Uppeldi og menntun - 01.01.2014, Side 13

Uppeldi og menntun - 01.01.2014, Side 13
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(1) 2014 13 HaLLa jÓnsDÓTTir kennaranáms og til kennarastarfsins. Til hægðarauka er hér yfirleitt talað um kennara- nema þegar átt er við grunnskólakennaranema. Kennaranemar Um 83% íslensku kennaranemanna í rannsókninni voru konur en 17% karlar. Hér skar Ísland sig úr með hæsta hlutfall kvenna í grunnskólakennaranámi. Þá voru 98% kennaranemanna með íslensku sem móðurmál. Um 18% kennaranemanna á Menntavísindasviði hófu nám strax að loknu fram- haldsskólaprófi, 45% einu til tveimur árum eftir að framhaldsskóla lauk og 8% nema hófu kennaranám fimm til sautján árum eftir að þeir luku framhaldsskólaprófi. Tæp- lega 30% íslensku kennaranemanna höfðu áður hafið annað háskólanám en ekki lokið því. Í rýnihópaviðtölum kom fram að þetta var nám í ólíkum greinum, t.d. stjórn- málafræði, sagnfræði, íslensku eða erlendum málum. Finnskir nemar fóru flestir strax að loknu framhaldsskólanámi í kennaranám en danskir, norskir, sænskir og íslenskir stúdentar biðu lengur með það. Meðalaldur kennaranema, sem voru að hefja nám, var því lægstur hjá finnsku nemunum, eða 21 ár, en 25 ár hjá íslensku kennaranemunum. Margir kennaranemar sögðu frá því í rýnihópaviðtalinu að kennarar þeirra eða kennarar í fjölskyldunni hefðu haft mikil áhrif á val þeirra á kennaranámi. Íslenskur kennaranemi lýsti því til dæmis þegar hann spurði móður sína, sem var kennari og hann hafði séð „streða“ og vinna oft langt fram á nætur, af hverju hún hefði gerst kennari. „Hún ljómaði þegar hún sagði frá því sem hún sæi gerast hjá börnunum. Þá skildi ég að mamma elskaði starfið sitt.“ Viðhorf til kennaramenntunar Íslenskir framhaldsskólanemar töluðu af virðingu um góða kennara og mörg dæmi voru einnig nefnd um einstaklinga með kennaramenntun í öðrum störfum. Íslensku og dönsku kennaranemarnir sögðu það auðvelt að komast inn í kennaranám en þeir finnsku töldu það erfitt í samanburði við aðrar greinar. Í Finnlandi eru inntökuviðtöl sem nemendur sögðu að væru góð en erfið. Í rýnihópaviðtalinu voru framhaldsskólanemar spurðir hvort það skipti máli að auðvelt eða erfitt væri að komast í nám. Íslensku nemendurnir töldu það til marks um að nám væri eftirsóknarvert að erfitt væri að komast í það og námið væri ekki of auðvelt. Annað sem kom fram, og tengdist vali á námi, var að staða námsins í sam- félaginu hefði nokkur áhrif en einnig að starfið væri mikilvægt fyrir samfélagið. Vinir og ættingjar hefðu líka áhrif á það hvaða nám yrði fyrir valinu. Í spurningakönnuninni má merkja jákvæðari svör hjá íslensku kennaranemunum en nemum annars staðar á Norðurlöndum við þeirri fullyrðingu að kennaramenntun- in sé áhugaverð og áskorun í sjálfu sér. Íslensku kennaranemarnir héldu því fram að ekki skipti miklu máli þó að auðvelt væri að komast í námið. Spurt var hvort námið væri létt og voru 80% kennaranema mjög eða frekar ósammála því að námið væri létt en hins vegar töldu þeir að það væri áhugavert og áskorun í sjálfu sér. Þetta sjónarmið kom fram í svari eins kennaranemans en hann sagði: „Maður fær ekkert að halda
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.