Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Qupperneq 45
FRA LANDSHLUTASAMTOKUNUM
Frá aðalfundi Eyþings 1996
Hjalti Jóhannesson jramkvœmdastjóri
Fjórði aðalfundur Eyþings var
haldinn í blíðskaparveðri í félags-
heimilinu Laugarborg í Eyjafjarðar-
sveit dagana 29. og 30. ágúst sl.
Meginviðfangsefni fundarins voru
skólamál. Svo sem vænta mátti ein-
kenndust umræður mjög af því að
Skólaþjónusta Eyþings er nýtt sam-
starfsverkefni, rekið beint af lands-
hlutasamtökunum í þessu kjördæmi
og hóf hún starfsemi 1. ágúst sl.
Fundarstjórar voru Birgir Þórðar-
son, oddviti Eyjafjarðarsveitar, og
Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri
Grýtubakkahrepps.
Alls voru á fundinum 45 af 50
fulltrúum frá 28 aðildarsveitarfélög-
um en með gestum og starfsmönn-
um voru fundarmenn um 65 talsins.
Ávörp
Fundinum fluttu ávörp Guðmund-
ur Bjarnason, landbúnaðar- og unt-
hverfisráðherra fyrir hönd þing-
manna kjördæmisins, Jónas Egils-
son, framkvæmdastjóri SSH, og
Þórður Skúlason, framkvæmdastjóri
Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fagleg málefni grunn-
skólans
Auk venjubundinna fundarstarfa
voru fyrri daginn flutt þrjú athyglis-
verð erindi er varða fagleg málefni
grunnskólans. Olafur Amgrímsson,
skólastjóri Stórutjamaskóla í Ljósa-
vatnshreppi, flutti erindi er fjallaði
um fámenna skóla, einkenni þeirra
og gildi fyrir nemendur og samfé-
lag. Þá flutti Þórhildur Sigurðardótt-
ir, sérkennari við Borgarhólsskóla á
Húsavík, erindi sem fjallaði um
kennslu fatlaðra nemenda. Loks
fjallaði Jón Baldvin Hannesson, for-
stöðumaður Skólaþjónustu Eyþings,
um starfsáætlun skólaþjónustunnar.
Miklar og almennar umræður urðu
að þessum fróðlegu erindum lokn-
um.
Tekjujöfnun jöfnunarsjóös
Föstudaginn 30. ágúst flutti erindi
Magnús Karel Hannesson, oddviti
Eyrarbakkahrepps og einn fulltrúa
Sambands íslenskra sveitarfélaga í
ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveit-
arfélaga. Hann fjallaði um sjóðinn,
nýjar reglur um þjónustuframlög og
jöfnunarframlög vegna grunnskól-
ans. Fyrirlesturinn var mjög ítarleg-
ur og fróðlegur og skýrði án efa fyr-
ir mörgum sveitarstjómarmanninum
ýmis atriði er varða þetta tekjujöfn-
unarverkfæri sem sífellt er að verða
flóknara og margslungnara.
Fjármögnun grunnskólans
Því næst flutti erindi Garðar Jóns-
son, viðskiptafræðingur hjá Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga. Er-
indið fjallaði um fjármögnun grunn-
skólans og framkvæmd á samkomu-
lagi ríkis og sveitarfélaga um tekju-
stofnaflutning. Hann útskýrði ítar-
lega hvernig þessi yfirfærsla tekju-
stofna verður framkvæntd á yfir-
standandi ári og á komandi árum.
Miklar umræður urðu í framhaldi
af erindum Magnúsar og Garðars og
greinilegt var að á fundarmönnum
brunnu ýmis atriði er varða þessi
mál.
Skólaþjónusta Eyþíngs
Að loknum hádegisverði var aðal-
fundarstörfum haldið áfram og var
fyrst tekin til afgreiðslu tillaga
skólaráðs um fjölgun stöðugilda við
Félagsheimiliö Laugarborg í Eyjafjaröarsveit þar sem aöalfundurinn var haldinn.
235