Sagnir - 01.06.2004, Síða 90

Sagnir - 01.06.2004, Síða 90
,JEG ER FÆDD í CANADA OG ÞVi CANADtSK AÐ ÆIT... og hvort þau hafi gifst, hversu mörg börn þau hafi eignast og þess háttar. Soffía var greinilega mjög viljug til að segja þeim allt sem hún vissi um fólkið sem þau báðu um fréttir af. Ættfræðin vafðist ekki fyrir Soffíu eða systrunum fremur en mörgum íslendingnum á þessum tíma. Á íslandi var það náttúran sem þær þráðu að upplifa en þær hafa fengið í vöggugjöf einhverja virðingu fyrir íslenskri náttúru sem þær gátu engan veginn gert sér raunverulega grein fyrir hvernig var. Sömuleiðis fengu þær í vöggugjöf þessa þrá til að vita allt um skyldfólk sitt og þær vildu kynnast ættmennum sínum á Islandi og ég tel það vera forsenduna fyrir því að þær hófu að skrifa Soff- íu[asdf8]. Þær sáu ísland sem töfraland í rómantískum ljóma og „Jeg er fædd í Canada og því Canadísk að ætt en þegar útlent fólk sper mig kvaða þjóðar jeg er þá seigi jeg ætíð ís- lensk og er montin af því...“47 þær sögðu það nú oft beint út: við skulum altaf skrifast á góða mín ég hef svo mikið gaman af því. ísland er eins og einhvað töfra land fyrir mig, og þú eins og ein- hver töfra mær sem situr þar, þú getur ekki ímindað þér hvað ég hefði gaman að geta komið heim til Islands og skoða landið, og sjeð miðnætur sólina það hlítur þó að vera dírðleg sjón að sjá sól á nóttinni...43 Þær freistuðu þess að sjá Island fyrir sér í huganum og ímynduðu sér landið útfrá því sem þær þekktu: „Jeg er opt að reina að sjá Is- land í huga mínum sjóin og Hólar og hæðar, sjórin er græn á lit er ekki svo. Vatnið okkar er víst ekki mikið við að sjá sjó með hvít fyssandi bárum...“44 Stefanía óskaði þess stundum að bréfin gætu talað svo þau gætu sagt henni það sem fyrir augu hafi borið á leið- inni frá íslandi.45 Það er greinilegt að íslandi var haldið lifandi fyrir afkomendum Vesturfaranna á margan hátt. Hér ætla ég að kynna til sögunnar hugtak sem hefur mikið verið í umræðunni í innflytjendarannsókn- um undanfarið[asdf9]. Það er „transnational" hugtakið. Þessu hugtaki er ætlað að lýsa tengslunum milli gamla landsins og hins nýja. Transnational-hugtakið gerir ráð fyrir að sterk tengsl haldist milli gamla og nýja landsins. Innflytjendur taka reynslu sína og vanda- mál með til hins nýja lands og þar bíða gömul vandamál nýrra úr- lausna.46 Þessar hugmyndir gera ráð fyrir að innflytjandinn sé alltaf með annan fótinn í gamla landinu. Reynsla hans og sjálfs- mynd getur ekki útilokað upprunann. Þetta má segja um systurnar Ragnheiði og Stefaníu. Þær fá á æskuárum reynslu foreldra sinna frá gamla landinu. Foreldrar þeirra koma frá íslandi, eru þar fædd og uppalin og það er of stór hluti af þeirra sjálfsmynd til að það geti einfaldlega hætt að vera til. Þessa sjálfsmynd þeirra gefa þau svo af sér til barna sinna. Börnin komast ekki hjá því að fá einhvern hluta af sjálfsmynd foreldra sinna í arf. Ekki er hægt að útiloka þá reynslu sem við verðum fyrir í æsku sem hluta af sjálfsmyndinni. Það sést berlega á bréfum stúlknanna að hið íslenska þjóðerni þeirra er lifandi. Jafn lifandi og hið kanadíska. Þær geta hvorugt útilokað. Þær eru bæði íslendingar og Kanadabúar. Eða með orð- um Ragnheiðar: „Jeg er fædd í Canada og því Canadísk að ætt en þegar útlent fólk sper mig kvaða þjóðar jeg er þá seigi jeg ætíð íslensk og er montin af því...