Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Qupperneq 23
Atvinnulíf nýrri tíma á Hofsósi
snerist um sjávarútveg og uppbygg-
ingu frystiiðnaðar. A Hofsósi voru
uppgangstímar á áttunda áratugnum
eins og víðar í þorpum og bæjum,
en undanfama áratugi hefur þróunin
verið sú sama og annars staðar í
dreifbýli. Ibúum hefur fækkað
vegna minnkandi atvinnu í sjávarút-
vegi og samdráttar í landbúnaði.
Árið 1948 var kauptúnið Hofsós
gert að sérstöku sveitarfélagi, en
það sameinaðist árið 1990 Fells-
hreppi og Hofshreppi, undir nafni
þess síðastnefnda. Hinn 1. desember
1995 voru íbúar hreppsins alls 378.
Á Hofsósi bjuggu þá 228 íbúar.
Frá Hofsósi er nú gert út á minni
bátum. Þar er fiskverkun, málm-
smiðja, trésmíðastofa, bifreiðaverk-
stæði og útgerð hópferðabifreiða. Á
Hofsósi er heilsugæslustöð, grunn-
skóli og leikskóli, verslun, pósthús,
banki, lítið handverkshús, gistihús,
hársnyrtistofa og saumastofa, sú
eina hérlendis sem saumar íslenska
fánann. Á sumrin er veitingastofa
opin ferðafólki og boðin fjölbreytt
þjónusta. Nýopnað Vesturfarasetur
og gamla Pakkhúsið laða að ferða-
menn sem vilja fræðast um sögu og
menningu í skemmtilegu umhverfl.
Ferðaþjónustan verður æ ríkari þátt-
ur í atvinnulífi staðarins, á meðan
hefðbundnari atvinnuvegir leita
jafnvægis.
Uppbygging í feröaþjón-
ustu og menningarmálum
A nokkrum býlum í hreppnum er
nú rekin fjölbreytt gestamóttaka.
Auk gistingar stendur til boða marg-
vísleg veitingaþjónusta og afþreying
af ýmsum toga, svo sem silungs-
veiði, hestaferðir, vatnaþotur og
golf. Eins og annars staðar á landinu
hefur þessi þjónusta verið vinsæl og
vel þokkuð af erlendum gestum sem
innlendum.
Á Hofsósi er einnig kostur á gist-
ingu í húsum í gamla þorpskjaman-
um. Þar hefur verið ráðist í athyglis-
verða endurbyggingu eldri húsanna.
Pakkhúsið, stokkbyggt bjálkahús frá
1777, er stórmerkt hús að byggingu
MENNINGARMÁL
Meöal margra
gesta viö vígslu
Vesturfaraseturs-
ins var Davíö
Oddsson for-
sætisráöherra.
og eitt elsta sinnar tegundar á land-
inu. Húsið er í eigu Þjóðminjasafns
Islands og umsjá sveitarfélagsins.
Pakkhúsið var endurbyggt og opnað
gestum árið 1992. Á neðri hæð
hússins er sýning Byggðasafns
Skagfirðinga á myndum og munum
sem tengjast Drangeyjarútvegi,
fugla- og fiskveiðum. Á Pakkhús-
loftinu hafa verið haldnar kvöldvök-
ur og framreiddar veitingar sem
hæfa anda hússins, meðal annars
kæstur hákarl, en mikil hákarlaút-
gerð var frá austanverðum Skaga-
firði áður fyrr. Ef ferðaþjónustan er
þau nýju mið sem sótt er á, þá verð-
ur ekki aflað án þess að hafa um
borð söguna og menninguna. Með
þetta að leiðarljósi vinna ferðaþjón-
ustuaðilar á Hofsósi.
Ferðamenn sem endurnýja kynni
sín af Hofsósi geta fylgst með
mörgum jákvæðum breytingum. Nú
er verið að gera upp flest gömlu
húsin í kvosinni, eða „plássinu" við
Pakkhúsið, sem áður stóðu yfirgefin
eða voru í niðurníðslu. Sum þeirra
eru gistihús, önnur sumarbústaðir
og í öðrum er búið allt árið. Einn
helsti styrkur Hofsóss sem ferða-
mannastaðar er þessi óraskaði gamli
kjami og það sem í annan tíma virð-
ist veikleiki: smæðin og fjarlægðin
frá þjóðbrautinni. Þama hefur skap-
ast sérstakt andrúmsloft í nálægð
sjávar og lifandi sögu landsins.
Vesturfarasetríö í gamla
Kaupfélagshúsinu
Við fjöruborðið inn af höfninni á
Hofsósi stendur reisulegt hús sem
hefur gengið undir nafninu „Gamla
Kaupfélagið". Húsið hefur nú feng-
ið það framtíðarhlutverk að hýsa
einstæða sýningu tileinkaða ís-
lensku vesturfömnum og þar er rek-
in þjónustumiðstöð sem sérstaklega
sinnir afkomendum þeirra og ætt-
ingjum. Fráfarandi forseti, Vigdís
Finnbogadóttir, opnaði Vesturfara-
setrið 7. júlí síðastliðinn, að við-
stöddum miklum mannfjölda.
Oli Jóhann Ásmundsson arkitekt
teiknaði endurbælur á gamla Kaup-
félagshúsinu og nýtti gamlar við-
byggingar til að auka húsrýmið. Þar
sem áður stóðu hrörlegir verkfæra-
og beituskúrar hefur nú risið
skemmtileg viðbygging. I því hús-
næði er m.a. að finna fyrirlestrasal,
bókasafn, ættfræðistofu og vinnuað-
stöðu fyrir fræðimann.
Hlutverk hússins er margþætt, en
því má skipta í fimm höfuðþætti. í
fyrsta lagi er verið að gera upp
Kaupfélagshúsið og endurlífga
verslun í húsinu. í öðru lagi er í.hús-
inu viðamikil sýning sem rekur
sögu veslurfaranna. I þriðja lagi
verður starfrækt í húsinu upplýs-
2 1 3