Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Síða 97
Stefnir]
Cavalier höfuðsmaður.
95
Marteinn Einarsson & Co.
Laugaveg 31.
Vefnað arvöruver sl un.
Reykjavik.
hefir ávalt fjölbreytt úrval af ljereftum, hvítum, fiðurheldum, dúnheld-
um, tvisttauum í svuntur, kjóla, sængur o. s. frv.
Flónelum, hvítum og mislitum. — Morgunkj ólaefnum allskonar.
Lasting og shirting svörtuin og mislitum.
Ermafóður og vasafóður og annað til fata.
UUardúkar mjög fallegir, í svuntur, kjóla o. m. fl.
Kápuefni og fataefni ýmiskonar, úr alull.
Ullar-prjónagarn, fínt. 30 litir.
Tilbúnir fatnaðir og yfirhafnir ýmiskonar, o.fl., o.fl.
Alt með lægsta verði. — Vörurnar sendar gegn póstkröfu um alt land.
Talsími 315. — Simnefni MECCO. — Pósthólf 356.
Cavalier sje prúðmenni þó að
hann hafi ratað í uppreisn og
villutrú.“
„Er það sagt í Versölum?"
spurði, Cavalier og leit upp djarf-
lega.
„Já, það er sagt í Versölum.
Og eg hefi ekkert heyrt um yður,
Cavalier höfuðsmaður, hvorki þar
né annarsstaðar, er setji blett á
hermannsheiður yðar. Eg hefi
meira að segja verið að vona, að
þér yrðuð einn í liðsforingjasveit
minni í vor þegar eg byrja her-
ferðina í Flandern.“
„En hvers vegna komuð þér
hingað?“ muldraði Cavalier þrá-
kelknislega.
„Af því að eg vildi reyna yður,
góði Cavalier minn! Og nú vildi
eg helzt að við færum að binda
enda á þessar samræður, því að
það kemur varla neitt nýtt fram.“
,Svo gekk de Villars út úr her-
berginu jafn rólega og hægt, eins
og hann væri að spóka sig í hirð-
sölunum í Versölum. Hann dró á
sig hanzkana og lagfærði háls-
bindið.
Cavalier gerði ekkert til þess að
hindra það, að andstæðingur hans
færi. Hann lét hann ganga á
undan og fylgdi honum niður
stigagarminn og út í mollulegt
kvöldloftið. Þar benti hann hesta-
sveininum að koma með reiðskjóta
marskálksins.
En hermennirnir í skóginum og