Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Síða 49
FRÁ LAN DS H LUTASAMT ÖKUNUM
sagði að í sunnlenskum skólum væru unnin um 500-600
ársverk og væru þá ekki meðtalin ársverk nemenda. Bú-
seta fólks réðist m.a. af skólum og þjónustustigi. Taldi
hann sveitarstjórnir þurfa að auka og bæta tengslin við
skólana, t.d. með sumarvinnu skólafólks. Vakti athygli á
því að árið 1996 væri ár símenntunar og að um helming-
ur alls vinnuafls í landinu hafi ekki notið framhalds-
menntunar.
Þá ræddi hann framtíð Fjölbrautaskóla Suðurlands og
taldi henni best borgið með sérhæfmgu, t.d. á vegum
landbúnaðar- og ferðamála. Einnig vantaði skóla sem
sérhæfði sig í upplýsingatækni, s.s. á sviði fjarkennslu
og fjamáms.
Samningur við Byggöastofnun
undirrítaður
Að loknum framsöguerindum var undirritaður samn-
ingur milli Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands og Byggða-
stofnunar um atvinnuþróun á starfssvæði SASS svo og
samkomulag um atvinnuráðgjöf í Vestmannaeyjum.
Samkvæmt samningnum standa samningsaðilar fyrir
sérstöku þriggja ára verkefni sem felur í sér samræmt og
skipulagt atvinnuþróunarstarf. Verkefnið tekur að sér að
annast ráðgjöf á sviði almennrar atvinnuþróunar og
ferðamála á starfssvæði Samtaka sunnlenskra sveitarfé-
laga með ráðningu þriggja ráðgjafa. Framlag Byggða-
stofnunar til verkefnisins verður á þessu ári 8,7 milljónir
króna, sent er umtalsverð hækkun frá því sem verið hef-
ur.
Ályktanir aðalfundarins
Á fundinum urðu nokkrar umræður og skoðanaskipti
um húsnæðismál samtakanna, en með tilkomu Skóla-
skrifstofu Suðurlands, sem rekin verður á vegum SASS,
er starfsemin vaxin upp úr húsnæði samtakanna. Lögð
var fram greinargerð af hálfu stjórnar SASS þar sem
lagt var til að henni yrði veitt heimild til að festa kaup á
húsnæði sem rúmaði alla starfsemi samtakanna. Aðal-
fundurinn veitti heimildina, sem þó var háð því að boð-
að yrði til sérstaks aukafundar SASS til endanlegrar
ákvörðunar. Sá aukafundur var haldinn 10. júlí sl. og þar
lagður fram samningur um kaup á um 450 nr húsnæði
að Austurvegi 56 og voru kaupin staðfest á fundinum.
Aætlað er að samtökin flytji í hið nýja húsnæði í mars-
mánuði á næsta ári með starfsemi sína.
Samþykktar voru ályktanir um ýmis mál, s.s. að
tryggingafélög taki þátt í kostnaði við rekstur eldvama-
eftirlits og slökkviliða ásamt búnaði þeirra, um nauðsyn
á lagningu svokallaðs Suðurstrandarvegar milli Þorláks-
hafnar og Grindavíkur, að hafnar verði úrbætur á vam-
argörðum við Markarfljót. um nauðsyn brúar yfir Hvítá
ofan Bræðratungu, að gerðar verði nauðsynlegar úrbæt-
ur á félagslega íbúðakerfmu vegna kaupskylduákvæða
sem skylda sveitarfélögin til að leysa til sín íbúðir
o.s.frv.
Stjórnin endurkjörin
A fundinum voru kosin í stjórn SASS þau Guðmundur
Ingi Gunnlaugsson, sveitarstjóri Rangárvallahrepps, for-
maður, Jóna Sigurbjartsdóttir, varahreppsnefndarfulltrúi
í Skaftárhreppi, varaformaður, og meðstjómendur bæjar-
fulltrúarnir Kristján Einarsson og Sigurður Jónsson á
Selfossi, oddvitarnir Jón Gunnar Ottósson í Stokkseyrar-
hreppi og Kjartan Ágústsson í Skeiðahreppi svo og Guð-
mundur Svavarsson, hreppsnefndarmaður í Hvolhreppi.
—
Frá Lánasjóði
sveitarfélaga
Umsóknarfrestur um lán úr sjóðnum
á árinu 1997 er til 31. janúar nk.
Umsóknum skulu fylgja eftirfarandi gögn:
1. Upplýsingar varðandi lánsumsóknina ásamt
kostnaðaráætlun vegna þeirra framkvæmda
eða fjárfestingar, sem sótt er um lán til.
2. Fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið
1997.
Skilyrði fyrir því, að lán verði veitt úr Lánas/óði
sveitarfélaga, eru m.a.:
1. Að ársreikningar sveitarfélagsins hafi verið
gerðir samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga
nr. 8/1986 og reglugerð um bókhald sveitar-
félaga nr. 280/1989.
2. Að fjárhagsáætlun hafi verið gerð samkvæmt
sömu lögum.
3. Að umsækjandi sé ekki í vanskilum við sjóðinn
vegna eldri lána, sem veitt hafa verið.
4. Að fjárhagur sveitarfélagsins sé, að dómi
sjóðstjórnar, svo traustur, að telja megi vísa
greiðslu afborgana og vaxta á umsömdum
tíma.
Lánasjóður sveitarfélaga
Háaleitisbraut 11
Pósthólf 8100, 128 REYKJAVÍK, sími 581 3711
V J
239