Morgunblaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2012 ✝ Emil SigdórGuðmundsson, skipasmiður, fædd- ist á Barðsnesgerði í Norðfjarð- arhreppi 1. sept- ember 1917. Hann lést á Landspít- alanum í Fossvogi 8. mars 2012. For- eldrar hans voru Þórunn Guðbjörg Halldórsdóttir, hús- freyja og bóndi, fædd á Þuríðar- stöðum á Völlum, S-Múlasýslu, 4. desember 1894, látin 12. sept- ember 1977, og Guðmundur Halldórsson bóndi, fæddur 26. desember 1891 á Barðsnesgerði í Norðfjarðarhreppi, látinn 29. apríl 1976. Þau buggju í Barð- snesgerði fram til ársins 1955 er þau fluttu að Lyngbergi í Garða- bæ, nú Hafnarfirði. Þau voru síð- ustu ábúendur í Barðsnesgerði. Emil var næstelstur 14 systk- ina. Systkini Emils voru Ásgeir Halldór, f. 1916, d. 1979, Helgi Sigfinnur, f. 1919, d. 1975, Guð- rún Oddný, f. 1921, d. 1972, drengur Guðmundsson f. 1922, d. 1922, Ingvar Sigurður, f. 1923, d. 1953, Ólína, fædd 1924, Magnús, f. 1926, d. 1997, Hjalti f. barn er Freyja Herdís b) Dísa, f. 1983, maki Ulf Nylin, og c) Fríða, f. 1991 3) Guðrún, f. 1957, búsett í Svíþjóð, börn a) Anna Linnea, f. 1990, og b) Emil Vikt- or, f. 1992, faðir Rune Lysell. Emil ólst upp í Barðsnesgerði við sjómennsku og sveitastörf. Hugur hans stóð til náms. Hann stundaði nám í Héraðsskólanum á Laugum í Þingeyjarsýslu 1939- 1941 og nám í skipasmíðum í Vestmannaeyjum 1942-1946. Eftir það vann hann í skipa- smíðastöð í Svíþjóð og í Nes- kaupstað. Þar kynntist hann eft- irlifandi maka sínum, Kristínu Sveinsdóttur. Þau fluttust til Reykjavíkur 1948 og hófu bú- skap í Eskhlíð 12b. Þau fluttu á Digranesveg 34 í Kópavogi 1959 og bjuggu þar alla tíð síðan. Em- il hóf störf í skipasmíðastöð Daníels Þorsteinssonar 1948 og vann þar í rúmlega 40 ár. Hann tók virkan þátt í verklýðsbarátt- unni. Emil var mikill hagleiks- smiður. Hann vann alltaf mikla aukavinnu, hjálpaði mörgum að gera við bátana sína, byggja eða laga húsin sín og sumarbústaði eða ýmis önnur viðvik. Emil var mikil félagsvera og var ein- staklega umhyggjusamur maður sem lét sér mjög annt um fjöl- skyldu sína, ættingja, vini og samferðamenn. Útför Emils fer fram frá Hjallakirkju í Kópavogi í dag, 16. mars 2012, og hefst athöfnin kl. 15. 1927, Sigríður Sveinlaug. f. 1929, Karl Guðgeir. f. 1930, Ásdís, f. 1932, Svavar, f. 1934, og Jósep, f. 1934, d. 1953. Emil kvæntist 6. mars 1948 Kristínu Sveinsdóttur, f. í Bolungarvík 13.10. 1923. Foreldrar hennar voru Guð- rún Pálmadóttir og Sveinn Hall- dórsson. Börn Emils og Krist- ínar eru: 1) Guðbjörg, f. 1948, maki Pétur Karl Sigurbjörnsson, f. 1946; þeirra börn eru a) Emil, f. 1968, maki Ólafía Bjarnadótt- ir, börn Emils Pétur Axel og Úlf- ur, þeirra móðir er Andrea Gréta Axelsdóttir og Emilía Rán og Rakel Ylfa, móðir Ólafía Bjarnadóttir b) Kristín, f. 1971, barn Pétur Karl c) María, f. 1971, maki Bragi Halldórsson, börn Maríu Vera Líf, f. 1990, d. 1990, og Víðir Alexander, faðir Jón Júlíus Sandal, og Una Guð- björg, faðir Bragi Halldórsson 2) Ástríður Herdís, f. 1951, búsett í Svíþjóð, maki Pär Åhman, f. 1956, börn a) Jónas, f. 1979, maki Sunneva Ösp Helgadóttir, Elsku pabbi, nú hefur þú kvatt okkur. Það gerðist snögglega og eins og þú vildir hafa það. Það síðasta sem þú sagðir við mömmu og brostir svo fallega var að biðja hana fyrir kveðju heim. Líklega vissir þú hvert stefndi þó svo við hin vildum ekki sjá það. Þú varst góður maður sem vildir öllum vel og vildir alltaf gera allt það besta fyrir alla í kringum þig. Mikilvægast af öllu fyrir þig var að allt gengi vel hjá okkur systrum og mömmu. Fram til dauðadags spurðir þú: „Get ég gert eitthvað fyrir ykkur?