
góður. Hvergi í veröldinni er
betra að fá atvinnu en í New-
York, ef menn kunna að vinna og
vilja vinna. En í sumum hverfum
borgarinnar er þó saman kominn
ærið illur lýður, glæpamenn,
drykkjumenn og ræflar, f járhættu-
spilarar og annað úrhrak veraldar.
Alt er hér í stórum stíl, hið
bezta og versta hvort við annars
hlið; því að alt margfaldast við
þau dæmalausu tækifæri og
þroskaskilyrði sem stórborgin veit-
ir. Og New-York er nú orðin fjöl-
mennasta borg, sem nokkru sinni
hefir til verið á jörðunni.