Sagnir - 01.06.1997, Side 50

Sagnir - 01.06.1997, Side 50
íslandsverslunin eftir kenningum kaupskaparstefnunnar Efri myndin sýnir hvernig kaupskaparstefnan, sú hagstjórn scm átti mestu fylgi að fagtta á sautjándu öld, birtist í sinni einföldustu mynd. A Islandi var engin borgarastétt (umdeilt er að tala um aðalsstétt) til að njóta ágóðans af aukinni verslun. Kaupskaparstefnan einkenndist meðal annars af eflingu á framleiðslu iðnvarnings, ekki landbúnaðar, og á öðrum og þriðja áratug sautjándu aldar stóð Kristjánfjórðifyrir átaki þar sem reynt var að ejla handverk í Danmörku og stofna vcrksmiðjur. Ekkert slíkt bar árangur hér á landi (neðri mynd) og hagnaður af verslun ramt allur I vasa danskra kaupmanna. Margar tillögur um viðreisn Islands á átjándu öld gengu út á að flytja citthvað af ágóða kaupskaparsteftumnar til Islands með því að cfla þar viðvcru og ítök kaupmanna. raun eina útsvarið sem kom í hans hlut og tekjurnar voru svo óverulegar að þær hafa sennilega rétt hrokkið fyrir kostnaði af stjórnsýslu á eyjunni.''Verslunarleigan var helsti tekjustofninn og skipti það kon- ung miklu að hún væri há en það fór ekki alltaf saman við eflingu kaupmanna- stéttarinnar. Því reið á að finna hentugt fyrirkomulag á íslandsversluninni þar sem konungur hefði stöðugar tekjur af henni en kaupmenn gætu jafnframt dafnað. Hagsmunum beggja aðila í Kaup- mannahöfn virðist hafa verið borgið með umdæmaverslun þar sem verslunarleigan hækkaði umtalsvert á árunum 1662 til 1700. En ekki gátu allir grætt. Árið 1684 var verðtaxtanum, sem gilti í vöruskipta- versluninni á Islandi, breytt kaupmönnum í vil. Þá tóku óðum að berast fregnir af ófremdarástandi á eyjunni og kveinstafir landsmanna gerðust háværir.1" yérslunarráðið og viðreisn Islands Svo vill til að einmitt á þeim tima var starfrækt svo kallað „commercekolleg- ium“ í Kaupmannahöfn.Verslunarráðið var frá árinu 1670 nokkurs konar ráðu- neyti í rentukammerinu og hafði það meginhlutverk að efla verslun og við- skipd í landinu. Með því fékk konungur yfirráð yfir fleiri sviðum hagstjórnar og til að vera sem best upplýstur var hvatt til þess að fulltrúar hans alls staðar í ríkinu sendu heim nokkurs konar ástandsskýrsl- ur." Árið 1688 bar amtmaðurinn á Islandi, Kristján Múller fram ósk á Alþingi um nákvæma greinargerð á því sem aflaga færi í högum landsmanna. Fyrsti afrakstur starfa verslunarráðsins á Islandi er ritgerð PálsVídalíns lögmanns, Deo, regi,palriae frá árinu 1699 og tveimur árum síðar birtust viðreisnarhugmyndir Arngrims Vídalíns kennara. Deila um fyrirkomulag verslunar við Islandsstrendur hófst af alvöru sama ár og ritgerð Arngríms var lögð fram. Fyrstu flokkadrætdr urðu þegar Alþingi átti að senda fulltrúa á fund konungs til að ræða landsins gagn og nauðsynjar. Aldamótaár- ið hafði ríkt sátt á Alþingi um að senda Lárus Gottrúp lögmann en ári síðar var komið nýtt hljóð í strokkinn. Helstu mektarmenn landsins töldu að ferðin yrði of dýr og að öllum líkindum kæmi ekkert út úr henni.12 Gottrúp hélt engu að síður til Kaup- mannahafnar sumarið 1701. Hann hitti Árna Magnússon þar fljótlega að máli eins og kemur fram í bréfi prófessorsins frá 24. september til Þormóðs Torfasonar sagnaritara: „Lauritz lögmaður frá Islandi er hingað kominn, hef ég talað við hann, þó ei neitt um hans efni, sem ég ei ætla að gjöra."13 Gottrúp lagði skýrslu sína um ástandið á íslandi fyrir Friðrik Qórða þann 26. október.Tillögurnar gengu aðal- lega út á að afnema umdæmaverslunina. Gottrúp taldi að hækkun verslunartaxtans og umdæmaskiptingin hefði rýrt kjör landsmanna og fátæktin í landinu væri bein afleiðing þeirra aðgerða. Ef eitt félag myndi sjá um verslunina, lækkaði verðlag i utanríkisversluninni þar sent leigan skyldi lækkuð eða jafnvel afnumin. Kon- ungur ætti þess í stað að einbeita sér að 48 SAGNIR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.