Hermes - 01.12.1988, Page 52
50
Samvinnuskólinn hefur tekið miklum breytingum síðan
hann hóf starfsemi sína. Veigamestu breytingarnar hafa átt
sér stað nú síðustu árin er hætt var með framhaldsdeildina í
Reykjavík, farið að útskrifa stúdenta frá Bifröst og nú síðast
að Samvinnuskólinn komst á háskólastig. Þegar byrjað var
að undirbúa þessar breytingar á skólanum kom upp sú um-
ræða að flytja skólann til Reykjavíkur og voru menn ekki á
eitt sáttir um ágæti þess.
Vegna þessara umræðna tóku eigendur Hreðavatns þá
ákvörðun að gefa Samvinnuskólanum skólalóðina og var
það gert til að halda í bæði skólann og byggðina. Þessi gjöf
hefur vafalaust styrkt þá sem vildu skólann áfram að Bifröst
og hefði ekki kontið til ef skólinn hefði ekki notið velvildar
innan sveitarinnar.
Þórður Kristjánsson frá Hreðavatni sagði þegar ég ræddi
við hann fyrir skömmu að það hefði þótt lélegur spámaður
í sínu ungdæmi sem sagt hefði að meginuppistaða byggðar í
Norðurárdalnum yrði í miðju Grábrókarhrauni. Sú væri þó
orðin raunin á. Ekki nóg með að sífellt fjölgi íbúum staðar-
ins heldur er líka þó nokkuð um að utanaðkomandi fólk
sæki vinnu í Samvinnuskólann. Breyttir tímar í landbúnað-
armálum haga því svo til að ekki er hægt að auka tekjur
heimilanna með stækkun búa og þess vegna leitar fólk á
önnur mið. Þeir eru því orðnir þó nokkuð margir Norð-
dælingarnir sem sótt hafa vinnu í skólann enda hafa ráða-
menn hans haft þá stefnu að láta nágrannana ganga fyrir í
vinnu.
Norðdælingar binda miklar vonir við þær breytingar sem
Jón Sigurðsson skólastjóri hefur staðið fyrir á skólanum
með því að hækka hann upp í menntakerfinu. Þær viðtökur
sem „nýi skólinn“ hefur fengið eru líka mjög góðar og hvetj-
andi fyrir aðstandendur skólans.
Eg óska Samvinnuskólanum alls hins besta í framtíðinni.
A meðan hann fylgir tíð og tíma er honum engin hætta búin.
DAGBLAÐIÐ
Dagur
Eína dagblaðíð
á landsbyggðínní
Dagur
Strandgötu 31, Akureyri
Sími 96-24222
jón Benediktsson. Útskr. 1919. Skrifstofu-
madur og kennari á Akureyri en lengst af
lögregluþjónn þar. Ljóbið Hjúskaparsæla
er úr Ijóbabókinni Bundið mál sem kom út
1968.
Jón Benediktsson
Hjúskaparsæla
Bóndinn var heima, en frúin var farin
d framsóknarvist og dans,
þvíheldur var smdvaxin hjúskaparsœlan
d heimili forstjórans.
Nú sat hann ífýlu við arinéldinn,
sem ornaði kroppnum hans.
Nýrdðna þjónustu-stúlkan nam staðar
ístofunni litla hríð.
Vill húsbóndinn te eða kaffi ú kvöldin?
hún kvakaði undur blíð.
Pd Ijetti yfir mínum, því Ijóshœrð stelpan
varlaglega vaxin ogfríð.
Eftir það hvatti hann alltaf frúna
að dstunda vist og dans
og hjónunum samdi svo helmingi betur
d heimili forstjórans,
þvínú var það fleira en arineldur,
sem yljaði kroppnum hans.