“ Þú hefur alla tíð gert mikið fyrir okkur og betri fyrirmyndir en þig og mömmu gætum við og börnin okkar ekki átt. Það var mikilvægt fyrir þig að við menntuðum okk- ur og yrðum sjálfstæðar. Þú kenndir okkur samkennd, rétt- læti og æðruleysi. Þú varst svona pabbi sem gast allt. Þú smíðaðir allt, báta, hús, húsgögn og leikföngin okkar, gerðir við alla hluti sem biluðu, bíla og önnur farartæki og meira að segja líka fötin. Þú tókst virk- an þátt í heimilishaldinu með mömmu eftir að þú hættir í Daní- elsslippnum og annaðist alla í kringum þig. Þú varst svona eig- inmaður eins og ungar stúlkur nú til dags vilja hafa maka sína. Þú varst mjög félagslyndur og duglegur að rækta samband við ættingja og vini og eignaðist stöðugt nýja kunningja sem urðu fljótt bestu vinir þínir. Þar skipti aldur ekki máli. Þú varst mjög barngóður og börn hændust að þér. Þú varst stóri bróðir systk- ina þinna og höfðingi fjölskyld- unnar á seinni árum og höfðingi í einu og öllu. Það hefur alltaf ver- ið mikill gestagangur á heimilinu og allir alltaf velkomnir og þar hafið þið mamma verið mjög samtaka. Þú varst nægjusamur og vildir aldrei láta hafa fyrir þér. Þú hafðir á orði þegar þú lást veikur á spítalanum daginn áður en þú kvaddir að þetta væri nú meira uppátækið hjá þér að taka upp á þessu og láta hafa svona fyrir þér. Við spurðum þig oft þegar þú komst heim úr sjúkravitjun- um, sem þú varst svo duglegur að fara í, hver myndi heimsækja þig þegar þú yrðir gamall og fótafú- inn. En sem betur fer fyrir þig þurftir þú ekki á því að halda. Þú vildir alltaf gefa og áttir erfitt með að þiggja. Þú áttir fallegt og gott ævi- kvöld. Þið mamma máttuð ekki hvort af öðru sjá síðustu árin. Þið áttuð 64 ára brúðkaupsafmæli 6. mars sl. Þið spiluðuð vist um kvöldið eins og svo oft áður, mamma fór fram og tók til kvöld- kaffið á sinn einstaka og fallega hátt, þú lagðir síðasta kapalinn á meðan og varst svo rétt sestur við eldhúsborðið þegar hjartað fór að slá feilslög. Elsku pabbi, nú ertu áreiðan- lega kominn til móður þinnar, föður og systkina þinna sem sum létust alltof ung. Í huga okkar er mikill söknuður og jafnframt mikið þakklæti fyrir að hafa átt svona góðan föður og að hafa fengið að hafa þig svona lengi á meðal okkar. Við munum styðja eins vel við mömmu og við getum. Megir þú hvíla í friði. Ljós þitt og minning mun lifa með okkur. Þínar Guðbjörg, Ásta og Guðrún. Elsku afi. Mikið vorum við heppnar að fá að njóta samvista við þig svona lengi. Við minnumst þín frá æskuárunum, hvernig þú lékst við okkur, kenndir okkur lönguvitleysu, last fyrir okkur þjóðsögur og ævintýri og smíð- aðir handa okkur rúm og leikföng af miklum hagleik. Skjóni ruggu- hestur þjónaði okkur systkinun- um lengi og höfðum bæði við og vinir okkar mikla gleði af. Við minnumst þess hvernig þú unnir fallegum hlutum úr náttúrunni. Þú safnaðir kuðungum, kórölum og steinum sem þú sýndir öllum nýjum gestum af miklu stolti svo og víðáttumikið útsýnið út um stofugluggann á húsinu sem þú byggðir sjálfur á Digranesvegin- um. Bílskúrinn hefur alltaf verið fullur af dóti sem þú gætir þurft að nota einhvern tímann, og ótrú- legt að þú skulir alltaf hafa fund- ið það sem þú þurftir, ef þú þurft- ir að nota eitthvað sem þar leyndist. Aldrei hefur mátt henda neinu sem bilar eða brotnar. Það var örugglega hægt að laga flest og nota aftur, nú eða gefa því nýtt líf sem listaverk. Sum okkar í fjölskyldunni hafa deilt þessari söfnunar- og