Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1931, Side 8
102
Landið í austri.
[Stefnir
eru 1500 talsins, skýra frá ástand
inu, hver í sínu landi, en sitja
síðan í bezta yfirlæti við veizlu-
höld, skjall og gleðskap á veg-
um ráðstjórnarinnar.
Þau áhrif, sem þing þetta get-
Ur haft á stjórn landsins, eru í
því falin, að þingið velur mið-
nefnd, sem skipuð er 531 full-
trúa, en miðnefndin skiftist aft-
ur í sambandsráð (400 fulltrú-
ar) og þjóðaráð (131 fulltrúi).—
Miðnefndin kemur saman til
skrafs og ráðagerða þriðja hvern
mánuð, en kýs sér starfandi full-
trúaráð skipað 21 manni. —
Þessir fulltrúar, ásamt fram-
kvæmdaráðinu, sem einnig er
skipað af miðnefndinni, ráða öllu
um stjórn Rússlands.
Framkvæmdaráðið skipa 10
meðlimir, auk formanns og vara-
formanns. — Hver þeirra veitir
sinni stjórnardeild forstöðu. —
Fimm þessara stjórnarherra bera
að eins ábyrgð á gjörðum sínum
fyrir sameiginlegri miðstjórn ríkj
anna, nefnilega þeir, sem hafa
umsjón með utanríkismálum, her
og flota, verzluninni, samgöngu-
fnálum og pósti og síma.
Hinir fimm eru einnig ábyrgir
gagnvart stjórnum hinna ein-
stöku ríkja, en þeir hafa með
höndum: fjármálin, atvinnumál-
in, hagskýrslur, umsjón með
bændum og verkamönnum, og
síðast en ekki sízt ,,statistikina“.
Allar þessar deildir starfa í
samráði við ráðstjórnina, en svo
hefir hvert ríki út af fyrir sig,
umsjón með landbúnaði, réttar-
fari, innanlands stjórn, skólamáL
um, heilbrigðismálum og fram-
færslu sjúkra og gamalla.
Utan við og yfir öllum þessum
stjórnardeildum, stendur ein
stofnunin enn, sem nefnd er
GPU, það er leynilögreglan, sem
hefir það verk með höndum, að
koma í veg fyrir allar gagnbylt-
ingar, halda uppi njósnum og
vernda réttarfarið í landinu. Eins
og menn skilja, er verksvið lög-
reglunnar æði víðtækt, og völd
hennar mikil, enda hefir hún
verið illræmd, ekki eingöngu nú
síðustu árin síðan byltingin átti
sér stað, heldur löngu fyr, á tím-
um keisaranna, því að hún hefir
í engu breytzt frá því, sem var.
Eins og menn geta nú séð á þessu
yfirliti, er þetta stjórnarfyrir-
komulag æði margþætt, en því
svo komið fyrir, að allt gengur
sinn gang eftir vélrænu kerfi. —
Utan við stjórnina sjálfa situr
valdamesti maðurinn, Stalin, mað
urinn, sem sér og heyrir allt, sem
ritari miðnefndarinnar, er fser