Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Side 20

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Side 20
ALMENNINGSBÓ KAS Ö F N Stefnuyfirlýsing um hlutverk almenningsbókasafna í upplýsingasamfélagi nutímans ✓ Landsfundur Bókavarðafélags Islands, hinn 13. í röðinnni, var haldinn í Munaðarnesi helgina 21. og 22. septemher sl. Slíkir fundir eru haldnir annað hvert ár og sækja þá hókaverðir aföllu landinu. Að þessu sinni voru þátttakendur 115 að tölu. Á fundinum var m.a. fjallað um samstarf og tengsl al- mennings- og skólabókasafna og háskólabókasafna. Sérstaka athygli vakti lýsing á öflugu samstarfi allra bókasafna á Akureyri. Þá var fjallað um nýja tækni, um aðgang almennings að margmiðlun á bókasöfnum og um skráningu efnis á alnetinu. Mikill áhugi var á nýjum möguleikum sem opnast með nýrri tölvu- og fjarskiptatækni til bættrar og auk- innar þjónustu. Á landsfundinum var samþykkt stefnuyfirlýsing um hlutverk almenningsbókasafna í upplýsingasamfélagi nútímans og framtíðar og fer hún hér á eftir: Bókavarðafélag Islands hefur fylgst með og tekið beinan þátt í umræðum um upplýsingasamfélagið og hefur mótað eftirfarandi stefnu til framtíðar: Þessi stefna tekur mið af hliðstæðum yfirlýsingum systurfélaga bókavarða annars staðar á Norðurlöndum (Info-samfundet 2000) og þeim undirbúningi að mörkun stefnu í þessum málum á vegum Evrópubandalagsins (Telematics: PubliCA o.fl.) og íslenskra stjómvalda. Islensk bókasöfn skulu hér eftir sem hingað til, og nú með fulltingi nýrrar tækni: 1. efla frjálsan og óheftan aðgang almennings að upp- lýsingum og þekkingarmiðlun, 2. stuðla að lýðræðislegri þátttöku einstaklinga í ákvörðunum þjóðfélagsins um framtíð lands og þjóðar, 3. styðja fólk til þroska og sjálfseflingar m.a. með að- stoð og upplýsingaþjónustu bæði í starfi og leik, 4. opna aðgang að hinu opinbera með upplýsingum og auðvelda fólki að koma skoðunum og athugasemd- urn á framfæri, 5. standa við bakið á þeim sem minna mega sín með því m.a. að veita þeim greiðan aðgang að upplýsingum um rétt sinn og gögnum til sjálfsmenntunar og þroska, 6. efla íslenskt atvinnulíf, sem er undirstaða velferðar, með virkri upplýsingaþjónustu við fyrirtæki og stofnanir, 7. hvetja til menntunar, endurmenntunar og símennt- unar með kynningu á námsmöguleikum og góðu fram- boði á fræðsluefni. Þessi markmið endurspegla þær kröfur sem gerðar eru til almenningsbókasafna. Þetta er krafan um að lands- mönnum sé tryggður möguleiki til þroska, mennlunar, upplýsingar, menningar og lífshamingju, en á honum byggist og þroskast ötul, atorkusöm og vel upplýst þjóð. Það er markmið almenningsbókasafna að efla lýðræði, jafnrétti, athafnafrelsi og velferð. Almenningsbókasöfn gegna lykilhlutverki í því að jafna aðstöðu fólks til aðgangs að upplýsingum, þekk- ingu og afþreyingu og koma þar með í veg fyrir að skap- ist misskipting eða ójafnvægi eftir því hvort fólk hefur aðgang eða ekki. Almenningsbókasöfn leitast við að tryggja fjölbreytni, valfrelsi og tjáningarfrelsi í vali á efni, sem stendur fólki til boða, bæði ungum og öldnum. I upplýsingaflóðinu, sem nú streymir yfir fólk úr öll- urn áttum með nýrri tækni, er hlutverk almenningsbóka- safna enn mikilvægara en fyrr í því að beina notendum á réttar upplýsingar, að greiða úr og aðstoða við leit að því sem máli skiptir hverju sinni. Frjáls aðgangur að upplýsingum fyrir alla er forsenda þessara markmiða. Almenningsbókasöfnin geta tryggt öllum óheftan aðgang að gagnagrunnum og opinberum upplýsingum. Leiðbeiningar og aðstoð við notkun nýrrar tækni og viðeigandi tækjabúnaður er einnig forsenda þess að bókasöfn landsins geti tryggt frelsi og jöfnuð. Sem fyrr leitast almenningsbókasöfn við að efla og viðhalda lestrarkunnáttu fólks með góðu framboði af viðeigandi lesefni handa öllum. Þetta er ekki síður mikil- 2 1 0

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.