Sveitarstjórnarmál - 01.08.1999, Blaðsíða 38
UMHVERFISMAL
Verðmætasköpun í stað mengunar
Nýting lífrænna efna til landbóta
Jóna Fanney Friðriksdóttir, framkvcemdastjóri landgrœðslnsamtakanna
Gróður jyrirfólk í Landnámi Ingólfi og verkefiiisstjóri SKIL 21
Landgræðslusamtökin Gróður
fyrir fólk í Landnámi Ingólfs voru
stofnuð vorið 1997 með það að
markmiði að sporna gegn gróður-
og jarðvegseyðingu og græða upp
ógróið land í Landnámi Ingólfs
Amarsonar. Eitt af meginmarkmið-
um samtakanna er að nýta lífræn
efni til uppgræðslunnar. Þau tvö
sumur sem samtökin hafa staðið
fyrir uppgræðsluframkvæmdum í
Landnáminu hefur verið unnið við
ræktun á 16 svæðum í 10 sveitarfé-
lögum. Forsenda þessa árangurs er
náin samvinna við sveitarfélögin á
svæðinu og hina íjölmörgu stuðn-
ingsaðila málstaðarins. Auk metn-
aðarfullra uppgræðsluframkvæmda
á þessu sumri stýrir Gróður fyrir
fólk umhverfisátakinu SKIL 21 sem
unnið er undir merkjum Reykjavík-
ur, nrenningarborgar Evrópu árið
2000.
I anda sjálfbærrar þróun-
ar
Sjálfbær þróun er lykilhugtak í
samskiptum manns og náttúru á 21.
öldinni. Megininntak sjálfbærrar
þróunar er að ganga ekki á höfuð-
stól náttúrunnar - að okkur beri
skylda til að skila landinu í jafngóðu
eða betra ástandi til komandi kyn-
slóða. A tímum vanþekkingar og fá-
tæktar átti þjóðin ekki annarra kosta
völ en að ganga á landsins gæði og
nýta það sem jörðin hafði upp á að
bjóða til að lifa af harðbýlið í land-
inu. Við þröskuld 21. aldar horfir
málið öðruvísi við. I dag er það á
okkar valdi að bæta það sem farið
hefur úrskeiðis í fortíðinni. Engin
töfralausn er til sem getur bætt land-
inu í snatri syndir 1100 ára. Arangur
af ötulu starfi einstaklinga, bænda,
skógræktarfélaga og annarra sanr-
taka og stofnana ber þess glöggt
vitni að miklu má áorka ef íbúar til-
tekinna landsvæða taka höndum
saman við að rækta sinn heimagarð.
Frekari samtakamáttur íbúa landsins
gegn eyðingaröflunum mun skipta
sköpum fyrir það umhverfi sem við
viljum búa afkomendum okkar.
Starfsemi Gróðurs íyrir fólk grund-
vallast á hugtakinu sjálfbær þróun.
Homsteinn þeirrar þróunar er endur-
nýting og hringrásarferli efna.
Gróöur fyrir fólkiö
Landnám Ingólfs er svæðið sem
landnámsmaðurinn Ingólfur Amar-
son sló eign sinni á og skipti síðar á
milli sex manna. Það nær meðfram
strandlengju Reykjanesskagans, inn
í botn Hvalfjarðar og f austri með-
frarn Þingvallavatni, Sogi og Ölf-
usá. Allt ffá landnámi hefúr svæðið
verið þéttbýlt, enda ber núverandi
gróðurfar nrerki aldalangrar búsetu
og gróðurnýtingar. Meðalþéttleiki
íbúa íslands í heild er um 2,5 íbúar
á hvem ferkílómetra en um 60 íbúar
á ferkílómetra í Landnáminu. Nátt-
úra svæðisins er fjölbreytt og miklir
möguleikar em til útilífs fyrir hinn
„landlausa þéttbýlisbúa“. í Land-
námi Ingólfs er gróður hins vegar,
með alltof fáum undantekningum, í
mjög slæmu og sannarlega óásætt-
anlegu ástandi. Svæðið er nær skóg-
laust, þar á sér víða stað gróður- og
jarðvegseyðing, og þar em jafnvel
víðáttumiklar sandeyðimerkur.
Óhætt er að fullyrða að þetta sé
einn verst farni hluti landsins í
byggð hvað gróður varðar. Líkt og
nafnið Gróður fyrir fólk í Landnámi
Ingólfs gefur til kynna er stefna
samtakanna að stunda uppgræðslu
þar sem árangurinn blasir við og
hefja „gróðursókn“ þar sem fólkið
fær sem best notið gróðurs. Því að
þrátt fyrir að Landnám Ingólfs sé
aðeins um 3% af flatarmáli alls
landsins búa þar um 70% þjóðarinn-
ar.
Vannýtt auölind
Gróður fyrir fólk í Landnámi Ing-
ólfs hefur sett sér það markmið að
komast yfír þau lífrænu efni sem til
falla á svæðinu og nýta þau þar sem
þeirra er þörf við uppgræðslu. Sam-
tökin líta einnig á það sem hlutverk
sitt að hvetja og virkja íbúa landsins
til aukinnar notkunar lífrænna efna í
þágu landbóta og að miðla þeirri
reynslu sem samtökin hafa þegar
öðlast.
Samkvæmt úttekt sem Gróður
1 64