endurnýtingar- stefnu þinni og önnur okkar not- ar ennþá gömlu, stoppuðu ullar- sokkana þína sem voru látnir hlaupa í þvottavélinni svo að þeir pössuðu. Það var ótrúlegt að fylgjast með þér síðustu árin; allir göngu- túrarnir sem þú fórst í daglega og aldrei mátti bjóða þér bílfar, hvernig þú dansaðir við ömmu, þegar þú málaðir þakið á bíl- skúrnum kominn á níræðisaldur og þegar þú lagðir parket á stig- ann um nírætt, allar bækurnar sem þú last og endursagðir okkur eða lánaðir okkur til að lesa, þið amma að spila tveggja manna vist eða þú að leggja kapal. Þú varst alltaf mjög áhuga- samur um hvað við vorum að bralla, bæði í lífi og starfi, og spurðir ávallt frétta af langafa- börnunum ef þú hafðir ekki hitt þau nýlega. Nýjasta langafa- barnið, sem fæddist á nýársdag, var svo heppið að búa í sama húsi og langafi og langamma og öllum til ómældrar ánægju komstu nið- ur á hverjum degi til að tala við litla manninn. Þú sagðir okkur líka alltaf fréttir af öðru skyld- fólki. Þú vitjaðir um veika eða eldri ættingja og vini hvenær sem færi gafst. Trygglyndi þitt og hlýja var einstök og betri fyr- irmynd er vandfundin. Þín verð- ur sárt saknað. Við minnumst þín með hlýju í hjarta elsku afi og þökk fyrir tím- ann sem við áttum með þér. Elsku amma, við deilum sökn- uðinum með þér en jafnframt öll- um góðu minningunum um ein- stakan mann. Þínar dótturdætur, Kristín og María. Elskulegi afi minn er fallinn frá. Ég man þegar ég var að halda við hnoðin hjá afa þegar hann var að gera við trilluna sína, ætli ég hafi ekki verið 5-6 ára. Afi vann alla sína tíð hjá Daníelsslipp og vann ég með honum þar um tíma. Hann var duglegur starfsmaður, samviskusamur, faglegur og bera vinnufélagar hans honum vel söguna. Þegar ég var lítill og það voru framkvæmdir á heimilinu var afi alltaf mættur til að að- stoða. Hann smíðaði t.d. kojur, rúm, hillueiningu, sem við smíð- uðum saman undir fiskabúrið mitt, að ógleymdum rugguhest- inum Skjóna sem við systkinin þeyttumst um allt á. Þegar mamma og pabbi byggðu á Sæ- bóls var afi þar í öllum sínum frí- tíma. Hann átti það til að koma með hluti úr bílskúrnum sem hann hafði geymt til betri tíma. Líkt og nokkrar fötur af notuðum nöglum, sem ég var settur í að rétta svo við gætum notað þá í uppslættinum, og handbrýndar sagir sem enginn gat sagað beint með nema afi sjálfur. Þegar ég fór sjálfur að framkvæma var afi alltaf til í að koma og hjálpa til. Hann var 86 ára þegar hann hjálpaði mér við að brjóta niður veggi, setja upp nýja hitaveitu- grind og setja saman eldhúsinn- réttingu. Þessar góðu stundir með afa við vinnu fram eftir kvöldi eru mér mjög kærar. Afi var alltaf mikil barnagæla og krökkunum mínum fannst gaman að fara í heimsókn til langafa og langömmu á Digró, en þar er alltaf tekið vel á móti öll- um. Afi hlakkaði alltaf til að fá stelpurnar mínar í heimsókn. Emilía Rán og hann áttu mjög sérstakt samband. Þau léku sér saman að spilum, púsli eða í dótinu í hvert skipti sem við kom- um í heimsókn. Hún bað oft um að fara í heimsókn til langafa. Hann var einnig farinn að byggja upp sama samband við Rakel Ylfu, hún vildi alltaf vera í fang- inu á honum og fannst hún greinilega vera örugg þar. Þegar við fórum í heimsókn á Digró í vikunni spurði Emilía Rán hvort langafi væri ennþá dáinn, ég jánkaði því, þá spurði hún: „Fær maður samt ekki enn súkkulaði- köku?