Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1931, Side 62
156
vinna þarft verk, að fjörga þau
dálítið. En til þess, að köllunin
geti farið þar fram, þyrfti að
fyrirskipa þau sama dag í öllum
hreppum sama kjördæmis, þau
ár, sem kosningar færi fram, og
gæti yfirkjörstjórnin ákveðið
daginn hverju sinni. En félli
aukakosningar á á öðrum tíma
ársins, yrði náttúrlega að hafa
köllunarfundi til þeirra eftir því,
sem við ætti. Og svo eru það
kaupstaðirnir. Þar eru engin
hreppaskil, og þar yrðu því að
vera sérstakir köllunarfundir, á
sama hátt og kjörfundir nú.
Athöfnina sjálfa tel eg sjálf-
sagt að hafa sem líkasta aðal-
kosningu, bæði af einfaldleik og
öryggi. Því þó eg álíti, að tor-
velda ætti nokkuð ltjósendum
kosningarathöfn þann veg, að
hún yrði þeim nokkurt þroska-
próf, þá heyrir það framtíðinni
til. En hér er ekki ætlan mín,
að setja fram aðrar tillögur en
þær, sem fylgja tízkunni, en
eru þó til bóta, að mínu áliti.
Eg álít óþarfa fyrirhöfn og
tímaeyðslu, að senda yfirkjör-
stjórn kjördæmis atkvæðakass-
ana. Undirkjörstjórnum virðist al-
veg eins trúandi til, að telja sam-
an atkvæðin, hverri í sínum
[■Stefnir
hreppi, og yfirkjörstjórn nóg að
fá úrslitatölur.
2. í byrjun þess árs, er almenn-
ar kosningar eiga fram að fara,
skipar ríkisstjórnin yfirkjör-
stjórnir í öllum kjördæmum, fyr-
ir allt kjörtímabilið, er sé 5 ár.
Hver kjörstjórn skal vera heim-
ilisföst í sínu kjördæmi, og sam-
komustaður hennar vera hjá for-
manni, nema annað semjist. Þeg-
ar formaður yfirkjörstjórnar hef-
ir fengið tilkynningar úr öllum
hreppum kjördæmisins um köll-
unarúrslit, kallar hann saman yf'
irkjörstjórn, sem leggur saman
atkvæðatölur hvers frambjóð-
anda úr öllum hreppum kjör-
dæmisins. Sá, sem þá fær hæsta
atkvæðatölu í hverjum flokkir
verður eini frambjóðandi flokks-
ins við þingmannakjör í því kjör-
dæmi, og þarf ekki að senda
frekara framboð. Atkvæðahsesti
utanflokkaframbjóðandi í kjör-
dæminu, verður og frambjóð-
andi þar við þingmannakjör, °g
sömuleiðis hver sá utanflokks-
frambjóðandi annar, er hefn-
hærri atkvæðatölu en nokkuf
flokkur, þegar atkvæðatöhu"
allra frambjóðenda hvers flokks
við köllun, eru lagðar sanmn;
Fleiri frambjóðendur koma e^1
Kjördæmaskipun og kosningar.