Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Side 32
UMHVERFISMAL
og Norðurlandi eystra. Gjall- og
vikurnámur eru þar sem laus gos-
efni er að finna. Bólstrabergsnámur
eru nokkrar og flestar þeirra á
Reykjanesskaga og á Suðurlandi.
Fáeinar leir- og moldarnámur eru
einnig á landinu. Flestar námurnar
eru í einkaeign. Lítill hluti þeirra er
í eigu sveitarfélaga eða ríkisins.
Hins vegar nýta opinberir aðilar
u.þ.b. 90% allra náma á landinu.
Astandið í efnistökumálum er
víða óviðunandi. Námur eru of
ntargar og umgengni í þeim er víða
ábótavant. Sums staðar verður að
telja að hætta stafi af vegna óviðun-
andi viðskilnaðar. I sumar námur
hefur verið safnað sorpi og brota-
málmum.
Astæður ofangreinds ástands eru
margvíslegar. Þær helstu eru van-
þróað vegakerfi, sem einnig er stórt
miðað við fólksfjölda, óskýr lög og
skipulagsleysi við efnistöku. Vegna
þessa ástands er brýnt að efnistaka á
Islandi verði skipulögð og eftirlit
með henni eflt. Setja þarf skýrari
reglur um efnistöku, færa ætti eftir-
lit með henni til sveitarfélaga og
gera þarf ítarlegar náttúrufarskann-
anir í öllum landshlutum. Þá er mik-
ilvægt að kanna og rannsaka nánar
gerð, gæði, magn og dreifmgu hag-
nýtra jarðefna hér á landi og gera
nákvæma úttekt á efnistökustöðum.
Nauðsynlegt er að móta stefnu
fyrir efnistöku innan hvers sveitar-
félags og að gera aðal- og svæðis-
skipulagsáætlanir þar sem m.a. er
gert ráð fyrir námum nú og í fram-
tíðinni. Við gerð slíkra áætlana er
afar mikilvægt að hafa í huga sjón-
armið náttúruverndar. I skýrslunni
er greint frá stefnu Náttúruvemdar-
ráðs í náttúruvernd. Þá er í skýrsl-
unni samantekt um ástand efnis-
tökumála í hverjunt Iandshluta um
sig. Skýrslan gæti nýst sveitarstjóm-
armönnum og starfsmönnum sveit-
arfélaga og einnig fulltrúum í um-
hverfis- og náttúruverndamefndum,
svo og skipulagsnefndum sveitarfé-
laganna við gerð skipulagsáætlana.
Skýrslan fæst á skrifstofu Nátt-
úruvemdarráðs og kostar kr. 700.
Malarnáma viö norðanveröan Kollafjörö vlö rætur Esju, skammt frá Mógilsá í Kjósar-
hreppi. Greinarhöfundur tók myndina á árinu 1994.
Námur á íslandi
Ragnar Frank Kristjánsson
landslagsarkitekt, starfsmaður
Náttúruverndarráðs
Út er komin skýrslan Námur á ís-
landi. Skýrslan var unnin af starfs-
mönnum Náttúruverndarráðs að
beiðni umhverfisráðuneytis og er
samantekt um ástand efnistökumála
hér á landi. Skýrslan er byggð á
upplýsingum seni aflað var hjá
sveitarfélögum og Vegagerðinni,
svo og eftirlitsmönnum Náttúru-
vemdarráðs.
I ljós kemur að yfir tvö þúsund
efnisnámur eru eða hafa verið í
notkun hér á landi. Flestar eru mal-
arnámur en nokkuð er urn grjót- og
sandnámur. Hraunnámur eru á Suð-
urlandi, Suðvesturlandi, Vesturlandi