Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Qupperneq 40

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Qupperneq 40
DÓMSMÁL Fjárhæð þjónustugjalda sveitarfélaga og stjórnsýslueftirlit Guðmundur Benediktsson, bœjarlögmaður í Hafnarfirði I. Þjónustugjöld Samkvæmt 6. mgr. 6. gr. sveitarstjórnar- laga nr. 8/1986 skulu sveitarfélög hafa sjálf- stæða tekjustofna og sjálfsforræði á gjald- skrám eigin fyrirtækja og stofnana til þess að mæta kostnaði við framkvæmd þeirra verk- efna sem þau annast. í skýringum með þriðju útgáfu sérprentunar sveitarstjórnarlaganna útg. 1995 segir um þetla lagaákvæði að á liðnum árum hafi oft komið upp ágreiningur milli ríkis og sveitar- félaga varðandi sjálfsforræði á gjaldskrám fyrir þjónustu sveitarfélaga og stofnana þeirra. Jafnframt segir að það hafi verið sjónarmið sveitarfélaganna að kjörnir fulltrúar íbúanna séu best færir um að ákveða gjaldskrárnar í samræmi við aðstæður í sveitarfélaginu og skoðanir þeirra sem þjónustunnar njóta, en af hálfu ríkisvaldsins hefur því stundum verið haldið fram að staðfestingu ráð- herra á gjaldskrám fylgi ekki einungis eftirlits- og úr- skurðarvald um hina formlegu lilið afgreiðslu sveitar- stjórnar heldur einnig um efnisatriði hennar. Með þessu ákvæði eru tekin af öll tvímæli hvað þetta snertir og sjálfsforræði sveitarstjórna skýrt lögfest. Þetta lagaákvæði breytir þó ekki því að sveitarfélögin verða jafnt og aðrir aðilar í þjóðfélaginu að fylgja al- mennum ráðstöfunum, t.d. um verðstöðvun, vegna að- steðjandi erfiðleika, sem stundum er gripið til af ríkis- valdinu nteð lagasetningu við stjórn efnahagsmála þjóð- arinnar. Þá ber að hafa hugfast að fjárhæðir í gjaldskrám eiga að mæta kostnaði við framkvæmd þeirra verkefna sem þau annast. Ef gjald er hærra en sem nemur kostn- aði við þjónustu eða eftirlit er litið svo á að um ólög- mæta skattheimtu sé að ræða. II. Stjórnsýslueftirlit Til tryggingar því að einungis sé verið að mæta þeim kostnaði í gjaldskrám, sem af þjónustunni eða eftirlitinu hlýst, fer ríkisvaldið nú fram á að með beiðni um stað- festingu gjaldskráa fylgi útreikningar, sem liggja til grundvallar fjárhæð gjalda, sent því ber að staðfesta. Farið er fram á að fylgja skuli rekstraráætlun með gjald- skránni ásamt rökstuddri greinargerð. þar sem fram koma öll þau atriði sem ákvörðun gjalds bygg- ist á. þ.e.a.s. kostnaður við hlutaðeigandi eftir- lit eða þjónustu. Einnig að skipta skuli áætlun- inni niður eftir rekstrarþáttum og sérstök grein gerð fyrir því hvernig fjárfestingarkostnaður er reiknaður. Sýna verður fram á að fjárhæð gjalda sé ekki hærri en sem nemur sannanleg- um kostnaði við veitta þjónustu eða tiltekið eftirlit. Ríkisvaldið byggir ofangreind tilmæli til sveitarstjórna á áliti umboðsmanns Alþingis í máli nr. 1041/1994. III. Álit umboðsmanns Alþingis í máli nr. 1041/1994 Niðurstaða umboðsmanns Alþingis í ofangreindu áliti í máli nr. 1041/1994, sem birtist í skýrslu umboðsmanns fyrir árið 1995, bls. 407 og 408, er eftirfarandi: Hundaræktarfélag Islands kvartaði yfir gjaldtöku Reykjavíkurborgar vegna leyfa til hundahalds og taldi að gjaldið væri hærra en næmi kostnaði borgarinnar. Því væri um skattheimtu að ræða, sem ekki styddist við við- hlítandi skattlagningarheimild samkvæmt 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar. Umboðsmaður taldi lagaheimild til gjaldtökunnar vera í 22. gr. laga nr. 81/1988, um hollustuhætti og heilbrigð- iseftirlit, og að grundvallarreglur stjórnsýsluréttar væru virtar. Um ákvörðun á fjárhæð gjaldsins tók umboðsmaður fram að þar sem 22. gr. laga nr. 81/1988 hefði ekki að geyma skattlagningarheimild í skilningi 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar, heldur heimild til töku þjónustugjalds, væri óheimilt að taka hærra gjald en sem næmi þeim kostnaði, sem almennt hlytist af að veita þjónustuna. Við skýringu gjaldtökuheimildarinnar yrði að hafa í huga þá almennu skýringarreglu að íþyngjandi stjórnvalds- á- kvarðanir yrðu að byggjast á skýrri lagaheimild og að slíkar lagaheimildir yrðu almennt ekki skýrðar rúmt. Tók umboðsmaður sérstaklega fram að ákvæði samþykktar um hundahald í Reykjavík gæti ekki víkkað gjaldtöku- heimild laga nr. 81/1988, enda væri þar aðeins um stjórnvaldsfyrirmæli að ræða. Ljóst var af þeint gögnunt sem lögð voru fyrir um- 230
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.