“47 LOKAORÐ Samband þeirra Soffíu og Stefaníu varð mjög náið þrátt fyrir fjar- lægðina á milli þeirra og það að þær hittust aldrei. Með þeim tókst sterk vinátta sem ég tel að hafi haldist allt til dauðadags. Það er augljóst að systurnar höfðu mjög sterk tengsl og sterkar til- finningar til íslands. Þær voru báðar fæddar í Kanada og aldrei litið ísland augum en þær ólust upp við sögur af íslandi. Þessar sögur innihéldu reynsluheim foreldra þeirra og annarra íslenskra skyld- menna. Þær lýstu því hvernig börnin röðuðu sér öll í kringum ömmu sína og grátbáðu hana um að segja sér fleiri sögur af íslandi. Stúlkurnar höfðu greinilega frá barnæsku hlustað á stórbrotnar lýs- ingar á náttúru og landslagi íslands vegna þess að þær voru sífellt að tala um hversu mikið þær langaði til að sjá fjöllin og sjóinn. Þær sáu ísland sveipað ævintýraljóma og reyndu að skapa sér mynd af því í huganum en þær gátu í rauninni ekki fullkomnað þá mynd vegna þess að þær höfðu aldrei upplifað hið raunverulega ísland. Ég held því fram að stúlkurnar hafi frekar talið sig vera kanadísk- ar en íslenskar. Þær upplifðu ísland í gegnum sögur og ímyndaðar myndir en Kanada var raunverulegt fyrir þeim. Þær unnu kanadískri náttúru eins og foreldrar þeirra unnu íslenskri náttúru. Ragnheiður sagðist meira að segja aldrei geta ímyndað sér að yfir- gefa heimahagana fyrir fullt og allt. Þrátt fyrir að þær töluðu báðar íslensku þá var ísland ekki raunverulegt fyrir þeim. Ef þjóðerni mótast af sameiginlegum sögulegum minningum þá tel ég að auð- veldlega megi halda því fram að sögulegar minningar Stefaníu og Ragnheiðar tengist meira Kanada heldur en Islandi. Foreldrar þeirra voru landnemar sem komu frá Islandi en landnemarnir sköpuðu sína eigin sögu í nýju landi og þeirri sögu er mikið flaggað enn í dag. Landnemunum er hampað og haldið er uppá afmæli landnámsins. Landnemar hefðu þó aldrei orðið landnemar nema vegna þess að þeir komu frá öðru landi og numu land á nýjum stað. Börn þeirra ólust upp í hinu nýja landi og hlutu þau að skapa sína eigin reynslu þar sem þau þekktu ekki af eigin raun reynslu foreldr- anna. Systurnar Ragnheiður og Stefanía voru „transnational". Foreldr- ar þeirra voru íslendingar af lífi og sál og þau lærðu t.d. aldrei ensku. Sjálfar voru systurnar fæddar og aldar upp í Kanada en á ís- lensku heimili. Þeirra sjálfsmynd og þeirra þjóðerni mótast því bæði af íslenskum þáttum og kanadískum. Þær héldu tengslunum við Island í gegnum bréfin og slepptu aldrei takinu af íslandi og þeim íslenska arfi sem þær fengu frá foreldrum sínum þrátt fyrir að þær byggju alltaf í Kanada og kæmu aldrei til íslands. Lokaorðin hér hljóta því að vera þau að systurnar Ragnheiður og Stefanía Þórðardætur voru hvorki íslenskar né kanadískar. Þær hljóta að hafa verið bæði[asdflO]. Það má eiginlega segja það sama urn þær og fólk sem á foreldra af sitthvorum upprunanum. Það er aldrei hægt að sleppa uppruna annars foreldrisins. Börnin fá alltaf hvort tveggja í arf þó svo að annað þjóðernið verði eflaust oft ríkj- andi[asdfll]. Þá verða bæði þjóðernin hluti af sjálfsmynd barnsins. Tiivísanír 1 Kristinn Kristmundsson og Þórleifur Bjarnason, Sléttuhreppur. Fyrrum Aðalvíkursveit. Byggð og búendur. Átthagafélag Sléttuhrepps, 1971, bls. 9 í formála. 2 Sigurður G. Magnússon, Menntun, ást og sorg. Einsögurannsókn á íslensku sveitasamfélagi 19. og 20. aldar. Reykjavík, 1997, bls. 19. 3 Sigurður G. Magnússon, „Einvœðing sögunnar", Molar og mygla. Um einsögu og glataðan tíma, rit- stj. Ólafur Rastrick og Valdimar Tr. Hafstein, Reykjavík, 2000, bls. 54. 4 Sama heimild, bls. 55. 5 Sama heimild, bls. 52. 6 Kristinn Kristmundsson og Þórleifur Bjarnason, Sléttuhreppur, bls. 168. Einnig kemur það oft fram 88 SAGNIR 24 ÁRGANGUR 04 EINSÖGURANNSÓKN Á TVEGGJA VESTUR SLENSKRA
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.