Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Side 44
FRA LAN DSHLUTASAMTOKUNUM
Jóni Guömundssyni á Óslandi, fyrrverandi sveitarsti'óra Hofs-
hrepps, var boðið að koma á fundinn en hann sagöi af sér störf-
um vegna veikinda í júní 1995. Hann er á myndinni ásamt konu
sinni, Þóru Kristjánsdóttur. Myndirnar frá aöalfundinum í
Varmahlíö tók Þórhallur Ásmundsson á Sauöárkróki.
landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga um hugs-
anlega yfirtöku sveitarfélaga á rekstri heilsugæslu hafa
sveitarstjórnir yfirleitt lílið fjallað um málið og því er
eðlilegt að stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga und-
irbúi frekari umljöllun á næsta landsþingi, sem haldið
verður 1998.“
Lög um framhaldsskóla
„Arsþing SSNV mótmælir harðlega því ákvæði í ný-
settum lögum um framhaldsskóla þar sem kostnaðar-
hlutdeild sveitarfélaga við byggingu heimavista er
ákveðin 40%.“
Yfirfœrsla grunnskólans
„Arsþing SSNV fagnar þeini samstöðu sem varð um
yfirfærslu grunnskólans milli sveitarfélaga, samtaka
kennara og fulltrúa ríkisvaldsins. Þingið væntir þess að
gott framhald verði á því samstarfi.“
Endurgreiðsla VSK af slökkvi- og björgunarbúnaði
„4. ársþing SSNV skorar á stjórnvöld landsins að
koma til móts við sveitarfélög, sem endurnýja þurfa
slökkvi- og björgunarbúnað, með endurgreiðslu á virðis-
aukaskatti og niðurfellingu á öðrum opinberum gjöld-
um.“
Endurgreiðsla virðisaukaskatts af skattskyldri starf-
semi opinberra aðila
„4. ársþing SSNV beinir því til fjármálaráðherra að
breyta 1. tölulið 12. greinar reglugerðar nr. 248/1990 um
virðisaukaskatt af skattskyldri starfsemi opinberra aðila
og hann orðist svo: „1. Söfnun, meðhöndlun, flutningur
og förgun úrgangs, samkvæmt skilgreiningu í mengun-
arvarnareglugerð nr. 48/1994. Hér undir fellur m.a.
neyslu- og framleiðsluúrgangur og brotamálmar." Einnig
að þær breytingar sem gerðar voru á reglugerðinni 28.
febrúar sl. gildi frá 1. janúar 1990.“
Ályktun um Orkusjóð
„4. ársþing SSNV ítrekar áskorun á Alþingi og ríkis-
stjórn að efla Orkusjóð og gera honum kleift að styrkja
sveitarfélög á „köldum svæðum“ til jarðhitaleitar.“
Stjórn SSNV
I aðalstjórn samtakanna til tveggja ára voru kosnir
Björn Sigurbjörnsson, formaður bæjarráðs á Sauðár-
króki, sem er formaður SSNV, Agúst Þór Bragason, bæj-
arfulltrúi á Blönduósi, Bjöm Valdimarsson, bæjarstjóri á
Siglufirði, Ingibjörg Hafstað, oddviti Staðarhrepps í
Skagafirði, og Valur Gunnarsson, oddviti Hvamms-
tangahrepps.
Þá voru kjörnir tveir skoðunarmenn og fjórir fulltrúar
á aðalfund Landsvirkjunar 1997 og jafnmargir til vara.
Næsta þing í Vestur-Húnavatnssýslu
I þinglokin kvaddi sér hljóðs Olafur B. Oskarsson,
oddviti Þorkelshólshrepps, og bauð til næsta þings að ári
í Vestur-Húnavatnssýslu.
ATVINNUMÁL
Atvinnumálanefnd á
Norðurlandi vestra
Félagsmálaráðherra, Páll Pétursson, hefur skipað at-
vinnumálanefnd á Norðurlandi vestra. Er nefndinni ætl-
að að hafa umsjón með tillögugerð um úrbætur í at-
vinnumálum og að beita sér fyrir samræmdu átaki til efl-
ingar atvinnulífs í kjördæminu.
Nefndina skipa Bjarni Þór Einarsson, framkvæmda-
stjóri Sambands sveitarfélaga í Norðurlandskjördæmi
vestra (SSNV), tilnefndur af SSNV, Ólöf Áslaug Krist-
jánsdóttir, bæjarfulltrúi á Siglufirði, tiln. af bæjarráði
Siglufjarðar, Jakob Þorsteinsson, ferðamálafulltrúi
Skagafjarðar, tiln. af héraðsnefnd Skagafjarðar, Ófeigur
Gestsson, framkvæmdastjóri héraðsnefndar Austur-Hún-
vetninga, og tiln. af því, Guðmundur Guðmundsson,
sveitarstjóri Hvammstangahrepps, tiln. af héraðsnefnd
Vestur-Húnavatnssýslu, og Jón Magnússon, forstöðu-
maður svæðisskrifstofu Byggðastofnunar á Sauðárkróki,
og tilnefndur af Byggðastofnun. Formaður nefndarinnar
skipaður án tilnefningar er Lárus Jónsson, deildarstjóri
hjá Kaupfélagi Austur-Húnvetninga á Blönduósi.
234