Hermes - 01.12.1988, Page 25
23
Síöustu nemendurnir voru útskrifaðir 1955. )ónas afhendir Birni Guðmundssyni prófskírteini
sitt.
Þegar þetta er skoðað nú rúmlega
hálfri öld síðar hlýtur sú spurning að
verða áleitin, hver hafi í raun orðið ár-
angurinn af þeirri viðleitni Jónasar að
efla nemendur sína til pólitískra áhrifa á
samfélag og þjóðlíf, og hvernig honum
hafi tekist með þessum hætti að afla hug-
sjónum sínum brautargengis. Hafði
hann veruleg áhrif á gerð hins nýja þjóð-
félags og gang mála á stjórnmálasviðinu
Þótt kennslu væri lokið gleymdist lærifaðirinn ekki. Þegar )ónas Jónsson varð áttræður 1965
færðu nemendur sem þá áttu tuttugu og fimm ára útskriftarafmæli honum blómakörfu.
með tilstyrk þeirra? Hér verður örðugt
um skýr svör, af því að menn vita ekki
lengur gerla um boðun Jónasar í morg-
unræðunum og geta því ekki metið
glöggt samhengið milli hennar og við-
horfa eða félagslegra áhrifa nemend-
anna á lífsleiðinni. Eg vil þó nefna tvennt
sem mér virðist vera augljós vitni um að
þessara áhrifa hafi gætt í verulegum mæli
úti í þjóðfélaginu, og þau hafi ráðið
nokkru um framvindu mála, að minnsta
kosti á fjórða og fimmta áratugi aldar-
innar.
Það er alkunn staðreynd, hve margir
nemenda Samvinnuskólans hafa orðið
áhrifaríkir í félagsmálum utan starfsvett-
vangs síns í samvinnufélögunum og látið
til sín taka í opinberum málum, jafnt í
sveitarstjórnarmálum sem landsmálum
og stjórnmálaflokkum. Jónas virðist því
hafa náð langt að því markmiði að efla
nemendur sína til þjóðnýtra félagsmála-
starfa og áhrifa fyrir hugsjónir sent hann
bar fyrir brjósti og boðaði þeim.
Hitt dæmið sem ég vil nefna, er sú
þjóðfélagsgerð sem myndaðist á fjórða
áratugnum hér á landi. Jónas Jónsson
settist í ráðherrastól 1927, og flokkur
hans fór með ríkisstjórn næstu árin. Þau
LAGER-
INNRÉTTINGAR
- í verslanir og vörugeymslur
- Góðar í bílskúrinn og geymsluna
- Sterkar og stílhreinar
- Auðveldar í uppsetningu
- Ókeypis kostnaðaráætlun
VERÐIÐ ER HAGSTÆTT
GARÐASMIÐJAN GALAX SF
LYNGASI 15 210 GARÐABÆ
SÍMI 91-53511
GÆÐI tJR STÁXJ