Sagnir - 01.06.1997, Side 10

Sagnir - 01.06.1997, Side 10
Ernest Renans frá 1882, að tilurð og tilvist þjóða byggist að stórum hluta á því að falsa sögu sína með þvi að gleyma vissum hluta hennar. Að mati Renans geta rannsóknir í sagnfræði beinlínis ógnað þjóðerninu með því að dusta rykið af þeirri staðreynd að uppbygging allra pólitískra kerfa styðst við ofbeldi.38 r A helgum stað Ef leita á skýringa á því af hverju Islend- ingar sættu sig við þá mynd sem dregin var upp af landi og þjóð á margumræddri hátíð þá gegnir staðarvalið þar sennilega lykilhlutverki. Þingvellir eru helgur stað- ur, fullkomið þjóðartákn og hafa engin tengsl við deilur og flokkadrætti í hugum nútíma Islendinga.39 Það er ekki nóg með að þar sé fallegt um að litast heldur er öll náttúra staðarins, eins og Vigdís Finn- bogadóttir orðaði það, „samofin við- burðaríkri sögu og hugurinn leitar til fólksins sem áður byggði landið .. ,“4" Þess háttar minningareitir eru fyrirbæri sem vert er að skoða. Líkt og Renan benti á fyrir meira en hundrað árum hafa ríki tilhneigingu til að koma sér upp op- inberri sögu sem sameinar þegnana. Fólk sem á sameiginlegar minningar er líklegra til að finna til samkenndar en ella. Loka- punkturinn er að sagan og minningar fólksins renni saman í eitt. Annar franskur sagnfræðingur, Pierre Nora, hefur sýnt fram á að sú eining sé á hröðu undan- haldi, a.m.k. í Frakklandi fyrir tilstilli gagnrýninnar sagnfræði. Ástæðuna telur hann vera þá að fólk líti á þjóðernislega sérstöðu sem sjálfsagt mál. Þjóðernið þarf þá ekki lengur að styðjast við innrætingu opinberrar söguskoðunar, sagnfræðin verður að félagsvísindagrein og minning- arnar einkamál hvers og eins.41 Sérstaða íslensks þjóðernis virtist ekki dregin í efa á lýðveldishátíðinni 1994 og gildir þá einu hvort litið er til ræðuhalda helstu ráðamanna þjóðarinnar42 eða þeirra tugþúsunda Islendinga sem ákváðu að skunda á Þingvöll, sinn „fremsta þjóð- minningastað“.43 Nora telur að slíkir stað- ir minninga, eða lieux de mémoire, verði til þegar minningarnar sjálfar glatast sökum þess að framtíðin verður fólki mun hug- stæðari en fortíðin. Það hættir þá að muna hið liðna en setur traust sitt í þeirn efnum á fyrirbæri eins og söfn, hátíðir og minnismerki. Með því er í raun verið að hlutgera söguna, að búa til tákn (lieux de mémoire). Slíkt verður ekki lengur til af sjálfu sér, það er sjaldgæft að eitthvað ger- ist sem verður til þess að styrkja þjóðern- isvitundina og minna þjóðina á að saman eigi hún eitthvað alveg sérstakt. Þess vegna þarf að setja á fót söfn, halda hátíð- ir og reisa minnismerki.44 Drifkrafturinn er sagan sjálf vegna þess að hún ögrar minningunum. Gagnrýnin sagnfræði rænir tákn og staði yfirleitt þessu sérstaka gildi, hún vinnur úr þeim í stað þess að tigna þau.45 Þetta má auð- veldlega heimfæra upp á Þingvelli eins og þeir eru í hugum landsmanna. Að vera minntur á það að þar hafi Islendingar sjálfir dæmt landa sína til drekkinga og hálshöggninga hlýtur að vera ákaflega óþægilegt, ekki síst ef þangað er komið til að upplifa þjóðernistilfinningu. Með hliðsjón af samsetningu dagskrár- innar og þeinr málum sem Alþingi tók fyrir í tilefni dagsins er greinilegt að það er engin sérstök þjóðarvitund eða ein- hugur sem rekur Islendinga dagsins í dag til að halda upp á tímamót af þessu tagi. Hátíðin var þegar allt kemur til alls frem- ur innantóm sýning þar sem umgjörðin skipti mestu. Það þarf því ekki að koma á óvart að einhverjir gestanna sem líka höfðu verið á völlunum fimmtíu árum fyrr létu þau orð falla að þá hefði fólk komið „með eitthvað í hjartanu".46 Helgi Þingvalla sem þjóðartákns nrá vel ráða af atburðum á afmælishátíðinni 1974. Á meðan á ræðuhöldum stóð stilltu nokkrir ungir herstöðvaandstæð- ingar sér upp á barmi Almannagjár og flögguðu borðum með slagorðinu: „Is- land úr NATO - Herinn burt!“ Lög- regla var fengin til að fjarlægja menn og borða við mikinn fognuð mannfjöldans niðri á völlunum.47 Þessi baráttuaðferð virtist því ekki njóta mikillar hylli. Indriði G. Þorsteinsson, framkvæmda- stjóri þjóðhátíðarnefndar, skýrði síðar frá því að „daginn áður eða kvöldið fyrir hátíðina" hefði hann komist á snoðir urn að Fylkingin myndi ef til vill standa fyrir einhverjum aðgerðum. Indriði sagðist hafa ekið til Reykjavíkur og haft samband við einn ráðherrann í ríkisstjórninni, Magnús Kjartansson, og beðið hann að reyna að koma í veg fyrir þetta, þar sem það samrýmdist ekki hátíðahaldinu. Ráðherrann hafi sagst skyldu reyna það, en ekki geta treyst á, að hann gæti komið í veg fyrir þetta. Þá sagði fram- kvæmdastjórinn, að hann hefði rætt málið við lögregluyfirvöld, áður en hann fór til Reykjavíkur. Um það hefði verið rætt, að á meðan á hátíðinni stæði, mundu slíkar aðgerðir ekki sam- rýmast hátíðahaldinu.48 Þetta tiltæki hefur greinilega þótt van- helgun á merkum sögustað gullaldar Is- lendinga. Trúlega hefðu menn líka ein- hvern tíma verið teknir úr umferð fyrir að syngja Maistjörnuna fullum hálsi á Þingvallahátíð en gleymskan hefur séð til þess að slíkt skiptir engu máli i dag. Frá síldarplanimi „Sigló ‘61", Lýðvcldisafma'lid 1994 bar þess merki að lagt liefði verið upp með að Itafa skemmtanagUdi að leiðarljósi og áliyggjur af söguvitimd griiimskólabariia virtust löngu glcymdar. 8 SAGNIR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.