Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Page 48

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Page 48
ALMENNINGSBÓKASÖFN Samstarf almenningsbókasafna og samstarf sveitarstjórna um málefni almenningsbókasafna Marta Hildur Richter forstöðumaður, Héraðsbókasafhi Kjósarsýslu, og Pálína Magnúsdóttir bœjarbókavörður, Bókasafni Seltjamarness Lestrarfélögin voru forver- ar almenningsbókasafna í dag. Þau voru stofnuð af stór- hug þess fólks sem þyrsti í bækur til fróðleiks og skemmtunar. Saga þeirra er merkileg og hluti af sögu þjóðarinnar, en verður ekki rakin hér. En tímarnir eru breyttir. Samgöngur og tækni hafa gjörbreyst og auk þess þarfir og kröfur nútímasamfélags til almenningsbókasafna. Því er tímabært að endurskoða og stokka upp núverandi heildarskipulag sem er verra en ekkert. Lögin um almenningsbókasöfn frá 1976 og reglugerðin frá 1978 eru löngu orðin úrelt og standa í raun í vegi fyrir eðlilegri framþróun. Þrjár tilraunir hafa verið gerðar til að endurskoða lög- in. Á árinu 1991 náðist loks samstaða um drög að lögum. Stuttu síðar urðu stjórnar- skipti og málið dagaði uppi. Nú er að sjá hvað gerist hjá enn nýjurn menntamálaráð- herra. I landinu eru 170 sveitar- félög og álíka mörg almenn- ingsbókasöfn. Flest eru þau lítil, sum vart nema nafnið eitt og önnur teljast fremur safn bóka með einhverja út- lánastarfsemi en bókasöfn eins og við viljum skilgreina bókasöfn nú. í 9. grein reglugerðarinnar frá 1978 er hlutverk miðsafna skilgreint í sex liðum. Meiri hluti þessara miðsafna, sem eru 44 talsins skv. þessari skilgreiningu, stendur ekki undir því hlutverki sem þeim er ætlað. Ástæðurnar eru augljósar: Of lítið eða óhentugt hús- næði, stuttur afgreiðslutími, peningaskortur, engin tækni- væðing eða aðgangur að gagnagrunnum, lítill eða enginn tækjakostur, jafnvel engin spjaldskrá, lítill safnkostur, skortur á faglærðu starfsfólki og síðast en ekki síst oft skilningsleysi og áhugaleysi ráðamanna á málinu. Ungir bókasafnsnotendur hlýða á „Kattadúettinn" i Bókasafni Mosfellsbæjar.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.