Morgunblaðið - 16.03.2012, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1 6. M A R S 2 0 1 2
Stofnað 1913 64. tölublað 100. árgangur
www.ms.is
Með D-vítamíni sem hjálpar
þér að vinna kalkið úr mjólkinni.
Meira fjör með Fjörmjólk!
Fáðu D-v
ítamín
úr Fjörmjó
lk!
BRÚÐKAUPSBLAÐ
KJÓLAR, VENDIR, HÁRGREIÐSLUR,
FÖRÐUN, KÖKUR OG BRÚÐKAUPSMYNDIR
Í 40 SÍÐNA AUKABLAÐI
Með hækkandi bensínverði leitar
fólk gjarnan að búsetu nær vinnu-
stað og þjónustu. Þetta bitnar á jað-
arbyggðum, að sögn Ásmundar
Friðrikssonar, bæjarstjóra í Garði.
Þar hefur íbúum fækkað á síðustu
mánuðum og auk bensínverðsins
segir Ásmundur að fólk nefni
óraunhæfar kröfur Íbúðalánasjóðs
um leigu- og söluverð þegar það til-
kynni um breytt aðsetur. »14
Hátt bensínverð erfitt
fyrir jaðarbyggðir
Morgunblaðið/Ásdís
Bensín Bensínverð fer hækkandi.
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höf-
uðborgarsvæðisins, segir alveg ljóst
að lögregla hefði náð enn betri ár-
angri í baráttunni við skipulögð
glæpasamtök ef hún hefði haft meiri
fjármuni til umráða. Ræða þurfi um
auknar rannsóknarheimildir fyrir
lögreglu og hann segir alls ekki of
seint að banna starfsemi skipulagðra
glæpahópa.
Stefán segir að lögreglu hafi und-
anfarið ár orðið verulega ágengt í bar-
áttunni við skipulögð glæpasamtök.
„Það er ekki nokkur einasta spurning
að við gætum náð mun betri árangri
ef við værum fleiri. Við hefðum tæki-
færi til að fara í fleiri mál. Og við hefð-
um þá, með tiltölulega litlum tilkostn-
aði, tækifæri til að ná þeim tökum á
þessari starfsemi sem ekkert af okkar
nágrannaríkjum lætur sig dreyma
um. Þetta verkefni er ekki óyfirstíg-
anlegt en það kallar á aukinn
mannafla hjá lögreglu,“ segir hann.
Framsækin á öðrum sviðum
Stefán bendir á að lögregla hafi
ítrekað lagt til að lagt yrði bann við
starfsemi glæpasamtaka og hann seg-
ir að það hafi verið mistök að gera það
ekki. Ekki sé of seint að setja slíkt
bann á nú, heldur sé það rökrétt
framhald á þróuninni undanfarið ár.
„Hafi menn ekki trúað lögreglunni
fyrir tíu árum, fimm árum, þremur
árum eða tveimur árum, þá hljóta
augu þeirra sem með þetta höndla að
vera farin að opnast fyrir nauðsyn
þess að beita þessu úrræði,“ segir
hann. Undanfarin ár hefur verið rætt
um að banna starfsemi glæpasam-
taka, s.s. Vítisengla, en þar með gætu
þau t.a.m. ekki flaggað merkjum sín-
um.
Stefán segir að íslensk stjórnvöld
hafi verið framsækin á ýmsum svið-
um. Þau hafi bannað vændiskaup sem
Stefán telur að hafi verið rétt ákvörð-
un en gagnrýnir um leið að engir fjár-
munir hafi fylgt með til að lögregla
gæti sinnt þessum málaflokki af
krafti. Einnig hafi nektardans verið
bannaður en hann hafi ekki haft
spurnir af sambærilegu banni erlend-
is. „Þess vegna finnst mér að stjórn-
völd eigi alveg að hafa kjark til að
banna skipulögð glæpasamtök,
skárra væri það nú.“
Mistök að setja ekki bann
Lögreglustjóri segir ekki of seint að banna starfsemi skipulagðra glæpasamtaka
Með meira fjármagni hefði lögregla náð enn betri árangri en raun ber vitni
MHeimildir lögreglu auknar »2
Umdeild Rúta frá ferðaþjónustu-
fyrirtækinu Allrahanda.