“ Ég var feginn að geta glatt hana þó með því að segja henni að skúffukakan hennar langömmu væri enn á sínum stað. Mér þótti vænt um að geta far- ið með afa í kvöldsiglingu um sundin síðasta sumar. Þar voru sælir nafnar á ferð því við afi átt- um það sameiginlegt að njóta þessa að vera á sjó. Það er ekki á færi margra á 94. aldursári að fara á sjó á seglskútu, en hann þáði alltaf boð mitt þegar ég bauð honum með að sigla. Mér hefur alltaf fundist þú vera meiri vinur minn en afi, þú hefur einhvern veginn alltaf verið til staðar fyrir mig og mína í gegnum tíðina, ég hef ekki kynnst ósérhlífnari manni. Á síðari árum töluðum við afi alltaf saman a.m.k. einu sinni í viku, það þótti mér vænt um. Nú ert þú farinn í þína stóru siglingu afi minn, þín verður sárt saknað og það verður erfitt að fylla þitt skarð. Elsku amma, að missa besta vin sinn eftir 65 ára vináttu hlýt- ur að vera þungbært. Við vottum þér okkar dýpstu samúð og veit- um þér ást og styrk. Emil Pétursson, Ólafía Bjarnadóttir og börn. Elsku Emil frændi. Mig lang- ar til að þakka þér fyrir góðar samverustundir í yfir hálfa öld. Þið pabbi komuð úr stórri samrýndri fjölskyldu. Þið voruð annar og þriðji í röðinni af 14 al- systkinum. Síðar bættust við tvær fóstursystur. Þar sem þið voruð svo samrýndir og nánir var ekki skrýtið að fjölskyldur ykkar beggja yrðu það líka. Þegar faðir minn háði erfitt dauðastríð skipt- umst við á að vera hjá honum. Það var einmitt þú sem varst hjá honum þegar hann skildi við. Fjölskyldan mín var mjög sátt við það, því við vorum svo harmi slegin. Ég var þá unglingur og reiddist Guði, fannst hann órétt- látur að taka hann frá okkur. Þú talaðir svo fallega til mín og sagð- ir að ég skyldi trúa því að ég ætti eftir að hitta hann aftur. Það hjálpar mjög mikið að trúa því. Kæri frændi, þú varst okkur fjölskyldunni oft innan handar með svo margt. Ég man mest eft- ir allri smíðavinnunni enda þú lærður skipasmiður. Þegar þú komst og parketlagðir á Tómas- arhaganum spjölluðum við sam- an í eldhúsinu um dætur mínar, en ég eignaðist þrjár flottar dæt- ur eins og þú. Þú fylgdist með leik þeirra og starfi og við ósk- uðum þess bæði að pabbi minn gæti fylgst með þeim líka. Svo var rætt um gildi menntunar, pólitík og heimsmálin. Einnig fórum við að rifja upp gamla daga. Eitt sinn fór ég með þér, Guðrúnu og Stínu að heimsækja vinafólk ykkar á Selalæk. Þetta reyndist hið skemmtilegasta fólk og mér leist strax vel á einn son- inn á bænum. Þú spurðir bónd- ann hvort honum litist ekki vel á Emil S. Guðmundsson✝ Séra HúbertOremus fædd- ist í Zeist í Hollandi 20. júlí 1917. Hann andaðist í Reykja- vík 6. mars 2012. Foreldrar hans voru Angèle Marie Detollenære húsfrú og Adrianus Josep- hus Oremus bók- haldari. Að loknu menntaskólanámi í Wernhout 1936 gekk séra Hú- bert í reglu Lasarista og hóf nám í guðfræði við St. Jósefs- prestaskólann í Panningen. Þar var hann vígður til prests 19. júlí 1944. Hann lagði stund á kínversku og franskar bók- menntir við Sorbonne-háskóla 1946-1948 og lauk diplóma-prófi í þeim greinum. Á árunum 1948- 1953 var hann háskólakennari í kínversku, fyrst í Utrecht og síðan Nijmegen en þjónaði síðan sem prestur í Schalkhaar í Hol- landi. Árið 1962 var hann sendur á veg- um reglu sinnar til Istanbúl í Tyrk- landi og starfaði þar til ársins 1967 bæði sem ensku- og latínukennari og sóknarprestur. Næstu tíu árin var hann prestur og kennari í Alex- andríu í Egypta- landi, en árið 1978 kom hann til starfa á Íslandi að eindreginni ósk þáverandi biskups, Hinriks Frehens. Fyrstu þrjú árin stund- aði séra Húbert nám í íslensku við Háskóla Íslands og var jafn- framt prestur kaþólska safn- aðarins í Hafnarfirði til ársins 1988. Eftir það bjó hann í Landakoti og þjónaði kirkju sinni og söfnuði allt til æviloka. Útför Húberts fer fram frá Kristskirkju í Landakoti í dag, 16. mars 2012, kl. 15. „Ut omnes unum sint … ut mundus cre- dat. Að allir séu þeir eitt … til þess að heimurinn trúi.