Hermes - 01.12.1988, Page 121

Hermes - 01.12.1988, Page 121
119 Nemendur sem útskrifuðust 1944 halda upp á40 ára útskriftarafmæli. Þau kalla sig að sjálfsögðu lýðveldisárganginn og héldu samkvæmt því upp á afmælið á Þingvöllum við Öxará. Á myndinni eru frá vinstri: Albert Cuðmundsson, Sigurborg Sigurjónsdóttir sem er eiginkona eins bekkjarfé- lagans, Ragnars Ingólfssonar, Cuttormur Óskarsson og Kristín Guðmundsdóttir. ismanum, fjallaði um James Joyce og þýddi ljóð hans. Dagur glímdi einnig við Joyce og þýddi eftir hann kvæðið Ecce puer. Bragi tókst hinsvegar á við sjálfan Hemingway og þýddi söguna „Einhverju lauk“. Á þessu tímabili birtust nú ekki ein- göngu háfleygar greinar og bókmenntir. Hermes gegndi einnig fréttaflutningi frá NSS og oft birtust stórfróðleg viðtöl við félagana og ung hjón úr hópi skólasyst- kina voru sótt heim og svo mætti lengi telja. Einn þáttur er þó ótalinn en það er að á hverju ári var gefið út eitt hefti með Nóbelskynningu Samvinnuskólans. Þar birtust m.a. kynningar Sigurðar A. Magnússonar á gríska skáldinu Giorgos Sefris, Kristjáns Árnasonar á Jean-Paul Sartre, Ólafs Jónssonar á Nelly Sachs og Samuel Josef Agnon og Thors Vil- hjálmssonar á Miguel Angel Asturias. Árið 1968 tók Reynir Ingibjartsson við ritstjórn Hermesar og mun þessi skipan mála hafa komið til, m.a. af nokkurri óánægju með of mikið alþjóðlegt bók- menntalegt yfirbragð Hermesar á kostn- að þess er hann var upphaflega stofnaður til og varð nú smám saman sú breyting að meira kom af efni frá NSS og félögum þess og í leiðara fyrsta tölublaðs 1969 set- ur ritstjórinn fram eftirfarandi markmið: 1. Flytja fréttir í máli og myndum af starfi NSS. 2. Vera vettvangur fjölbreyttra frásagna og frétta af eldri og yngri nemendum. 3. Kynna hugsmíðir NSS-félaga. 4. Viðhalda á allan hátt tengslum milli skólans að Bifröst og eldri og yngri nemenda með efni frá nemendum og kennurum og fréttum af starfi skólans. Ekki verður annað séð en þessi mannaskipti hafi orðið til þess að gera efni Hermesar enn fjölbreyttara. Nóbelskynningarblað hélt áfram að koma út með kynningum Kristjáns Karlssonar á Yasunari Kawabata og Samuel Beckett og í síðasta blaðinu kynnti svo Árni Bergmann Alexander Solzhenitsyn. Sumarið 1971 var félagsheimilið að Hamragörðum vígt og varð NSS aðili að því og tóku félagar þess strax virkan þátt í starfseminni þar, bæði sem félagar í NSS og einnig í öðrum félögum. Ef til vill var það afleiðing af þessu samstarfi m.a. að Hermes hætti að koma út árið 1973 en hann hafði þá komið út í 14 ár samfleytt, alls 28 blöð. Hófst nú nýr kafli í útgáfu- sögu NSS. En síðla árs 1974 samdist svo um, að Landssamband ísl. samvinnu- manna LIS og NSS tækju við útgáfu Hlyns, sem verið hafði málgagn Starfs- mannafélags SÍS síðan 1950. Hlynur hef- ur komið óslitið út síðan og síðustu árin undir ritstjórn Guðmundar Reynis. Sjálfsagt hefur ýmsum þótt hlutur NSS í Hlyni rýr á stundum, enda þótt verulegt efni bærist oft þaðan en þetta samstarf entist í tæpan áratug eða þar til um ára- mótin 1983-84 að NSS gekk úr þessu samstarfi þegar yfirstjórn LIS fluttist norður yfir heiðar. Pað mun hafa verið á árinu 1985 að gerð var tilraun til að endurvekja Herm- es og gefið út átta síðna blað með efni tengdu NSS. Ekki varð þó úr því að framhald yrði þar á enda má e.t.v. segja að nú á tímum hinnar miklu ofþenslu í hvers kyns fjölmiðlun eigi útgáfa félags- samtaka á borð við NSS okkar, tæpast mikla möguleika.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Hermes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hermes
https://timarit.is/publication/1070

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.