Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Page 18
ALMENNINGSBÓ KAS Ö F N
EEX1IE3
IH II I i
Bókasafn Keflavikur, grunnflatarmynd.
Bókasafn Keflavíkur
í nýju húsnæði
Hulda Björk Þorkelsdóttir bœjarbókavórður
M03AR SKÁLOtOClM «1
rr-H-.i-iri
Fyrsti vísir að bókasafni í Kefla-
vík var lestrarfélag, stofnað af
stúkunni Von nr. 15 árið 1890.
Lestrarfélag Keflavíkur tók síðan
við rekstrinum og starfaði til 1930.
Ungmennafélag Keflavíkur endur-
vakti starfsemina árið 1932 og
Keflavíkurhreppur tók við rekstrin-
um nokkru síðar. Bæjar- og héraðs-
bókasafn Keflavíkur var formlega
opnað 7. mars 1958 í 101 nv hús-
næði á efri hæð fimleikahúss bama-
skólans. Skömmu áður var Hilmar
Jónsson ráðinn bæjarbókavörður og
gegndi hann því starfi fram á mitt ár
1992.
Árið 1974 fékk safnið nýtt hús-
næði að Mánagötu 7, alls 309 m2 á
þremur hæðum og þar var safnið til
húsa þar til í október 1993 en þá var
safnið flutt að Hafnargötu 57.
Snemma árs 1993 var gerður
samningur til 12 ára við eigendur
Hafnargötu 57, Byggingaverktaka
Keflavíkur hf„ um leigu á 1023 nf
húsnæði fyrir bókasafnið, þar af um
800 m2 á jarðhæð og 220 m2
geymsla í kjallara. Húsnæðinu
fylgja að auki 6 bílastæði í bíla-
geymslu undir húsinu.
Með þessu nýja húsnæði gjör-
breyttist öll aðstaða á safninu. Lán-
þegar hafa miklu betri aðgang að
208