Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Side 62
KYNNING SVEITARSTJÓRNARMANNA
hugmyndasmíði. Hildur var frétta-
maður á Ríkisútvarpinu 1985 og
fréttaritari í Danmörku 1985-1987.
Hún vann við þýðingu og staðfærslu
bókarinnar Nú er kominn tími til,
sem Norræna ráðherranefndin gaf út
1988. Hún var við kynningarstörf
hjá KOM hf., Kynningu og mark-
aði, 1989-1990 og gegndi starfi
verkefnisstjóra Norræna jafnlauna-
verkefnisins 1990-1993. Hildur var
• LOWARA
JARÐVATNS
DÆLUR
Gæðavara,
mikið úrval,
hagstætt verð,
örugg þjónusta.
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260
ráðin fyrsti ritstjóri Vikublaðsins
1993 og starfaði hjá því og Alþýðu-
bandalaginu til 1996.
Hildur hefur skrifað greinar og
haldið fyrirlestra um jafnréttismál á
ýmsum vettvangi. Hún hefur verið
virk í íslenskri kvennahreyfingu frá
1976 og gegnt þar ýmsum trúnaðar-
störfum, setið í ritstjórn Veru, tíma-
rits um kvenfrelsi, og átt sæti í ráð-
gjafamefnd Jafnréttisráðs.
Börn Hildar eru Ragna Bjarna-
dóttir, fædd 1975, og Erlingur Atli
Pálmarsson, fæddur 1989. Fyrri
maður Hildar var Pálmar Þór Ingi-
marsson, ráðgjafi hjá SAA, en hann
lést 1994.
Sambýlismaður Hildar er Hjörtur
Ottó Aðalsteinsson, héraðsdómari í
Reykjavík.
Guðmundur H. Ingólfs-
son sveitarstjóri Reyk-
hólahrepps
Guðmundur
H. Ingólfsson,
fyrrverandi
framkvæmda-
stjóri héraðs-
nefndar Isafjarð-
arsýslu, var ráð-
inn sveitarstjóri Reykhólahrepps
hinn 20. janúar á þessu ári.
Guðmundur er fæddur 6. október
1933 í Hnífsdal. Foreldrar hans eru
Guðbjörg Torfadóttir verkakona og
Ingólfur Jónsson, sjómaður og
verkamaður í Hnífsdal, sem bæði
eru látin.
Guðmundur sótti framhaldsskóla
í Reykjanesi og lauk iðnnámi í raf-
fræði við Iðnskóla ísafjarðar. Hann
réðst til starfa hjá Rafveitu ísafjarð-
ar 1959 og var þar í 14 ár sem línu-
maður og síðar verkstjóri. Árið
1973 hóf hann starf hjá ísafjarðarbæ
sem bæjargjaldkeri og starfaði þar
til ársins 1982. Árin 1983-1985
starfaði hann sem aðalbókari sýslu-
mannsins á ísafirði. Frá árinu 1985
hefur hann gegnt ýmsum störfum
bæði hjá opinberum aðilum og
einkafyrirtækjum, var síðast fram-
kvæmdastjóri héraðsnefndar Isa-
fjarðarsýslu.
Guðmundur sat í hreppsnefnd
þáv. Eyrarhrepps frá árinu 1962 uns
hreppurinn og ísafjarðarkaupstaður
sameinuðust hinn 3. október 1971
og var oddviti hreppsins frá 1970.
Þá sat hann í bæjarstjóm ísafjarðar
1972 til 1986, var forseti bæjar-
stjómar 1978-1982 og oft varafor-
seti og í bæjarráði.
Hann sat í fjölda nefnda sveitarfé-
laganna beggja og var í stjórn Fjórð-
ungssambands Vestfirðinga í tólf ár,
1975-1987, þar af formaður stjómar
í fjögur ár, 1980-1984. Guðmundur
var í undirbúningsnefnd að stofnun
Orkubús Vestfjarða, var fyrsti for-
maður stjórnar orkubúsins, frá
stofnun þess 1978 til ársins 1984,
og átti sæti í stjórn þess til ársins
1986. Jafnframt var hann fyrsti
framkvæmdastjóri Orkubús Vest-
fjarða.
Eiginkona Guðmundar er Jóna
Valgerður Kristjánsdóttir, fv. al-
þingismaður og núverandi bæjar-
fulltrúi í hinum sameinaða Isa-
fjarðarbæ og kennari við Grunn-
skólann á Isafirði.
Þau eiga fimm böm.
Jónas Vigfússon sveitar-
stjóri Kjalarneshrepps
ráðinn sveitar-
stjóri Kjalarneshrepps frá 15. maí
1996.
Jónas var kynntur í 3. tbl. Sveitar-
stjómarmála 1991.
252