Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Page 55

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Page 55
STJÓRNSÝS LA varpi til breytinga á lögum um reynslusveitarfélög. Skógrækt Dalabyggð sótti unt verkefni á sviði skógræktar. Umsóknin er til meðferðar hjá Skógrækt ríkisins en ekki hefur fengist niðurstaða unt hana. Yfirtaka á fræóslu- skrifstofu Vestmannaeyjabær sótti um yfir- töku á starfsemi fræðsluskrifstofu en vegna flutnings grunnskólans voru ekki forsendur fyrir umsókn. Yfirtaka á rekstri framhaldsskóla Hornafjarðarbær sótti urn að taka að sér rekstur Framhaldsskólans í A-Skaftafellssýslu, en umsókn var hafnað af menntamálaráðuneyti. Veghald Borgarbyggð sótti um yfirtöku á rekstrardeild Vegagerðarinnar í Borgamesi. Afstaða vegamálastjóra er neikvæð en hjá honum hefur komið fram að Vegagerðin telji mjög óráðlegt að færa veghald til sveitarfélaga nema í sérstökum til- vikum. Neskaupstaður sótti um að annast snjómokstur á Norðfjarðar- vegi um Oddsskarð og eru nokkrar líkur á að samkomulag geti náðst milli sveitarfélagsins og Vega- gerðarinnar um aukna samvinnu á því sviði. Að lokum skal þess getið að Vestmannaeyjabær óskaði eftir að yfirtaka alla starfsemi ríkisins í Vestmannaeyjabæ. Verkefnisstjóm- in taldi umsókn bera vott um mik- inn stórhug en treysti sér þó ekki til að styðja hana. Niðurstaðan er því sú, tveimur árum eftir að lög um reynslusveitar- félög voru samþykkt, að af 58 um- sóknum eru 12 komnar í höfn, fallið hefur verið frá 10 en 36 standa eftir. Eins og þessar tölur gefa vísbend- ingu um hefur undirbúningur til- rauna tekið lengri tíma en upphaf- lega var gert ráð fyrir. Ýmsar skýr- ingar eru á því og nokkuð mismun- andi eftir málaflokkum eins og fram hefur komið í framangreindu yfir- liti. Ef leita á almennra skýringa má benda á að enda þótt lög um reynslusveitarfélög hafi verið sam- þykkt vorið 1994 og með þeim ver- ið markaður ákveðinn tilrauna- ra- mmi þá átti eftir að útfæra nánari hugmyndir og semja um tilrauna- starfsemi við viðkomandi ráðuneyti. Ljóst er að sú vinna hefur reynst umfangsmeiri en mönnum var ljóst fyrirfram. Einnig hefur samstarfið, þar sem að málum koma bæði sveit- arfélög, ráðuneyti og undirstofnanir þeirra, reynst tímafrekara og þyngra í vöfum en gert var ráð fyrir. í þessu sambandi þarf að hafa í huga að til- raunaverkefni eins og þetta er nýj- ung í stjómsýslu hér á landi og því er um brautryðjendastarf að ræða. Það hefur tekið tíma, bæði fyrir sveitarfélög og ríki, að tileinka sér þann hugsunarhátt og þær starfsað- ferðir sem verkefnið krefst. Þar sem verkefnið er í raun ennþá á undir- búningsstigi er of snemmt að draga almennar ályktanir um árangur þess. Þó má þegar gera ráð fyrir að unnt verði að draga verðmætan lærdóm af þeint tilraunum um flutning heilsugæslu og þjónustu við fatlaða til reynslusveitarfélaga, sem náðst hefur samkomulag urn. i|Sgt Auglýsing um húsaleigu- &8ftl bætur á árinu 1997 Eftirtalin sveitarfélög hafa ákveðið að greiða húsaleigubætur á árinu 1997: Aðaldælahreppur Neskaupstaður Akraneskaupstaður Raufarhafnarhreppur Amameshreppur Rey ðarfj arðarhreppu r Arskógshreppur Reykholtsdalshreppur Bárðdælahreppur Reykjavíkurborg Bolungarvíkurkaupstaður Sauðárkrókskaupstaður Borgarfjarðarhreppur Seyðisfjarðarkaupstaður Dalvíkurkaupstaður Selfossbær Egilsstaðabær Seltjamameskaupstaður Eyrarbakkahreppur Skaftárhreppur Fellahreppur Stokkseyrarhreppur Garðabær Stöðvarhreppur Grindavíkurkaupstaður Súðavíkurhreppur Hafnarfjarðarkaupstaður Sveinsstaðahreppur Hálsahreppur Tálknafjarðarhreppur Hálshreppur Torfalækjarhreppur ísafjarðarbær Vopnafjarðarhreppur Kaldrananeshreppur Ölfushreppur Lýtingsstaðahreppur Öxarfjarðarhreppur Mosfellsbær Félagsmálaráðuneytið 245

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.