Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Qupperneq 12
SAMEINING SVEITARFÉLAGA
- Félagsleg ráögjöf
og fjárhagsaöstoö
- Málefni barna, ung-
menna og aldraöra
- Barnaverndarmál
- Málefni fatlaöra
- Jafnréttismál
- Húsnæöismál
-Atvinnumál, skráning
atvinnulausra og
vinnumiölun
- Áfengis- og vímuefnavarnir
- Heilsugæsla (sjúkrahús)
L Gæsluvellir og
leikvellir
- Leikskóli
- Grunnskóli
-Tónskóli
- Framhaldsskóli
- íþrótta- og æskulýösmál
þ.m.t. íþróttamannvirki
- Félagsmiöstöö
-Vinnuskóli
-Safnamál þ.m.t. bóka-
söfn, lista- og byggöasöfn
- Húsafriöun
—Vinabæjasamskipti
—Feröamál og
kynningarstarf
- Hátföahöld
—Félagsheimili
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Ferlimál fatlaöra
- Fasteignamat
- Umferöarmál
- Umhverfismál
- Almenningsgaröar
og útivist
- Sorp- og frárennslismál
- Heilbrigöiseftirlitsmál
- Almannavarnir
- Brunamál
- Rekstur veitna
- Búfjáreftirlit
- Dýraeftirlit
- Refa- og minkaeyöing
Meindýraeyöing
- Fjallskil
- Fjárgiröingar
- Verklegar framkvæmdir
*- Eignaumsjón
- Vigtun sjávarafla
- Umferöarstjórn hafnar
- Uppbygging hafnarsvæöa
- Umsjón hafnarsvæöis
verðum Vestfjörðum og kom hún
saman til fyrsta fundar síns í byrjun
febrúar 1994. Þá lá fyrir jákvæð af-
staða til málsins frá hreppsnefndum
Þingeyrar- og Mýrahrepps til að
taka þátt í sameiningartilraunum.
Bolungarvíkurkaupstaður vildi taka
þátt í umræðunum með skilyrðum
en Súðavíkurhreppur hafnaði þátt-
töku. A fundinum var samþykkt að
Þingeyrar- og Mýrahreppur tækju
þátt í umræðunum en ekki var fallist
á skilyrði Bolungarvíkurkaupstaðar
til þátttöku í þeim. Markviss vinna
hófst þá þegar enda þótt ljóst væri
að ekki yrði möguleiki til samein-
ingar við næstu sveitarstjómarkosn-
ingar, sem fram áttu að fara í maí
1994. M.a. fyrir tilstuðlan félags-
málaráðuneytisins var fenginn utan-
aðkomandi aðili til að athuga íjár-
mál sveitarfélaganna og gera árs-
reikninga þeirra samanburðarhæfa.
Að loknum sveitarstjórnarkosn-
ingum 1994 kom að hluta til nýtt
fólk í samstarfsnefndina en áfram
var haldið á þeirri braut sent þegar
hafði verið mörkuð. Settir voru á
stofn stýrihópar sem m.a. gerðu út-
tekt á og fjölluðu um:
1. Yfirstjórn, þ.e. stjómskipulag,
fjármál, sameiningu og samskipti
stofnana sveitarfélaganna.
2. Félagsmál, þ.e. félagsþjónustu,
heilbrigðismál, fræðslumál, menn-
ingarmál, íþrótta- og æskulýðsmál,
alntenningsgarða og opin svæði.
3. Tæknimál, þ.e. brunamál, al-
mannavarnir, hreinlætismál, skipu-
lags- og byggingarmál, götur, hol-
ræsi og umferðarmál, samgöngur,
atvinnumál, rekstur eigna, áhalda-
hús og vélamiðstöðvar.
Þáverandi félagsmálaráðherra,
Guðmundur Arni Stefánsson, sótti
Vestfirði heim og óskaði eftir fundi
með samstarfsnefndinni þann 15.
júlí 1994 á ísafirði. Félagsmálaráð-
herra ræddi hug sinn til sameiningar
sveitarfélaga og undirstrikaði að af-
staða sín til þessara mála byggðist á
því að stjórnkerfið væri til fyrir
fólkið. Hann taldi að best færi á því
að valdið væri sem næst fólkinu og
ætti því að færast til sveitarfélag-
anna en forsendur færslu verkefna
frá rfki til sveitarstjórna væru m.a.
að sveitarstjórnareiningarnar væru
öflugar. Ráðherra lýsti því og yfir
að ráðuneytið myndi kosta starf
þess starfsmanns sem nefndin þyrfti
til að geta unnið áfram að samein-
ingunni.
6