Sagnir - 01.06.2004, Page 14

Sagnir - 01.06.2004, Page 14
HINN GÖFUGl UPPRUNIÍSLENDINGA Margir íslendingar hafa séð forfeður sína í rómantísku Ijósi sem hetjur og hreystimenni ■' \ r ' J ú&lfí'Áí- -■)' •’a' á \ »5 ,i*w ] • ™ I ; Jj 'r ' y j y., sa i .*t-y- , i fin ^ ’Sr ' j -vvn 11 V-’: 1 Jft' jf J | i Jl r ^LiiH iHflPicr-:/ í' .& IfM ■ jggj. 1 1 - JlfWji Jy ?| ||| w\ 1. 'i l’ |LÍ1 M -tftjjP'y gAL' p: 1 ÍM | ■ m \ I a J * 0 f JHHr BB' 1, • H: 1 i Jr Mi m. á K i H 1 ■ p \ * * jjp I 1 m/p þegar veruleikinn fjarlægist þær hugmyndir sem þeir gera sér um heiminn."41 Þetta leiðir af sér að þeir sem ekki bera hin augljósu einkenni göfugs norræns uppruna hljóti því að vera mengaðir af er- lendum áhrifum sunnar úr álfunni: Halda skyldi Þjóðinni og tungunni „hreinum.“ ... Vegna dýrmætr- ar sameignar sinnar, þ.e. hreins kynstofns, hreinnar tungu og einn- ar stéttar, átti íslensk þjóð að hafa allar forsendur til að standa sam- einuð í öllum málum.4- Af því sem hér hefur verið rakið má sjá að íslensk þjóðernis- hyggja í upphafi 20. aldar virðist ekki á neinn hátt frábrugðin þjóð- ernishyggju eins og hún birtist víða annars staðar eða almennum skilgreiningum á henni. Það á þó einkum við þjóðernishyggju smá- þjóða: Þótt íslenskt þjóðfélag stæði vanmáttugt gagnvart framfarahyggju nútímans átti þjóðin sér ríka bókmenntaarfleifð og tungu sem hafði varðveist lítt breytt í gegnum aldirnar. Þessar aðstæður voru hinn ákjósanlegasti jarðvegur fyrir mikilmennskuhugmyndir byggðar á minnimáttarkennd.43 Mikilmennskuhugmyndir birtast enn í þeirri hugsun að þjóðin, sem menn telja sig tilheyra, sé betri, gáfaðri, fallegri, tali betra og göfugra tungumál o.s.frv. heldur en aðrar þjóðir. Minnimáttar- kennd íslenskrar þjóðernishyggju birtist ennþá í því að enn eigum „við“ sterkustu karlmennina og fallegustu konurnar. ÞÉR LANDNEMAR HETJUR AF KONUNGAKYNI Hugmyndir þjóðernishyggjunnar má að sjálfsögðu rekja lengra aftur í tímann en hér hefur verið gert. Hugmyndin um hið hreina fagra tungumál, íslenskuna, varð áberandi á 19. öld og má jafnvel rekja ennþá lengra aftur eða allt til rita Arngríms lærða. Mál- hreinsunarmenn gengu svo fram á vígvöllin og hreinsuðu tungu- málið af erlendum „slæmum“ áhrifum og skáru úr um hvað væri rétt og hvað rangt. Að sjálfsögðu var svo íslenskan talin „eðal- tungumál" og æðri öðrum tungumálum.44 Gat það því ekki alveg eins átt við um mannfólkið? Hugmyndin um hinn göfuga uppruna virðist þó ekki vera notuð af þjóðfrelsisbaráttumönnum sem vopn í baráttunni fyrr en í upp- hafi 20. aldar. Að vísu var erfiðara í framkvæmd að hreinsa íslensku þjóðina af hinum slæmu erlendu áhrifum þótt ákveðnar hugmyndir hafi kom- ið fram í þá átt, þ.e. hugmyndir mannkynbótastefnunnar. Aftur á móti rnátti hamra á hinum göfuga uppruna þjóðarinnar. Upp- runann var hægt að líta á sem óbreytanlega staðreynd sem varð því jafn göfugur kynslóðum saman. Með ættfræðinni fá menn svo upp í hendurnar skjalfesta sönnun á göfugum uppruna. I ættfræði skiptir talsverðu máli að finna merki- lega forfeður og halda nafni þeirra á lofti. Ættfræðin gegnir auk þess skilgreiningarhlutverki, þ.e.a.s. samkvæmt skilgreiningu mannfræðinnar, að finna út hverjum menn mega giftast og eiga af- kvæmi með og hverjum ekki. Mismunandi reglur gilda um það í hinum ólíku samfélögum hvernig fólk má eða má ekki vera skylt maka sínum. Einnig tengist ættfræðin þeirri þörf mannsins að skil- greina sjálfan sig. Ef honum tekst nú með hjálp ættfræðinnar að finna göfuga forfeður, þá gerir það hann merkilegri en annað fólk. Ef við færum nú þetta yfir á hópinn sem maðurinn telur sig tilheyra eða í þessu tilfelli hina svokölluðu íslensku þjóð þá gerir það hana einnig göfugri og merkilegri en aðrar þjóðir einmitt vegna hins göf- uga uppruna. Islendingasögurnar, sem með réttu eru enn taldar bókmenntir á heimsmælikvarða, voru óræk skráð og skjalfest sönnun á fornri frægð og göfugum uppruna fbúanna. Hetjur sagnanna, þeir Gissur og Geir, Gunnar og Héðinn og Njáll, voru forfeður íslendinga sem hver maður gat rakið ættir sínar til. Þeir voru síðan, samkvæmt ætt- færslum íslendingasagnanna, komnir af bestu og mætustu höfð- ingjum Noregs og írlands. Ekki mátti það minna vera en að þeir væru síðan sumir ættfærðir til konunga og drottninga sem þýðir að samkvæmt mýtunni voru íslendingar því eðalbornir og ættgöfugir hvar sem á var litið. Það sönnuðu ísiendingasögumar svo ekki varð um villst. í því sambandi má benda á að Eiður Kvaran mannfræðingur kom fram með þá hugmynd á millistríðsárunum, sem voru blómatími þessara hugmynda, að jafnvel bókmenntaarfurinn ætti sér sínar genetísku ástæður. Fenginn að erfðum ef svo má segja. Út frá því gekk einnig þýski forleggjarinn Diederichs sem gaf út íslendinga- sögurnar á þýsku í upphafi 20. aldar.45 Sömu hugmynd má einnig sjá í skrifum þýskra og ítalskra tímarita háskólamanna á árum seinni heimsstyrjaldarinnar.4'’ Hugmyndin um hina hreinræktuðu einsleitu þjóð af göfugum uppruna virðist því augljóslega tilbúningur. Hugmyndin tengist sjálfstæðisbaráttunni undir merkjum þjóðernishyggjunnar og til- heyrir þeirri hugmyndafræði. I raun og veru er fátt sem bendir til þess að íslensk þjóðernisbarátta hafi verið hugmyndafræðilega frá- brugðin þjóðernisbaráttu annarra smáþjóða Evrópu. Hugmyndin um hinn göfuga uppruna er mýta sem fengin var að láni úr hug- myndabanka þjóðernisstefnunnar. Þá má í framhaldi af því spyrja þeirrar spurningar hvort íslendingar hafi frá upphafi verið mikið annað en sami hrærigrauturinn og ýmsar aðrar þjóðir Evrópu? 12 SAGNIR 24 ÁRGANGUR 04 H I N N U P P R U N SLENDINGA
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.