Morgunblaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2012 Vinna við byggingu undirganga með tilheyrandi vegtengingum við álverið í Straumsvík stendur nú yfir og á meðan fer umferð um Reykjanes- braut á bráðabirgðavegi framhjá framkvæmdasvæðinu. Framkvæmd- um lýkur síðsumars. Undirgöngin eiga að auka öryggi vegfarenda og draga úr slysahættu. Byggð verða 9 m breið og um 23 m löng undirgöng og alls er unnið við um 1,7 km af vegum. Þar af eru nýir vegir um 0,6 km, breikkanir, að- og fráreinar og lagfæringar núverandi vega um 0,8 km og þar sem aðeins er unnið við lagfæringar á núverandi vegum um 0,3 km. Undirgöngin verða um 85 m aust- an við núverandi vegamót við álver- ið. Þau verða fyrir umferð að og frá álverinu. Sunnan Reykjanesbrautar verður lögð frárein að göngunum og aðrein að Reykjanesbraut frá þeim. Framkvæmdir hófust í janúar síð- astliðinn og var stefnt að því að ljúka þeim í júlí í ár en Einar Már Magn- ússon verkefnisstjóri segir að vegna tíðarfars hafi framkvæmdir tafist og gera megi ráð fyrir að þeim ljúki ekki fyrr en í ágúst. steinthor@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Undirgöng við Straumsvík eiga að draga úr slysahættu Vegna aukins flugs í sumar þarf Ice- landair að fjölga starfsfólki verulega en flugáætlunin er 14% umfangs- meiri en á síðasta ári og verður sú stærsta í sögu Icelandair. Nýjum heilsársáfangastað hefur verið bætt við, Denver í Colorado, og fjölga á ferðum til ýmissa borga í Bandaríkj- unum og Evrópu. Gerir félagið ráð fyrir að farþegar verði um tvær milljónir talsins á þessu ári. Félag íslenskra atvinnuflug- manna, FÍA, vekur á því athygli í fréttabréfi sínu að Icelandair hafi boðað alla flugmenn í vinnu fyrir sumarið og ráðið að auki 10 nýja flugmenn til starfa. Það séu fyrstu nýráðningar hjá Icelandair frá árinu 2007. Félagið verður með 16 vélar í farþegaflugi í sumar og þrjár frakt- vélar í ýmsum verkefnum. 1.500 starfsmenn í sumar Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair, hefur félagið frá árinu 2009 aukið jafnt og þétt við sig starfsfólki, eða um ríf- lega 600 manns hjá Icelandair Gro- up í 430 stöðugildum. Fjöldi flug- manna í sumar verður nærri 300 og flugfreyjur og -þjónar nærri 600, sem er 30-40 fleiri en síðasta sumar. Heildarfjöldi starfsmanna flug- félagsins Icelandair í sumar verður um 1.500 í um 1.300 stöðugildum. Icelandair tilkynnti í gær að ætl- unin til London yrði aukin næsta vetur þegar flug hefst til Gatwick- flugvallar 18. október nk. og stendur til 7. apríl á næsta ári. Flogið hefur verið tvisvar á dag til Heathrow- flugvallar, eða 14 sinnum í viku, og heldur félagið þeirri tíðni áfram. Fljúga á tvisvar í viku til Gatwick; á fimmtudagsmorgnum og sunnu- dagskvöldum, en í tilkynningu segir félagið þessa tímasetningu henta vel fyrir helgarferðir Íslendinga til Bretlands og Breta til Íslands. Icelandair bætir við sig tugum starfsmanna  Flug til London Gatwick næsta vetur Morgunblaðið/Ernir Icelandair Sumarið í sumar verður það stærsta í sögu félagsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.