Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Side 21
ALMENNINGSBÓKASÖFN
vægur þáttur í þjónustu almenningsbókasafna til þess að
hin nýja tækni margmiðlunar og netvæðingar geri fólk
ekki ólæst á hið prentaða orð og því verður það áfram
hlutverk almenningsbókasafna að vera vettvangur fyrir
félagslegt og menningarlegt líf fólks, þar sem það getur
notið menningar, bókmennta og lista.
Bókavarðafélag íslands er reiðubúið til að vinna með
ríki, sveitarfélögum og öðrum sem málið varðar að
framgangi þess að:
1. öll bókasöfn á íslandi hafi almenningsaðgang að
samskrá (sameiginlegum gagnagrunni bókasafna) lands-
ins fyrir lok ársins 1997,
2. öll bókasöfn á Islandi hafi aðgang að Internetinu
fyrir lok ársins 1997,
3. öll almenningsbókasöfn á Islandi veiti almenningi
aðgang að Internetinu fyrir árslok 1997,
4. hafið verði átak í kennslu og leiðbeiningu um Inter-
netið og möguleika þess á árinu 1997 í samvinnu við
sveitarfélög og ríki,
5. stofnanir bókasafna (þ.m.t. embætti bókafulltrúa
ríkisins í menntamálaráðuneytinu, bókasafns- og upp-
lýsingafræðin í Háskóla íslands, Samband íslenskra
sveitarfélaga o.fl) á íslandi vinni saman að því að veita
bókavörðum ráðgjöf við öflun nýrra miðla og netbúnað-
ar,
6. fjárveitingar til bókasafna vegna kaupa á nýsigögn-
um, margmiðlunartækjum og gögnum verði auknar,
7. almenningsbókasöfnum í landinu verði gert kleift
að koma upp staðametum með upplýsingum sem mæta
þörfum og kröfum íbúanna og ferðamanna, að tölvu-
væðing sveitarfélaga taki mið af þessu og að á öllum al-
menningsbókasöfnum verði gagnveitur til afnota fyrir
almenning með upplýsingum um sveitarfélagið,
8. tryggja bókasöfnunum nægar fjárveitingar með lög-
um og/eða reglugerð til að uppfylla ofanskráðar kröfur
og vera þannig í stakk búin til að þjóna upplýsingasam-
félaginu.
Stjórn Sambands íslenskra sveitarlélaga hefur verið
send þessi ályktun og samþykkti hún að fela Tölvuþjón-
ustu sveitarfélaga að taka málið til umfjöllunar.
Kjör bókavaróa
Þá gerði landsfundurinn svofellda ályktun um kjör
bókavarða:
Nú í lok 20. aldarinnar og við upphaf hinnar 21., sem
farið er að kalla upplýsingaöldina, skýtur það skökku
við að kjör þeirra, sem beinlínis starfa við upplýsinga-
miðlun, skuli vera með þeim lökustu í íslensku samfé-
lagi.
A fáum árum hefur orðið alger bylting í starfi bóka-
varða. Bókaverðir þurfa nú að kunna góð skil á allri
þeirri nýju tækni, sem mótar allt upplýsingastarf: tölv-
um, margmiðlun, Interneti og margs konar fjarskipta-
leiðum, auk hinna hefðbundnu bókasafnsstarfa. Flest
bókasöfn eru nú tölvuvædd og fer upplýsingaleit nú í
vaxandi mæli fram með flóknum tölvukerfum, útlán eru
tölvuvædd og bókaverðir þurfa að geta notað margvísleg
tölvuforrit. Góð almenn menntun og tungumálakunnátta
er nú algert skilyrði til að geta unnið á bókasafni auk
hæfni í notkun tölvutækninnar.
Því skorar XIII. landsfundur Bókavarðafélags íslands
á sveitarstjórnir og Launanefnd sveitarfélaga og þeirra
annarra sem málið varðar að leiðrétta kjör bókavarða til
samræmis við þær auknu kröfur sem gerðar eru til þeirra
til að tryggja stöðu íslands í upplýsingasamfélagi 21.
aldarinnar.
Ráðgjafarnefnd um málefni
almenningsbókasafna
Samkvæmt 10. gr. laga um almenningsbókasöfn er
menntamálaráðherra heimilt að skipa sérstaka ráðgjafar-
nefnd um málefni almenningsbókasafna til fjögurra ára í
senn. Nefndina skipa tveir fulltrúar. Sambandið skipar
annan þeirra og Bókavarðafélag Islands hinn og skal sá
starfa í almenningsbókasafni.
Stjórn sambandsins hefur tilnefnt Steinunni Hjartar-
dóttur, forseta bæjarstjórnar Sauðárkrókskaupstaðar,
sem aðalfulltrúa og Þórdísi Þorvaldsdóttur borgarbóka-
vörð sem varafulltrúa hennar í ráðgjafarnefndina. Af
hálfu Bókavarðafélags íslands er í ráðgjafarnefndinni
Rósa Traustadóttir, forstöðumaður Bæjar- og héraðs-
bókasafnsins á Selfossi. Varafulltrúi hennar er Hrafn
Harðarson, bæjarbókavörður í Kópavogi.
Hlutverk ráðgjafarnefndarinnar er að tryggja með
skipulegunt hætti sem nánast samstarf ríkis, sveitarfé-
laga, stofnana og bókavarða um málefni almennings-
bókasafna og að vera bókafulltrúa ríkisins til ráðuneytis.
* *
\WRE VF/IZ/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
2 1 1