Hermes - 01.12.1988, Page 97
95
Vornæturljóð
frá Bifröst
Vornæturljóð frá Bifröst varð til með þeim hætti að
Guðlaug Einarsdóttir, húsmóðir að Bifröst, bauð
eitt sinn fyrrverandi nemanda að Bifröst, Gunnari
Finnssyni - Gunnari Runólfi - á húsmæðraviku þar upp frá.
Gunnar þáði boðið og naut hvfldar og afþreyingar á hús-
mæðravikunni með „öðrum" húsmæðrum.
Guðlaug mun hafa fært það í tal við hann hvort honum
þætti ekki við hæfi að yrkja eitthvað um staðinn, en Gunnar
er skáld gott og hefur látið frá sér fara bækur með ljóðum.
Hann brást vel við og færði Guðlaugu strax næsta morgun
angurvært erindi sem hefst á þessum orðum: „Bifröst þú
sefur og blundar svo hljótt..."
Björn Jakobsson frá Varmalæk, tónskáld, organisti og
söngkennari, var Guðlaugu árum saman til aðstoðar á
húsmæðravikum, og stjórnaði þá meðal annars „Telpna-
kórnum“, er hann kallaði svo, en þann kór skipuðu konur
þær sem húsmæðravikunnar nutu hverju sinni. Björn var
nærstaddur er Gunnar Runólfur rétti Guðlaugu erindið, og
áður en dagurinn var allur hafði Björn samið við það hug-
ljúft lag, sem síðar birtist í sönglagabók eftir hann. Bók
þessi heitir „Svo hátt, svo hátt... “ og Hermes telur við hæfi
að birta hér þetta lag og ljóð tveggja vina Bifrastar.
S. H. H.
Gunnar Runólfur Finnsson er útskr. 1968.
Stundaði blaðamennsku og kennslu og er nú
skólastjóri Fellaskóla í Fellabæ á Fljótsdals-
héraði.
Björn jakobsson var fæddur á Varmalæk í Borgarfirði 5. júní 1894 og
lést 17. ágúst 1977. Kennari og bústjóri við Hvítárbakkaskóla og síðar
bústjóri á Stóra-Kroppi. Lengi kennari við Reykholtsskóla en síðustu
árin sá hann um útgáfu félagsrits Kf. Borgfirðinga. Mikill tónlistarmað-
ur og eftir hann liggja mörg lög.