Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Síða 38
ERLEND SAMSKIPTI
COMENIUS - samstarfsverkefni
milli skóla í Evrópu
Nýr þáttur í íslenskum skólum
Katrín Einarsdóttir, deildarstjóri í Alþjóðaskrifstofu Háskóla íslands
COMENIUS-áœtlunin er nefnd eftir tékkneska guðfrœðingnum, heimspekingnum og
uppeldisfrömuðinum Amos Comenius (1592-1670). Hann var sannfærður um að með
menntun gœti maðurinn nýtt hœfileika sína tilfulls.
Hvaö er COMENIUS?
COMENIUS er einn þáttur
SÓKRATES-áætlunarinnar sem
byggist á samstarfi Evrópuþjóða í
menntamálum. COMENIUS er
nýjasli þáttur SÓKRATES-áætlun-
arinnar og tekur til skóla á leik-,
grunn- og framhaldsskólastigum
svo og annarra stofnana sem tengj-
ast menntamálum. COMENIUS-
áætlunin skiptist í þrjá meginflokka:
1. Samstarfsverkefni milli skóla
2. Samstarfsverkefni tengd minni-
hlutahópum
3. Námskeið, starfsþjálfun og
endurmenntun fyrir kennara og aðra
sem tengjast kennslustörfum
Hér verður eingöngu fjallað um
fyrsta flokkinn.
COMENIUS-1 - samstarfs-
verkefni milli skóla
Til hvers eru veittir styrkir í
COMENIUSI?
COMENIUS-1 snýr að samstarfi
skóla á leik-, grunn- og framhalds-
skólastigi. Markmiðið með sam-
starfsverkefnum COMENIUSAR er
að nemendahópar í hverjum skóla
vinni að sameiginlegu þemaverkefni
með erlendum jafnöldrum. Við-
fangsefnin eru margbreytileg og
samstarfsaðilar eru frá löndum EES.
Styrkir eru veittir til skóla sem
taka þátt í samstarfsverkefnum
(EEP-European Education Project).
Minnst þrír skólar frá þremur lönd-
um EES þurfa að taka þátt til að
verkefni geti talist gild. í hverju
samstarfsneti er einn stýriskóli (há-
mark styrks 3000 ECU* ) og minnst
tveir þátttökuskólar (hámark styrks
2000 ECU*). Hægt er sækja um
styrk allt að þrjú ár í röð. Styrkir eru
ekki ætlaðir til nemendaferða heldur
til að styrkja ferðir kennara sem
hafa umsjón
með verkefn-
inu og til að
standa straum
af samskipta-
k o s t n a ð i.
S t y r k i r
COMENI-
USAR hafa
þó miðast við
að 50% mót-
framlög komi
frá skólum
og þurfa þeir
að gera grein
fyrir í hverju
mótframlagið
er fólgið.
íslenskir skólar
í COMENIUSI
Þátttaka íslenskra skóla hefur ver-
ið góð frá upphafi verkefnisins. Á
Islandi eru nú 23 skólar þátttakend-
ur í samstarfsverkefnum. Níu skólar
tóku þátt í samstarfsverkefnum
1995 -’96. Átta þeirra hafa sótt um
framhaldsstyrk og hafa nú fimmtán
skólar bæst við 1996 -91.
Auk samstarfsverkefnanna er
hægt að sækja um styrki fyrir undir-
búningsheimsóknir, skólastjóra-
heimsóknir og kennaraskipti. Að-
sókn hefur verið góð í alla þessa
flokka. Þegar hafa 14 kennarar farið
í undirbúningsheimsóknir, fjórir í
skólastjóraheimsóknir og 12 kenn-
araskipti hafa átt sér stað. Auk þess
íslenskir stýriskólar og verkefni
islenskur stýriskóli: Samstarfslönd: Verkefni:
Breiðholtsskóli, Reykjavík írland Danmörk „Víkingaöldin og nútíminn"
Uarðaskóli, Uaröabæ Uanmörk Þýskaland „Kynning á landi og p]óð"
Menntaskólinn á Egilsstöðum Hnnland Skotland „Menningarartleitö i teröa- þjónustu í dreifbýli"
Holtaskóli, Heykjanesbæ Noregur Danmörk „Siöir og tramtið i strand- héruðum"
hramhaldsskólinn A-Skaftafellssýslu Uanmörk Italía Spánn „Uaglegt lit i S|ávarþorpi"
Grunnskólinn Skógum Austurríki Finnland Noregur „Vatnið”
* Gengi ECU er um 84 kr.
228