Samband sveitarfélaga á Suð-
urnesjum, SSS, álítur að Iceland
Excursions Allrahanda brjóti lög
með því að aka með farþega milli
Reykjavíkur og Leifsstöðvar. Vís-
ar SSS, sem segist hafa einkaleyfi
á akstrinum, til þess að Kynn-
isferðir hafi samið við SSS um
þjónustuna.
Stjórn sambandsins hefur sam-
þykkt að óska eftir lögbanni á
akstur Allrahanda sem segir á
hinn bóginn að einkaleyfið stang-
ist á við evrópsk lög um almenna
farþegaflutninga á vegum. »6
Vilja setja lögbann
Allrahanda aki ekki flugfarþegum
Eftir helgi verður um hálfri milljón kr. dýrara fyrir húsbyggj-
anda í Reykjavík að láta flytja 1.000 rúmmetra af jarðvegi úr
húsgrunni einbýlishúss, en Bolaöldur skammt frá Litlu kaffi-
stofunni við Suðurlandsveg verða nýr losunarstaður í stað
svæðis á Hólmsheiði.
Aukinn kostnaður er aðeins vegna lengri vegalengdar en
hún lengist um 22 til 33 km fram og til baka eftir því hvort far-
eru tíundaðir á minnisblaði borgarinnar en verktakar eru
ósáttir við breytinguna. „Mönnum líst illa á þessar breytingar
og verðið hjá húsbyggjendum á eftir að hækka mikið,“ segir
Garðar Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri hjá verktakafyr-
irtækinu Urð og grjóti. „Öll verk fyrir borgina verða klárlega
miklu dýrari.“ Einnig vekja verktakar athygli á aukinni elds-
neytisnotkun, sliti á vegum og tækjum auk slysahættu. »12
ið er úr helstu nýbyggingarsvæðunum í Úlfarsárdal og við
Reynisvatnsás um Reynisvatnsveg eða um Vesturlandsveg og
Suðurlandsveg.
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu verða með sameig-
inlegan rekstur á jarðvegstipp í Bolaöldum. Reykjavíkurborg
áætlar að mögulegur sparnaður borgarinnar vegna breyting-
arinnar verði 15 til 50 milljónir króna á ári. Kostir og ókostir
Kostnaður húsbyggjanda eykst um hálfa milljón króna
Morgunblaðið/RAX
Tveir karlar til viðbótar voru í
gær úrskurðaðir í gæslu-
varðhald til 21. mars í tengslum
við rannsókn lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu á skipu-
lagðri brotastarfsemi. Fyrr um
daginn voru fjórir aðrir karlar
úrskurðaðir í gæsluvarðhald
vegna sama máls. Á miðvikudag
voru þrír karlar og ein kona, öll
tengd Vítisenglum, úrskurðuð í
áframhaldandi gæsluvarðhald.
Tíu í gæslu-
varðhaldi
MARGIR HANDTEKNIR
Rauði þráð-
urinn í fyrri mál-
flutningsræðu
Sigríðar J. Frið-
jónsdóttur, sak-
sóknara Alþing-
is, fyrir
Landsdómi í gær
var að hinn
ákærði, Geir H.
Haarde, hefði átt
að sjá hættu-
merkin í fjármálakerfinu á árinu
2008. Hann hefði samt hvorki beitt
sér fyrir markvissu starfi samráðs-
hóps um fjármálastöðugleika, né
beitt sér fyrir því að bankarnir
minnkuðu umsvif, né þrýst á að Ice-
save-reikningarnir yrðu fluttir úr
landi og ekki heldur tekið þá vá
sem vofði yfir fjármálakerfinu fyrir
með formlegum hætti. »16-18
Segir Geir hafa átt
að grípa í taumana
Sigríður J.
Friðjónsdóttir