Félagsbréf - 01.01.1957, Síða 52
iA UKABÓK Almenna bókafélagsins að þessu sinni er eftir einn
kunnasta og að margra hyggju einn gáfaðasta af nútíma rithöf-
undum Breta, Graham Greene. Hann er fæddur árið 1904 og lærð-
ur í Oxford. Hann hefur löngum fengizt við blaðamennsku jafnliliða
ritstörfum og starfað m. a. við Times í Lundúnum og Spectator.
Fyrsta skáldsaga hans, The Man Witliin, kom út árið 1929, og síð-
an má segja, að hver bókin hafi rekið aðra, skáldsögur, smásögur,
bamasögur, ferðasögur og skemmtisögur. Beztu bækur lians eru tald-
ar The Power and the Glory (1940), The Heart of the Matter (1948)
og The Quiet American (1955), en það er sú saga, sem nú birtist á
íslenzku. Eru þær allar taldar í flokki beztu skáldsagna í bókmennt-
um síðari ára.
Graham Greene ritar einhvers staðar, að með dauða Henry J ames hafi
enska skáldsagan misst trúarkennd sína, og með trúarkenndinni hafi
glatazt tilfinningin fyrir mikilvægi mannlegrar breytni. Og í grein
um franska höfundinn Fran^ois Mauriac telur hann honum meðal
margs annars mjög til gildis fyrir enska lesendur, að persónur lians
séu gæddar festu og mikilvægi fólks, sem hefur sál til að bjarga eða