Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1931, Side 78

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1931, Side 78
172 Feimnismálin. [Stefnir inn úr hverri hefðahkonu í Rúss- landi, sem hann leit á. Eg ætla, að Ragnheiður Brynjólfsdóttir hafi fallið fyrir þess háttar augnaráði og enn fremur ætla eg, að Daði hafi haft fyrirleikinn, svo sem gengur og gerist um karldýrin í öllum áttum. — Ætla má, að þeir menn, sem eg ræðst nú gegn, svari því, að eg hafi ekki betra vit á þessu en þeir. En til þess liggja þau svör frá minni hálfu, að þetta sorglega vandamál verður þó aldrei ráðið með bláberu klámi. Ef eg hefði fengið þessa bók Kambans til álita, í handriti, myndi mér hafa farið eins og Ey- jólfi lærða á Völlum í Svarfaðar- dal, sem meistari Jón sendi post- illu sína, í handriti, til álita. — Eyjólfur sendi þessi svör: „Mér kemur hún — postillan — fyrir sjónir, svo sem ein dáleg prin- feessa, sem er með valbrá á ann- ari kinninni“. Sagt er, að meist- arann hafi sett hljóðan. Mér virðist „Jómfrú Ragnheið- ur“ vera, af völdum Kambans, með valbrá á annari kinninni. * Eg á brýnt .erindi til kvenþjóð- ar vorrar, áður en eg fer í hátt- inn, þeirrar, sem hefir þýtt fjór- ar bækur um feimnismálin: „Heilsufræði ungra kvenna“, „Heilsufræði hjóna“, „Hjónaást- ir“ og „Ástálíf hjóna“. Tvær þær fyrri eru húshæfar og líklega rétt- mætar, bæði að efni og orðfæri. En engin þörf var eða er né verð- ur á síðari bókunum. Að því leyti sem þær eru ítarlegri en hinar, gengur viðaukinn út á svo blygð- unarlausar lýsingar og umsagnir, að yfirstígúr allt, sem eg hefi heyrt í gangnamannakofum og sjóbúðum. En á þeim stöðum eru feimnismálefni rædd með mestum endemum. Þessum bókum kippir í kyn bókmennta að því leyti, að málið er íslenzkulegt, og lýsingar af nautnum og nautnaaðferðum eru seiðmagnaðar og kitlandi og þess vegna til þess fallnar að jgera sveina og meyjar blygðunar- laus, og þar með fíkin í „for- boðna ávexti“. Eg hefi vitað rosk- ið fólk, sem las þessar bækur, verða fyrir áhrifum við lesturinm sem eru þvílík, sem drukkinn væri meiniblandinn mjöður. Svo djúpt dregur enska frúin fyrir, sem samið hefir bækurnar um Hjóna- ástir og Ástalíf hjóna, að hún viðar að sér nautnaaðferðum sunn- an úr páfadómsríki og austan ur Indlandi — aðferðum, sem eg hefi •aldrei fyrri heyrt nefndar. Mikils þykir nú við þurfa í þessum efn' um. Og allt er þetta gert í nafn1

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.