Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Blaðsíða 39

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Blaðsíða 39
NÁTTÚ RUHAMFARIR hættusvæði vegna yfirvofandi snjó- flóðahættu. Þetta á við í þeirn tilvik- um þegar talið er hagkvæmara að flytja byggð en að fara út í aðrar varnaraðgerðir til að tryggja öryggi íbúa, því eftir sem áður verður meg- inmarkmið laganna að verja byggð til að tryggja öryggi íbúa gagnvart ofanflóðum. Þessar reglur heimila mismunandi tilhögun á greiðslum eftir því hvort húseigandi, sem ekki á kost á að kaupa sambærilega húseign í sveit- arfélaginu, hyggst byggja að nýju í sveitarfélaginu eða hvort hann hyggur á brottflutning. Áherslubreytingar Samhliða fyrmefndum lagabreyt- inguin hafa umhverfisráðuneytið og Veðurstofa Islands lagt grunn að tilteknum forgangsatriðum í fram- kværnd laganna sem ástæða er til að nefna. Starfslið Veðurstofu Islands hefur verið styrkt verulega á sviði snjó- flóðavarna, einkum hvað varðar rannsóknir. Fyrst um sinn verður lögð höfuðáhersla á ítarlegri gagna- öflun vegna snjóflóða sem fallið hafa undanfama áratugi hér á landi, auk þess sent samvinna við erlendar rannsóknarstofnanir á þessu sviði verður efld eftir fremsta megni. Rannsóknimar snúa fyrst og fremst að mati á snjóflóðahættu en einnig verður lögð áhersla á að afla þekk- ingar af reynslu manna erlendis af gerð vamarvirkja gegn snjóflóðum, en hér á landi er enn afar lítil reynsla fyrir hendi á því sviði. Þar sem ljóst er að endurskoðun hættumats mun óhjákvæmilega taka- nokkurn tíma, jafnvel nokkur ár, hefur umhverfisráðuneytið lagt áherslu á að samhliða rannsóknum og frekari þekkingaröflun á snjó- flóðum hér á landi verði hafist handa við að aðstoða sveitarfélög við að undirbúa aðgerðir til þess að verja byggð þar sem með hag- kvæmum hætti má koma fyrir varn- arvirkjum, hvort sem það eru vam- arvirki við byggð eða varnarvirki við upptök snjóflóða. Hefur ráðu- neytið falið Veðurstofu íslands að höfðu samráði við þau sveitarfélög, sem búa við snjóflóðahættu í byggð, að undirbúa með þátttöku erlendra sérfræðinga frumúttekt á möguleg- um snjóflóðavörnum í umræddum sveitarfélögum. Vonast er til að þessi athugun geti hafist nú á vormánuðunum og að hægt verði að ljúka henni um mitt næsta sumar. Þess er vænst að þessi úttekt muni í fyrsta lagi gefa sveitar- félögunum mikilvægar upplýsingar um líklega varnarkosti, í öðru lagi leiða til gagnlegra skoðanaskipta og framtíðartengsla milli innlendra og erlendra sérfræðinga og í þriðja lagi gefa grófa vísbendingu um kostnað sem einstök sveitarfélög og ríkið (Ofanflóðasjóður) standa frammi fyrir til þess að tryggja íbúum við- komandi sveitarfélaga viðunandi ör- yggi gagnvart ofanflóðum. Þar til lokið verður við að byggja viðeigandi varnarvirki í einstökum sveitarfélögum verður leitast við að tryggja öryggi íbúa með rýmingu húsa í samræmi við þær forsendur sem settar hafa verið við gerð áður- nefndra rýmingarkorta. Frumkvæöi sveitarfélaga Samkvæmt lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum er frumkvæði að gerð vamarvirkja eft- ir sem áður í höndum sveitarfélaga. Ofanflóðasjóður, sem nú er í umsjá umhverfisráðuneytisins, getur styrkt slíkar framkvæmdir allt að 90% af heildarstofnkostnaði og með 60% af viðhaldskostnaði. Umhverfisráð- herra hefur þegar ákveðið að Ofan- flóðasjóður muni fyrst um sinn að- eins styrkja framkvæmdir sem miða að því að verja íbúðabyggð á hættu- svæðum. Þá hefur umhverfisráð- herra nýlega staðfest reglur um vamir gegn snjóflóðum og skriðu- föllum þar sem fjallað er nánar um þátttöku Ofanflóðasjóðs í kostnaði við vamir gegn ofanflóðum. Ofanflóðanefnd, skipuð þremur fulltrúum umhverfisráðherra, fé- lagsmálaráðherra og Sambands ís- lenska sveitarfélaga, er ráðherra til ráðuneytis um greiðslu á kostnaði við gerð og viðhald varnarvirkja. Nefndin hefur að undanförnu nt.a. fjallað um samskiptareglur sjóðsins og sveitarfélaganna vegna þessara framkvæmda. Þótt þeirri umfjöllun sé ekki lokið er ljóst að hér er í flestum tilvikum um að ræða afar kostnaðarsamar framkvæmdir og því allra hagur að gætt sé aðhalds og hagkvæmni við allan undirbún- ing og framkvæmd verka. Mun sjóðurinn því væntanlega gera þá kröfu að staðið verði að undirbún- ingsvinnu, hönnun og framkvæmd- urn samkvæmt ákveðnum reglum sem settar verða og að sem stærstur hluti verkefna sem hann styrkir verði boðinn út. Markmiðið með þeim rannsókn- um og athugunum á varnarkostum, sem Veðurstofa Islands er nú með í undirbúningi, er fyrst og fremst að aðstoða sveitarfélög við að taka það frumkvæði sem þeim er ætlað sam- kvæmt lögum. Þá er einnig afar mikilvægt að stjórnvöld (Ofanflóða- sjóður) fái sem fyrst glögga sýn yfir heildarumfang þessa viðamikla verkefnis. Lokaoró Þær breytingar sem gerðar hafa verið á stjómsýslufyrirkomulagi of- anflóðavama setja nýjar skyldur og ný verkefni á herðar umhverfisráðu- neytinu og Veðurstofu Islands. Samt sem áður er vandinn hjá sveit- arfélögunum sem þurfa að búa við vá af völdum ofanflóða. Ljóst er að það mun bæði taka all- nokkurn tíma og kosta verulegt fé að tryggja öllum íbúum þessara sveitarfélaga viðunandi öryggi og á sama tíma draga úr óþægindum íbúa vegna rýmingar húsa. Því er mikilvægt að náið samstarf verði með sveitarfélögunum og rík- isvaldinu um þetta verkefni og að góð samstaða náist um þær frumað- gerðir sem nú verður gripið til. Ráðuneytið mun kappkosta að svo verði þannig að sem fyrst megi ná meginmarkmiðum laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum. 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.