Uppeldi og menntun - 01.01.2014, Side 126

Uppeldi og menntun - 01.01.2014, Side 126
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(1) 2014126 UPPeLDisréTTUr aðila (bls. 21). Sigurður rekur síðan ýmis sjónarmið, bæði trúarleg og veraldleg. Ítarlegur kafli er um evangelísk-lútersk viðhorf. Sigurður vitnar í þýska fræðikonu, Ingeborg Röbbelen, sem bendir á að foreldraréttur sé afstæður og breytilegur, þ.e. að kirkjan geti „því aðeins barist fyrir foreldrarétti að hún hafi frelsi og ábyrgð einstaklingsins að leiðarljósi“. Hún geti ekki barist fyrir foreldrarétti „til að koma sínum eigin pólitísku markmiðum í trúmálum og skólamálum að“ (bls. 28, þýðing Sigurðar á texta Röbbelen). Einnig er ítarlegur þáttur um íslam þar sem er rætt um „rétt“ barna og skyldur. Sigurður bendir einnig á að hugtakið „réttur“ sé ekki til í búddasið. Í kaflanum eru langar tilvitnanir í Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna frá 1948 og aðra alþjóðlega samninga, auk íslenskrar löggjafar. Sigurður leggur áherslu á það að uppeldisréttur foreldra sé í raun undirstaða undir mannréttindi barna og rétt þeirra til að fá uppeldi. Í mannréttindasáttmálum og íslenskri löggjöf sé gengið út frá frumrétti foreldra til uppeldismótunar. Þetta sé þó hvergi skýrt orðað og takmörkunum háð (bls. 43). Í stuttum kafla um réttindi barna er sérstaklega bent á að lengst af hafi ekki verið litið á börn sem sjálfstæða handhafa réttinda heldur hafi verið litið á þau sem einstaklinga sem þyrfti að vernda. Í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna frá 1989 sé hins vegar staðfest hið breytta viðhorf að börn séu sjálfstæðir einstaklingar. Þetta hefur vitaskuld áhrif á uppeldisrétt foreldra sem ætíð skulu taka mið af „hag og heill barnsins“, eins og Sigurður orðar það (bls. 50). Í öðrum stuttum kafla ber Sigurður saman hlutverk ýmissa aðila í uppeldi barna: foreldra, ríkisvalds sem krefst skólaskyldu, kirkju o.s.frv. Hlutverk skóla hefur sennilega ekki aukist mikið frá því að bókin var fyrst skrifuð – en það hefur fest í sessi, einkum leikskólastarfið, og reyndar má telja hækkun sjálfræðisaldurs úr 16 árum í 18 til marks um aukna hlutdeild skóla í uppeldi. grUnngilDi sKóla Allítarlegur kafli fjallar um grunngildi skyldunámsskólans og þær mótsagnir sem felast í kröfum um að skólar séu hlutlausir. Sigurður telur að skólarnir geti verið hlut- lausir eingöngu ef þeir forðast álitamál er varða trúarbrögð – en þá bregðist þeir líka skyldu sinni því að uppeldi og kennsla um gildi þurfi að eiga sér stað. Í kaflanum er einnig skýrt frá því hvernig það atvikaðist að hugtakið „kristin arfleifð íslenskrar menningar“ kom í grunnskólalögin árið 2008 þar sem áður hafði verið kveðið á um að skólastarfið skyldi vera í samræmi við „kristilegt siðgæði“. Sigurður vísar til um- ræðna og dómsmála, bæði í Noregi og Tyrklandi, og kallar eftir því að reglur verði settar um hvort og hvernig foreldrar geti fengið undanþágu frá einstökum námsgrein- um rétt eins og trúarbrögðum (bls. 64). Nú hafa verið gefin út viðmið um samskipti skóla og trúfélaga, bæði af ráðuneyti (Mennta- og menningarmálaráðuneytið, e.d.) og Reykjavíkurborg (Borgarráð Reykja- víkur, 2013). Viðmiðin og reglurnar eru of ný til þess að hægt sé að átta sig á því hver áhrifin og afleiðingarnar verða. Reglur borgarráðs sýnast mér ganga skemmra í því að aðskilja starfsemi skóla og lífsskoðunarfélaga en umdeildar reglur sem Mannréttinda- ráð borgarinnar samþykkti í júní 2011 og vísað er til í neðanmálsgrein í riti Sigurðar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.