Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1931, Blaðsíða 92
186
Kviksettur.
['Stefnir
Nýkomnar miklar birgðir af sumarkápum og kjólum. Karl-
mannaföt og frakkar. Drengjafatnaður og ferðaföt. Hvergi
eins mikið úrval af allskonar álnavörum. Sumarkjólatau,
fallegt og ódýrt.
Verzlið þar, sem úrvalið er mest.
Marteinn Einarsson & Oo.
ganga til vinstri eða hægri, og af-
réð loks að ganga til hægri. Auð-
vitað hefði verið alveg eins gam-
an að ganga til vinstri. Allt var
íullt af vinnustúlkum og sendi-
sveinum. Sumar stúlkurnar lágu á
'hnjánum, og voru að þvó útitröpp-
ur eða fægja handföng á hurðum,
sumar voru á harðahlaupum eftir
götunni, eins og nunnur, sem væru
að strjúka. Og enn aðrar sá hann
fyrir innan gluggarúðurnar, við
einhver dularfull störf. — Sendi-
sveinarnir þeyttust inn í húsin og
út úr þeim, ýmist frá vögnum eða
reiðhjólum. Þeir deildu út mat og
öðrum lífsnauðsynjum eins og
Putney væri umsetin borg. Hvað
þetta var allt merkilegt og dá-
samlegt! Hann gekk að blaðabúð
og renndi augunum yfir fyrirsagn-
irnar. „Skilaboð Þýzkalands til
konungsins". „Óskráðu lögin. Nýr
vottur um ómenning Bandaríkj-
anna“ o. s. frv. Hann hafði sér-
staklega gaman af að sjá, hvað
það var, sem Telegraph hafði láðst
að ná í. En ekki langaði hann til
að lesa það. En svo sá hann fjár-
málablaðið Times, og þar var
skráð stóru letri: „Aðalfundur
Cohoons félagsins. Afskaplegar
æsingar". Hann keypti blaðið og
stakk því í vasa sinn, því að hann
vissi, að Alice átti peninga sína í
þessu ölgerðarfélagi, og hélt, að