“ (Jóh. 17.21.) Jesús hvetur lærisveina sína til einingar svo að séu marktækir og veki trú. Skömmu eftir að sr. Hu- bert Oremus kom í Hafnarfjörð 1978 hafði hann samband við mig í Dvergasteini. Það varð upphaf að vináttu okkar. Kuldahúfan sem ég gaf honum varð líkt og tákn um hana. Sr. Oremus hafði mikinn áhuga á samkirkjulegu starfi og bar glettinn og hlýr með sér fjöl- þætta menntun og víðsýni. Hann starfaði lengi sem prestur og há- skólakennari í Egyptalandi og áð- ur í Tyrklandi og þekkti vel hve samstaða kristinna manna skiptir miklu til að kristnin fái framgang þar sem önnur trúarbrögð eru ráðandi. Ættarnafn hans, Ore- mus, þýðir „Biðjum“ á latínu og átti vel við hann. Frá bernsku í Hollandi vildi hann gerast trúboði og prestur í Kína. Hann nam kínversku og kynnti sér sögu Kínverja. En landið lokaðist eftir valdatöku kommúnista. Því rættist draumur hans ekki. Oremus var fæddur á Þorláksmessu að sumri og þótti sem Guð hefði leitt hann til Ís- lands. Íslenska varð 17. tungumál- ið sem hann lærði. Hann festi djúpar rætur og hafði dvalist hér lengur en í öðrum löndum. Sr. Oremus sýndi oft litskyggnur með biblíusögum í sunnudagaskóla Hafnarfjarðarkirkju og stóð þar með mér að samkirkjulegum guðsþjónustum. Árum saman stóðum við með Jósefssystrum fyrir gefandi helgistundum í kaþ- ólsku kapellunni á Jósefsspítala á samkirkjulegri bænaviku í janúar og líka á föstunni. Við þáðum kvöldkaffi hjá systrunum er glöddust yfir samstöðu okkar. Oremus þjónaði þó einkum Kar- melnunnum og var sóknarprestur kaþólskra í Hafnarfirði áður en hann fór til þjónustu við Krists- kirkju. Heimsókn Jóhannesar Páls páfa 2. til landsins vorið 1989 var Oremusi mikið fagnaðarefni. Þakklátur þjónaði hann með páfa í kirkju sinni og tók þátt í sam- kirkjulegri guðsþjónustu páfa og biskups Íslands á Þingvöllum. Þar vorum við hvor í sínu liði en þó eitt í Kristi. Orð Jesú um gildi eining- ar voru leiðarstef í prédikun kirkjuhöfðingjanna. Oremus var fulltrúi kaþólskra presta á samkirkjulegri kristnihá- tíð í Hafnarfirði á sjómannadegi árið 2000 í Kaplakrika, flutti þar ritningarorð og bæn. Dýrmætt var að sækja messu í Kristskirkju á 50 ára prestsafmæli sr. Oremus- ar. Hann bar fram heilagt sakra- menti. Ég gekk að altari og þáði brauð lífsins úr hendi vinar míns. Í afmælisfagnaðinum sýndi Jolson biskup því góðan skilning. Síðast bar fundum saman á þjóðhátíðar- degi er við Þórhildur sóttum kvöldmessu í Kristskirkju. Sr. Oremus las ritningarorð. Hann brosti hlýtt er hann eftir messu óskaði okkur til hamingju með daginn. Hann mat mikils íslenska sögu og þjóð er hann hafði helgað líf og störf í áratugi. Hann þráði að hún nyti varanlegra fjársjóða frelsarans. Sr. Oremus var trúr kirkju sinni en bar jafnframt virð- ingu fyrir þjóðkirkjunni og öðrum kristnum söfnuðum landsins. Guð blessi minningu sr. Ore- musar og fullkomni líf hans í upp- risuljóma frelsarans og gefi að bænir rætist um vaxandi sam- stöðu kristinna manna við að lýsa upp heiminn í trúnni á Jesú Krist. Gunnþór Ingason. Húbert Oremus Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent má senda myndina á netfangið minning@mbl.is og gera umsjónarfólki minningargreina viðvart. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.